SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Page 20

SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Page 20
20 28. nóvember 2010 A ð mörgu var gaman í leiknum, en mest skemmtun þótti mörgum, er kjölturakki einn- ar reykvíkskrar frúar komst í leikinn. Var hann hinn torveldasti við- ureignar og ærið snar í snúningum. Fékk hann að lokum tekið knöttinn af öllum mótstöðumönnum sínum. En með því að enginn vissi um, með hverjum hann vildi vera, þá réðust báðir flokkar á seppa, og fengu að lokum handsamað hann. Var hann síðan teymdur út af leiksviðinu við mikinn orðstír.“ Þessi kostulega saga frá kappleik KR og Fram sumarið 1913 verður í fyrra bindi sögu Íslandsmótsins í knattspyrnu eftir Spark í spegli tímans Íslandsmótið í knattspyrnu fer fram í hundr- aðasta skipti næsta sumar. Af því tilefni kemur saga mótsins frá upphafi út í tveimur bindum á næsta ári, skráð af Sigmundi Ó. Steinarssyni. Hann hefur lagst í víðtæka heimildaöflun til að gefa sem gleggsta mynd af þessari litríku sögu. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigmundur hefur kynnt sér feril margra afreksmanna við ritun bókarinnar en fáir komast að hans dómi með tærnar þar sem Tryggvi Magnússon (1896-1943), fyr- irliði Fram, hafði hælana en hann varð tíu sinnum Ís- landsmeistari á árunum 1913-25. Ekki nóg með það. Tryggvi var fremsti fim- leikamaður Íslands og varð tvisvar Íslandsmeistari, 1929 og 1930. Hann var frjálsíþróttamaður góður og um tíma slyngasti skíðamaðurinn hér á landi, auk þess sem hann stundaði skautaíþróttir. Þá var Tryggvi sundmaður góður og einn besti dýf- ingamaður Íslands. Hann var mikill unnandi útivist- ar og hafði gaman af göngum – var einn af stofn- endum Skátahreyfingarinnar á Íslandi 1910 og Ferðafélags Íslands 1927. Tryggvi var einn af stofn- endum Skíðafélags Reykjavíkur 1914 og einn af stofnendum Nafnlausa félagsins – félags íslenskra göngugarpa, 1916. Þá var hann virkur þátttakandi í Skotfélagi Reykjavíkur. Tryggvi var listfengur mjög, teiknaði, málaði og tók ljósmyndir. Þá hafði hann leikaragáfu nokkra og lék um tíma í mörgum gamanleikjum. Pétur Jón Hoffmann, bróðir Tryggva, varð níu sinnum Ís- landsmeistari í knattspyrnu á árunum 1913-1923. Ólafur Magnússon, konunglegur hirðljósmyndari, varð meist- ari fjórum sinnum 1913-1916 og fjórði bróðirinn, Karl, var í meistaraliði Fram 1913 og 1914. Tífaldur meistari Tryggvi Magnússon hlaðinn verðlauna- peningum. Liðsmyndin af Íslandsmeisturum Vals 1933 var tekin við óvenjulegar aðstæður. Þannig var að Jón Karel Kristbjörnsson markvörður slasaðist lífshættulega í sam- stuði í úrslitaleiknum gegn KR, sem Val- ur vann 6:3, og lést af sárum sínum á sjúkrahúsi fjórum dögum síðar. Í virðing- arskyni við hann var skilið eftir rými fyrir miðri mynd og gömul mynd af Jóni Karel, frá því Valur varð Íslandsmeistari 1930, sett inn á nýju liðsmyndina, svo sem sjá má hér að ofan. Getur Sigmundur sér þess til að hér sé á ferðinni fyrsta „fótó- sjoppaða“ mynd Íslandssögunnar. Jón Karel, sem var aðeins 21 árs, meiddist innvortis og fékk lífhimnubólgu. Skurðaðgerð náði ekki að bjarga lífi hans. Einn annar íslenskur knattspyrnumaður hefur látist af völdum áverka sem hann hlaut í kappleik, Ármenningurinn Haukur Birgir Hauksson árið 1973. Íslandsmeistarar Vals 1933 með og án Jóns Karels heitins sem lést af völdum áverka sem hann hlaut í úrslitaleiknum. Aftari röð frá vinstri: Hrólfur Benediktsson, Hólmgeir Jónsson, Frímann Helgason, Ólafur Sigurðsson, Reidar Sörensen, þjálfari, Jón Eiríksson, Óskar Jóns- son, Agnar Breiðfjörð, Gísli Kjærnested. Fremri röð: Grímar Jónsson, Hermann Her- mannsson, Jón Karel Kristbjörnsson, Jóhannes Bergsteinsson og Magnús Bergsteinsson Látinn maður með á liðsmynd

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.