SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Page 9

SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Page 9
Bókaútgá fan Opna · Sk ipho l t i 50b · 105 Reyk j av í k · s ím i 578 9080 · www.opna . i s Horft út í heim Heimsreisa bragðlaukanna Meistarakokkurinn Gordon Ramsay er í miklum metum, ekki hvað síst vegna þess hversu auðvelt er að fylgja uppskriftum hans. Í þessari stóru og glæsilegu bók fá lesendur að kynnast lykilréttum úr matarmenningu Mið-Austurlanda, Taílands, Bandaríkjanna, Kína, Indlands, Spánar, Frakklands, Ítalíu, Grikklands og Bretlands. Þessi bók á erindi í öll íslensk eldhús. Heimsmynd tungumálanna Tungumál veraldar segja lifandi menningar- sögu. Í þessari glæstu bók er boðið til mikillar reisu, þar sem lesendur kynnast eitt þúsund tungumálum um veröld víða. Lýst er bakgrunni þeirra, sögu, tengslum við önnur mál og sérkennum. Með hjálp fjölbreytilegra ljós- mynda, skýringarmynda og landakorta opnast heillandi veröld - aðgengileg og umfram allt bráðskemmtileg. Kærleikur og von Trú - Mannfólkið andspænis guði sínum er einstæð bók sem staðfestir rækilega að hjörtum mannanna svipar saman, þó þeir dreifi sér vítt um jarðarkringluna og aðhyllist ólík trúarbrögð. Í fimmtán ár ferðaðist listaljósmyndarinn Ken Opprann um heiminn og myndaði fólk á fundi við guð sinn. Hann var viðstaddur ótal trúarhátíðir helstu trúarbragða heims, vitjaði helgistaða og sótti fólk heim. Myndirnar bera vitni falslausri einlægni og þrotlausri leit að þeim mætti sem er æðri öllum skilningi. Auk einstæðra ljósmynda geymir bókin glögga umfjöllun um fimm helstu trúarbrögð heimsins; Hindúasið, Kristindóm, Gyðingdóm, Búddasið og Íslam.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.