SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Side 9
Bókaútgá fan Opna · Sk ipho l t i 50b · 105 Reyk j av í k · s ím i 578 9080 · www.opna . i s
Horft út í heim
Heimsreisa bragðlaukanna
Meistarakokkurinn Gordon Ramsay er í
miklum metum, ekki hvað síst vegna þess
hversu auðvelt er að fylgja uppskriftum hans.
Í þessari stóru og glæsilegu bók fá lesendur
að kynnast lykilréttum úr matarmenningu
Mið-Austurlanda, Taílands, Bandaríkjanna,
Kína, Indlands, Spánar, Frakklands, Ítalíu,
Grikklands og Bretlands.
Þessi bók á erindi í öll íslensk eldhús.
Heimsmynd tungumálanna
Tungumál veraldar segja lifandi menningar-
sögu. Í þessari glæstu bók er boðið til mikillar
reisu, þar sem lesendur kynnast eitt þúsund
tungumálum um veröld víða. Lýst er bakgrunni
þeirra, sögu, tengslum við önnur mál og
sérkennum. Með hjálp fjölbreytilegra ljós-
mynda, skýringarmynda og landakorta
opnast heillandi veröld - aðgengileg og
umfram allt bráðskemmtileg.
Kærleikur og von
Trú - Mannfólkið andspænis guði sínum er
einstæð bók sem staðfestir rækilega að
hjörtum mannanna svipar saman, þó þeir
dreifi sér vítt um jarðarkringluna og
aðhyllist ólík trúarbrögð.
Í fimmtán ár ferðaðist listaljósmyndarinn Ken
Opprann um heiminn og myndaði fólk á fundi
við guð sinn. Hann var viðstaddur ótal
trúarhátíðir helstu trúarbragða heims, vitjaði
helgistaða og sótti fólk heim. Myndirnar bera
vitni falslausri einlægni og þrotlausri leit að
þeim mætti sem er æðri öllum skilningi.
Auk einstæðra ljósmynda geymir bókin glögga
umfjöllun um fimm helstu trúarbrögð
heimsins; Hindúasið, Kristindóm, Gyðingdóm,
Búddasið og Íslam.