SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Síða 12
12 26. september 2010
Mánudagur
Marsibil Sæmund-
ardóttir „Allir sem
eru svalir drekka
kaffi.“ (Úlfur Máni
6 ára)
Þriðjudagur
Stefán Hrafn Haga-
lín beitti vestfirskri hörku og
hafði betur í návígi við tröllkarl í
kvöld, en braut víst smávegis á
sér sköflunginn í leiðinni … Gifs
í 1-2 mánuði, svo jafngóður og
nýr – og með helvíti fína sögu.
Skelltu <like> á ef þessi maður
á skilið Thule!
Börkur Gunnarsson er kominn
heim. Djöfull er kalt á þessu
landi. Hvers vegna í ósköpunum
hélt landneminn Ingólfur Arn-
arson ekki áfram suður og
stoppaði á Azor-eyjum, þá vær-
um við öll á ströndinni í lúxuslífi
og myndum ekki einu sinni
nenna að sinna rollunum.
Miðvikudagur
Stefán Máni Sann-
leikann eða kont-
ór?
Þórunn Sigurð-
ardóttir Stebbi bú-
inn að taka upp –
mest af rauðum,
þær eru rosalega góðar, næst-
um eins og sætar kartöflur á
bragðið – og nú er líka komið
næturfrost!
Fésbók
vikunnar flett
T
il að svara stutt og
laggott þá er svarið
nei, ég tel ekki að nú
sé tími fyrir kvenna-
framboð. Sjálf er ég það ung að
ég þekki ekki tíma kvenna-
framboðanna og man lítið eftir
Kvennalistanum. Um kvenna-
framboð hef ég því aðeins lesið
í sögubókum.
En til að svara fyrir sjálfa
mig og þann tíma sem ég upp-
lifi þá tel ég að kyn í sjálfu sér
sé hreinlega ekki nógu sterkur
samnefnari fyrir pólitískt
framboð. Ég held að ég ætti til
dæmis erfitt með að ná saman
um málefni og aðferðir við
stallsystur mínar af vinstri
vængnum þótt við séum sam-
mála um eitthvað. Ég lít í raun
á kvennaframboð sem réttlæt-
anlegt ef það er eina lausnin
sem konur hafa til að komast
til valda, ef þær geta það ekki
eftir öðrum leiðum, til dæmis í
gegnum stjórnmálaflokkana.
Sú staða er ekki uppi í dag.
Það er þó ekki þar með sagt að
staða kvenna sé orðin ásætt-
anleg, langt í frá, en það er
okkar kvenna að láta í okkur
heyra og bjóða fram krafta
okkar. Mér finnst þó athygl-
isvert að þessi umræða komi
upp núna þegar kona er í
fyrsta sinn forsætisráðherra,
einnig er kona forseti Alþingis
og forseti Hæstaréttar. Hand-
hafar forsetavalds eru því allir
konur í dag.
Almennt séð trúi ég því að
ég hafi sömu tækifæri til að ná
markmiðum mínum og láta
drauma mína rætast og karlar.
En það að alast upp við þá trú
er að sjálfsögðu áratuga jafn-
réttisbaráttu öflugra kvenna og
karla að þakka og fyrir það er
ég þakklát.
MÓTI
Helga Lára
Haarde
ritstjóri vefritsins
Deiglan.com
É
g held það sé alltaf þörf fyrir
kvennaframboð. Konur eru
skemmtilegar og skilja hver aðra.
Það fer einhver sérstök orka í
gang þegar þær koma saman, það er mín
reynsla af kvennafundum, kvennaráð-
stefnum eða þegar ég hitti vinkonur mín-
ar.
Það þarf kvennaframboð á meðan
launamismunur, kynferðisofbeldi og
heimilisofbeldi líðst í samfélaginu. Í öðru
lagi ættu konur að skoða sín mál í ljósi
hrunsins, það hefur verið kallað banka-
hrunið eða hrun kapítalismans en í raun-
inni ætti að kalla það karlahrunið.
Samt er það svo að margar konur sem
sitja í skilanefndum þiggja milljónir að
launum á meðan kynsystur þeirra standa í
biðröð til að fá mat og brýnustu nauð-
synjar.
Það þarf að skoða hvort við getum
byggt upp jafnréttisþjóðfélag hér á Íslandi,
látið smæðina vinna með okkur. Á sama
hátt verður að skoða hvort við getum
notað auðlindir okkar á frumlegan hátt,
ræktað rósir í staðinn fyrir að framleiða
ál, eða leyft hverunum að hvísla í friði.
Stórfyrirtæki sem standa jöfnum hönd-
um í stríði og virkjanagerð hafa haft forgang
að vatnsafli og jarðvarma á meðan gróð-
urhúsin standa dimm og ljóslaus.
Hver er rétti vettvangurinn fyrir konur að
breyta þessu; smygla sér inní menninguna
eða listirnar? Á þeim bæ er reyndar him-
inhrópandi ójafnrétti, kaldhæðnislegt í ljósi
kröfu listamannsins um „frelsi listarinnar“.
Hvað með Alþingi, er það gömul úrelt
valdastofnun sem hefur misst völd sín til
viðskiptalífsins? Eiga konur að flykkjast í
viðskiptalífið og breyta hlutunum þaðan?
Eða gætum við flikkað uppá Alþingi með
nýju framboði, vinkvennaframboði.
Ég hringdi einmitt í vinkonu mína til að
spyrja út í launamismuninn. Hún sagði ef
miðað væri við vinnutímann 9-5 fengju
konur 65% af launum karla. Það þýðir að
konur gætu hætt að vinna klukkan 14.25 –
þá eru þær búnar að vinna fyrir laununum
sínum. Það er þá spurning um að stofna
Ljóskuframboðið því hverjar aðrar en ljós-
kur vinna í sjálfboðavinnu til klukkan
fimm.
Skoðum Vinkvennaframboð. Til að sjá
hverja konu sem vinkonu sína því að ójafn-
réttið sundrar konum, og þær sjá ekki
heildarmyndina.
MEÐ
Elísabet
Jökulsdóttir
rithöfundur
Er kominn tími á nýtt
kvennaframboð?
Það þarf kvenna-
framboð á meðan
launamismunur,
kynferðisofbeldi og
heimilisofbeldi líðst í
samfélaginu
Ég held að ég ætti
til dæmis erfitt
með að ná saman
um málefni og að-
ferðir við stall-
systur mínar af
vinstri vængnum
þótt við séum
sammála um eitt-
hvað