SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Blaðsíða 28

SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Blaðsíða 28
28 26. september 2010 F lestum er ljóst að mjög sérstakar að- stæður þurfa að ríkja í landinu til þess að flokkar eins og þeir sem nú fara fyrir málum nái tveir saman hreinum meiri- hluta í kosningum. Þar er um að ræða sömu for- sendurnar og skiluðu Jóni Gnarr í borgar- stjórastólinn í höfuðborginni. Kjósendur urðu að vera í eins konar losti, svo þannig færi. Og þeir voru það svo sannarlega vorið 2009 og ekki er hægt að áfellast þá fyrir það. Lostið var aðeins tekið að rjátlast af mönnum ári síðar og þess vegna náði framboð sem kynnti sjálft sig sem vit- leysingaframboð, sem segði jafnan ósatt og stefndi að aukinni spillingu, ekki hreinum meiri- hluta í höfuðborg landsins, eins og virtist stefna í um hríð. Enn er kynt undir Forystumenn stjórnarflokkanna gerðu sér sjálf- sagt grein fyrir þessu, að minnsta kosti í undir- meðvitund sinni. Þess vegna hafa þeir leitast við að ala á heift og hatri og bera sakir á stjórn- málalega andstæðinga og jafnvel á gamla and- stæðinga sem látið hafa af stjórnmálaþátttöku, hvenær sem þeir þykjast fá tækifæri til. Sífelldar hótanir eru hafðar uppi. Minnir þetta allt óþægi- lega mikið á framferði manna sem náð hafa völd- um í byltingu og eru á fullri ferð við að afnema lýðræðisleg réttindi andstæðinga sinna áður en börnin átta sig á að mamma bylting er að éta þau. Óeirðirnar, sem Ríkisútvarpið og Stöð 2 kyntu undir vorið 2009, eru stundum kallaðar því lögu- lega nafni „búsáhaldabyltingin“. Og stóra aldan úr þeirri „byltingu“ skolaði núverandi stjórn til valda og eftirhreyturnar af henni Jóni Gnarr og múmínálfum hans. Samfylkingin í borginni, sem galt afhroð í sveitarstjórnarkosningum, var nógu siðlaus til að setja gnarrliðið til valda, án þess að raunverulegur málefnasamningur lægi til grund- vallar þeirri gerð. En hafi „búsáhaldabyltingin“ eitthvað til síns ágætis þá er það sú staðreynd að hún náði ekki að breytast í raunverulega byltingu vegna staðfestu og kjarks hins fámenna lög- regluliðs landsins. En tæpt stóð það. Og þar sem það tókst ekki mun núverandi ríkisstjórn fyrr eða síðar þurfa að lúta lýðræðislegum lögmálum. Fyrst með því að laga stjórnarhætti sína á ný að hinni lýðræðislegu kröfu sem gerð er til stjórn- sýslunnar. Hún rauf allar griðaskyldur strax frá upphafi. Hún flæmdi opinbera embættismenn úr störfum, hún hlóð handbendum sínum inn í stjórnarráðið og braut öll laga- og formskilyrði við þær aðgerðir og þar fram eftir götunum. Síðan hóf hún að færa skattkerfið í það form sem hentar pólitískri hugsun haturs, öfundar og stjórnlyndis, sem óhjákvæmilega dregur fljótt úr möguleikum efnahagslífsins til að ná sér á strik á nýjan leik. Það gerði hún með tilvísun til „hrunsins“ og tókst því miður að nota grunnhyggna forystumenn ís- lensks atvinnulífs sem stimpilpúða við þá gjörð. Sú blindingshlýðni virðist nú loks vera að renna af mönnum á þeim bæ, en það gerðist bæði seint og illa og er mikill skaði skeður. Lagður hefur verið á stighækkandi hátekjuskattur. Eignaskött- um, sem flest ríki hafa afnumið, hefur verið í raun komið á að nýju og eiga að fara stighækkandi. Og fjármagnstekjuskattur (vaxtaskattur) hefur verið stórhækkaður og hann að auki notaður til að berja sérstaklega á öldruðum og öryrkjum. Allt er þetta gert í nafni „hrunsins“. En hér skal fullyrt að þessar breytingar hafa ekkert með „hrun“ að gera og munu seinka endurreisninni verulega en ekki flýta. Fullyrðingin er sem sagt sú að verið er að nota tækifærið til að þrýsta í gegn pólitískum skattagrillum í skjóli hrunsins og með vísun til þess. Og kallaður skal til vitnis þessum fullyrð- ingum maður sem vita má og nýtur verðskuld- aðrar hylli núverandi stjórnvalda. Sjónarrönd Það er sjaldgæft að stjórnmálaleiðtogar síðustu ára hafi burði og þrótt til að setja pólitíska hugsun frá sér með skýrum hætti í bók sem þeir gefa út. Það gerði sá öflugi forsvarsmaður vinstrimanna um langt skeið, Svavar Gestsson. Var ástæða til að taka ofan hattinn af því tilefni. Bók sína kallaði Svavar Gestsson: SJÓNARRÖND - jafnaðar- stefnan, viðhorf. Hún kom út í maí 1995 og er þar ekki aðllega horft um öxl heldur miklu fremur fram á veginn. Í kafla sem heitir „Horft til ársins 2015“ spyr bókarhöfundur, í nafni lesandans, eft- ir að hafa áður lýst hinum pólitísku góðverkum sem stefnt er að: „Hvaðan eiga peningarnir að koma?“ Og hann svarar í fjórum töluliðum: 1. Með því að leggja á raunverulegan há- tekjuskatt má ná inn í sameiginlega sjóði veruleg- um fjármunum …“ 2. Með því að leggja skatta á vaxtatekjur ALLRA ætlum við að taka inn í sjóði samneyslunnar verulega fjármuni. 3. Með því að leggja á stighækkandi eignaskatt, eins og Alþýðuflokkurinn lagði til um árið, mætti taka inn í viðbót um 10 milljarða króna. 4. Við ætlum að afnema skattsvik og ná þar í 10 milljarða króna. Rétt er að undirstrika að Svavar Gestsson minnist hvergi á í sínu testamenti að forsendan fyrir slíkum trakteringum inn um lúgu skatt- greiðenda sé að efnahagslegt hrun hafi orðið í landinu. Og einnig er rétt að halda því til haga að leturbreytingin í orðinu „ALLRA“ er Svavars en Reykjavíkurbréf 24.09.10 Hrunið sem skálkaskjól
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.