SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Page 4
4 28. nóvember 2010
Frá gildistöku stjórnarskrárinnar hefur henni verið
breytt alls sjö sinnum, oftast vegna breytinga á kjör-
dæmaskipan og skilyrðum kosningaréttar. Árið
1991 var skipulagi Alþingis breytt þannig að það
starfar nú í einni deild en ekki tveimur eins og áður
var. Umfangsmestu breytingarnar voru gerðar árið
1995 þegar mannréttindakafli stjórnarskrárinnar var
endurskoðaður.
Þar sem stjórnarskráin er æðsta réttarheimild
landsins nýtur hún meiri verndar en almenn lög og
erfiðara er að breyta henni. Skv. 79. grein stjórnar-
skrárinnar verða breytingar að vera samþykktar af
tveimur þingum með þingrofi og almennum kosn-
ingum á milli, auk þess sem forseti Íslands þarf að
staðfesta breytinguna.
Nokkrar greinar í stjórnarskránni eru þó undan-
þegnar þessu ferli og þeim má breyta með venjulegri
lagasetningu. Sem dæmi má nefna 35. grein sem
fjallar um samkomutíma Alþingis, þeirri grein má
breyta með almennum lögum.
62. grein sem skilgreinir hina „evangelísku lút-
ersku kirkju“ sem þjóðkirkju Íslands má einnig
breyta með lögum, en 1. málsgrein 79. greinar segir
að auki, að slík breyting þurfi samþykki í leynilegri
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Sjö sinnum verið breytt
Tvö þing þurfa að samþykkja breytingar á stjórnar-
skrá með þingrofi og almennum kosningum á milli.
Morgunblaðið/Kristinn
S
tjórnarskrá lýðveldisins Íslands er í deigl-
unni enda hafa kröfur um endurskoðun á
henni verið háværar upp á síðkastið,
einkum eftir bankahrun. Stjórnarskránni
verður ekki breytt eins og hendi sé veifað og
kosningar til stjórnlagaþings sem fram fara um
helgina eru liður í ferlinu.
Stjórnarskráin er æðstu lög landsins sem öll
önnur lög verða að hlíta og var núverandi útgáfa
samþykkt sem lög nr. 33/1944 af Alþingi við lýð-
veldisstofnunina á Þingvöllum, 17. júní 1944. Saga
stjórnarskrárinnar er um margt merkileg.
Um miðja nítjándu öld hljóp mikið líf í baráttu
fyrir auknum borgaralegum réttindum víðsvegar
um Evrópu. Þessum straumum skolaði á land hér
í fásinninu og urðu þeir vatn á myllu sjálfstæð-
isbaráttunnar, sem hafin var fyrir alvöru í nafni
þjóðernishyggju. Í júní 1849 fann þáverandi kon-
ungur Danmerkur sig knúinn til að ganga til móts
við kröfur frjálslyndra og þjóðernissinna og sam-
þykkti stjórnarskrá fyrir Danmörku og þar með
einnig Ísland. Afnam stjórnarskráin einveldið og
kom á stjórnarskrárbundinni konungsstjórn þar
sem völd yfir nokkrum mikilvægum málaflokkum
voru færð til þjóðkjörins þings.
Hleypti illu blóði í Íslendinga
Þessi gjörningur hleypti illu blóði í Íslendinga
enda þýddi hann í raun skerta sjálfsstjórn nýlend-
unnar. Fram að þessu höfðu íslenskir embættis-
menn leynt og ljóst ráðið því sem þeir vildu ráða í
málefnum landsins en nú var það komið undir
stjórn þings sem Íslendingar höfðu engin áhrif á.
Á þjóðfundinum 1851 settu Íslendingar fram
kröfu um sjálfsstjórn en Danir voru ófúsir að
ganga að þeim á þeim forsendum að það gæti
skaðað hagsmuni Dana í Slésvík og Holtsetalandi.
En þegar þau héruð voru limuð inn í Prússland
árið 1867 sköpuðust nýjar aðstæður. Stöðulögin
voru sett 1871 og mæltu fyrir um samband Íslands
og Danmerkur.
Kristján IX., þáverandi konungur Danmerkur,
kom til landsins 1874 til að vera viðstaddur há-
tíðahöld í tilefni af þúsund ára afmæli Íslands-
byggðar. Við það tækifæri gaf hann Íslendingum
sérstaka stjórnarskrá eins og þeir höfðu krafist.
Var hún kölluð „Stjórnarskrá um hin sérstaklegu
málefni Íslands“ og er að stofni til sú sama og nú-
gildandi stjórnarskrá.
Með sambandslögunum 1918 varð Ísland full-
valda ríki og árið 1920 fékk landið nýja stjórnar-
skrá til að endurspegla þær miklu breytingar sem
höfðu orðið á stjórnskipun þess. Sú stjórnarskrá
var kölluð „Stjórnarskrá konungsríkisins Ís-
lands“.
Snemma árs 1944 samþykkti Alþingi að fella
niður sambandslögin og samþykkti nýja stjórnar-
skrá auk þess að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu
um hvort tveggja. Í maí sama ár var gengið til
kosninga og var kjörsókn 98%. Álitið var á einn
veg, 97% greiddu atkvæði með sambandsslitum
og 95% samþykktu lýðveldisstjórnarskrána.
Þann 17. júní 1944 kom Alþingi svo saman á
Þingvöllum þar sem lýst var yfir gildistöku
stjórnarskrárinnar og stofnun lýðveldis.
Kristján IX með stjórnarskrána fyrir framan stjórnarráðið í Reykjavík.
Morgunblaðið/Kristinn
Lög sem öll önnur
lög verða að hlíta
Stjórnarskrá lýðveldisins Ís-
lands á sér merkilega sögu
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Lýðveldið stofnað á Þingvöllum 17. júní 1944.
Stjórnarskrá lýðveldisins Ís-
lands er í áttatíu greinum í sjö
köflum sem hver tekur á ólík-
um þáttum stjórnskipunar-
innar. Í stjórnarskránni er
stjórnskipan landsins ákveðin
og ýmis grundvallarréttindi
borgaranna vernduð. Í fyrsta
kafla er kveðið á um að Ísland
eigi að vera lýðveldi.
Sveinn Björnsson, fyrsti forseti ís-
lands, undirritar embættiseið.
Sjö kaflar og
áttatíu greinar
- nýr auglýsingamiðill
Nýtt og betra atvinnublað
alla fimmtudaga
Blaðinu er dreift í 85.000 eintökum
á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu
Sendu pöntun á finnur@mbl.is
eða hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í blaðinu og á mbl.is
ERATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?