SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Page 30
30 26. september 2010
B
reska tónlistarkonan Imogen
Heap er önnum kafin, kemur
móð og másandi í símann, þegar
blaðamaður slær á þráðinn til
hennar. En henni vefst svo sannarlega
ekki tunga um tönn, þegar viðtalið hefst
talar hún svo hratt að blaðamaður má hafa
sig allan við að skilja hana.
Heap mun halda fyrirlestur á ráðstefn-
unni You Are in Control sem haldin verð-
ur í fjórða sinn á Hilton-hótelinu í Reykja-
vík, 1. og 2. október næstkomandi. Hún
mun þar fjalla um hvernig hún hefur nýtt
stafræn tól við sköpun og aðferðir sem
leyfa áhorfendum að taka þátt í tónleikum
hennar, að því er segir á vef ráðstefn-
unnar. Heap hefur nýtt sér skapandi
greinar við framleiðslu á margþættum
tónlistarviðburðum. Yfirskrift ráðstefn-
unnar er „Stafræn framtíð: Tækifæri
skapandi greina“ en á henni verður „rýnt í
þróun stafrænna viðskipta í skapandi
greinum“.
Heap hlaut Grammy-verðlaun í ár fyrir
þriðju sólóplötu sína, Ellipse, fyrir þá
plötu sem best þótti unnin í flokki þeirra
sem ekki heyra undir sígilda tónlist (Best
Engineered Album, Non Classical) en var
auk þess tilnefnd fyrir besta flutning á
popplagi án söngs (Best Pop Instrumental
Performance) fyrir lagið „The Fire“. Auk
þess er hún þekkt sem liðsmaður hljóm-
sveitarinnar Frou Frou, annar helmingur
þess ágæta tvíeykis.
Til hjálpar fórnarlömbum flóðanna
Heap rekur fyrirtæki með vini sínum
Thomas Ermacora, Bubbletank, og saman
hafa þau komið að verkefninu CLEAR Vil-
lage sem hefur það að markmiði að auka
sjálfbærni og bæta heiminn, svo að segja,
m.a. með því að nýta nútímatækni á net-
inu til að sameina ólík samfélög heims.
Ermacora mun einnig koma fram á ráð-
stefnunni og fjalla um þetta samstarf
þeirra Heap.
„Ég mun í raun fjalla um öll þau sam-
starfsverkefni sem ég hef komið að sem
hafa snúið að því að tengjast aðdáendum
mínum og þar frameftir götunum, að nýta
samskiptatækni með hugvitssamlegum
hætti og einnig verkefni sem við Thomas
ætlum okkur að vinna að sem snúa að
hinu og þessu. Nokkrum þeirra höfum við
þegar hleypt af stokkunm,“ segir Heap.
Hún nefnir m.a. nýlegt verkefni, Live 4
Pakistan, þar sem markmiðið var að veita
fólki aðstoð á flóðasvæðunum í Pakistan,
safna fé til hjálparstarfs þar, en talið er að
allt að 20 milljónir manna hafi orðið fyrir
áföllum af völdum flóðanna sem þar
gengu yfir á árinu. Thomas og Heap fengu
fjölda þekktra einstaklinga, m.a. tónlist-
armenn, til að leggja verkefninu lið,
streymdu tónleikum og myndböndum á
vefsíðunni live4pakistan.tv og öfluðu
þannig fjár til hjálparstarfsins. Þá gat fólk
rætt beint við þá á netinu sem lögðu mál-
efninu lið. Á tveimur sólarhringum komu
fram á vefnum átta listamenn og fjöldi
annarra, m.a. Richard Branson, stjórn-
arformaður Virgin-flugfélagsins, og Mary
Robinson, heiðursforseti hjálparsamtak-
anna Oxfam, og fluttu ávörp. „Við skipu-
lögðum þennan viðburð í miklum flýti,
með blöndu af tónlistarviðburðum, ræðu-
mönnum og frábærum kynni, Dave
Frank, sem tókst að koma þessu öllu sam-
an á síðustu stundu,“ segir Heap. Þau
Thomas telji þetta framtíð fjáröflunar, að
„Ég er mjög
spennt fyrir
framtíðinni“
Tónlistarkonan og Grammy-verðlaunahafinn
Imogen Heap heldur fyrirlestur á ráðstefnunni
You Are in Control í Reykjavík 1. október nk.
Heap hefur náð langt í tónlistarheiminum á eigin
spýtur og hefur til þess nýtt sér möguleika staf-
rænnar tækni og samskiptaleiðir netsins.
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is
Heap á tónleikum í
Birmingham Aca-
demy árið 2006.
Heap segist fegin að vera uppi á tímum stafrænnar tækni og veraldarvefjarins og er bjartsýn á
framtíðina. Það er því einkar viðeigandi að í bakgrunni sé klukka.
Prúðbúin Imogen Heap á
Grammy-verðlaunahátíðinni
síðustu, að taka við verðlaun-
um fyrir sólóskífu sína Ellipse.