SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Qupperneq 2
2 28. nóvember 2010
Við mælum með
Fallega jólasýningin
Ævintýrið um Augastein, sem fjallar um baráttu jólasveinanna til að
bjarga drengnum Augasteini frá Grýlu og Jólakettinum, verður sýnd fimm
sinnum fyrir jól hér á Íslandi en átta ár eru liðin frá því að verkið var upp-
haflega frumsýnt í London. Höfundur sýningarinnar er Felix Bergsson en
hann leikur einnig öll hlutverkin. Sýnt verður í Tjarnarbíói kl. 14 og 16, 28.
nóvember og 12. desember, og kl. 13 hinn 19. desember.
Ævintýrið um Augastein
23 Milli tveggja elda
Nokkur eiturlyfjasamtök í Mexíkó berjast innbyrðis um völd og millj-
arðamarkaðina í Bandaríkjunum.
24 Stórpólitísk sorgarsaga
Ragnar Arnalds skrifar í nýrri skáldsögu um Margréti konungsdóttur í
Noregi sem á 13. öld, þá átta ára gömul, var send í örlagaríka ferð.
36 Hvönnin okkar græna gull
Íslenskar jurtavörur eru komnar í útrás. Eftir árs undirbúning er
hvannarafurðin SagaPro á leið á kanadískan markað.
38 Hús án eirðar
Fá hús í Reykjavík hafa farið víðar en „gamla
pósthúsið“ við Brúnaveg. Upprunalega stóð
það við Austurvöll og síðar í Skerjafirði.
42 Útnefning veldur
deilum
Jean-Luc Godard útnefndur til þeirrar veg-
semdar að verða handhafi Heiðurs-Óskarsins. Ekki er öllum sama.
45 Kakó og kökur
Aðventan hefst um helgina og þá gengur kakótíminn í garð. Fátt er
betra en bolli af rjúkandi kakói með rjóma og smákökum.
Lesbók
48 Venjulegt fólk er oftast
óvenjulegt
Óskar Magnússon er höfundur smásagnasafnsins Ég sé ekkert
svona gleraugnalaus. Hann ræðir m.a. um skáldskap og húmor.
55 Bera bý bagga skoplítinn
Pétur Gunnarsson rithöfundur á síðasta orðið.
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók ljósmyndari UNICEF af litlu barni í Úganda.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags-
moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hugrún
Halldórsdóttir, Hólmfríður Gísladóttir, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, Orri
Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson.
18
41
Augnablikið
H
árin risu, ég fékk gæsahúð og felldi
tár, sagði ungur maður norðan úr
landi þegar leikur Liverpool og West
Ham í ensku úrvalsdeildinni í fót-
bolta var nýhafinn á Anfield Road um síðustu
helgi. Þetta var fyrsta ferðin hans á leikvanginn
goðsagnakennda. Varla sú síðasta!
Ekkert hafði gerst markvert ennþá á fag-
urgrænu grasinu en það sem hreyfði við pilti var
stemningin á leikvangingum. Raunar aðeins
smábrot af stemningunni en þó stór þáttur;
nefnilega þegar stuðningsmenn heimaliðsins
sungu hið ótrúlega magnaða lag, You’ll Never
Walk Alone, um það bil sem flautað var til leiks.
Þetta er einkennislag liðsins og flestir taka undir
nema hugsanlega fáir áhangendur gestaliðsins.
Daginn eftir eða daginn áður er farið í skoð-
unarferð um leikvanginn og á félagssafnið. Sag-
an leynist í hverju skúmaskoti.
Einn leiðsögumaður í ferðinni nefnir ríginn á
milli Liverpool og Manchester United. „Við eig-
um einn ekta Evrópubikar. Fengum bikarinn
sem var í notkun þegar við unnum Evr-
ópukeppnina í fimmta skipti, sem er nota bene
oftar en nokkurt annað enskt félag. Nú er búið
að breyta reglunum. Félög fá ekki ekta bikar
lengur, þó að þau vinni keppnina svona oft,
bara afsteypu. Ef Alex Ferguson [knatt-
spyrnustjóri Manchester United] vill fá að sjá
ekta bikar verður hann að borga sig inn á safnið
okkar …“
Búningsherbergi Liverpool-manna er ótrúlega
einfalt í sniðum. Harðir trébekkir og tveir snag-
ar á mann. Búið!
Svo er sest í The Kop, stúkuna aftan við annað
markið. Hann hét upphaflega Spion Kop,
nefndur eftir mikilvægri hæð sem breskir her-
menn náðu á sitt vald í Búastríðinu í Suður-
Afríku fyrir röskri öld.
The Kop hefur mikið breyst síðan ég stóð þar
ungur maður fyrir þremur áratugum. Þá fóru
menn ekkert endilega á klósettið þótt þeim væri
mál að pissa. Enda aðstaðan langt í burtu og
ekki til að hrópa húrra fyrir. Liverpool stendur
við ána Mersey, og leiðsögumaðurinn sagði að
neðsti hluti Kop hefði stundum verið kallaður
Gula Mersey í gamla daga.
Nú rennur ekkert, nema eitt og eitt tár.
Raddböndin eru jafnan þanin í The Kop, stúkunni aftan við annað markið á Anfield, meðan á leik stendur. Þar
sitja/standa dyggustu stuðningsmennirnir. Aðra daga sitja þar túristar í rólegheitum og virða fyrir sér dýrðina.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Komist á koppinn
Mynd af nokkrum leikmönnum og Bill Shankly, þjálf-
aranum sem lagði grunninn að stórveldi Liverpool, er í
búningsherbergi liðsins.
Vetur konungur tyllti sér makindalega á þennan bekk í Dabo í norð-
austurhluta Frakklands fyrir helgi. Boðinn eða óboðinn.
Snjór hylur nú víða jörð á meginlandi Evrópu með tilheyrandi
frosthörku. Minna fer fyrir snjónum hér heima en hann spáir eigi að
síður kólnandi um helgina.
Veröld
Vetur sest á bekk
28. nóvember
Tríó Reykjavík-
ur efnir til tón-
leika í Hafn-
arborg kl. 20,
undir yfirskrift-
inni Klassík við kertaljós. Tón-
leikarnir eru helgaðir tónskáldinu
Chopin og sérstakur gestur er
söngkonan Alina Dubik.
28. nóvember
Bjöllukór Tón-
stofu Valgerðar
spilar í Ársafni í
Hraunbæ kl.
15.
28. nóvember
Boðið verður upp á aðventu-
upplestra á sunnudögum á
Gljúfrasteini í sjöunda sinn í ár
en þar lesa rithöfundar úr nýút-
komnum verkum sínum. Dagskrá
upplestranna má finna á slóð-
inni gljufrasteinn.is.