SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Page 21

SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Page 21
28. nóvember 2010 21 Sigmund Ó. Steinarsson íþróttafrétta- mann sem kemur út í vor, og gefur víst ágæta mynd af bókinni, að sögn höf- undar. „Ég leitast við að lýsa umhverfinu og andrúmsloftinu á hverjum tíma,“ segir hann. „Þetta verða ekki strípaðar leiklýs- ingar, heldur miklu frekar sögur af fólki. Fólkinu sem gerði knattspyrnu jafn vin- sæla og raun ber vitni. Ég rek sögu vall- anna, fjalla um þróun í klæðaburði, skó- tískuna og þar fram eftir götunum. Hika ekki við að hoppa út af vellinum og upp í áhorfendapallana. Einnig verður farið í saumana á leikkerfunum og hvernig þau hafa breyst í tímans rás, svo dæmi séu tekin.“ Sá er gætir markhliðs Sigmundur dregur úr pússi sínu bók með fyrstu knattspyrnulögunum sem ÍR gaf út árið 1907. 17. grein laga þessara er svo- hljóðandi: „Þá er skipað er mönnum til leiks, heita 5 hinir fremstu forverðir, 3 hinir næstu miðmenn og 2 hinir öftustu bakverðir, en markvörður sá er gætir markhliðs.“ Nei, þetta er ekki prentvilla. Það var í raun og veru gert ráð fyrir fimm mönn- um í sókn. Eins gott að sýna Roberto Mancini þetta ekki á fastandi maga. Að sögn Sigmundar er það útbreiddur misskilningur að Bjarni Jónsson frá Vogi hafi fyrstur notað orðið knattspyrna á prenti 1910. Í téðu riti þeirra ÍR-inga frá 1907 stendur orðið knattspyrna nefnilega skýrum stöfum á kápunni. Í bókinni er orðalag um margt fram- andi. Þannig er talað um „endurvakningu leiks“, þegar við myndum einfaldlega segja „miðja“, og vítateigur aldrei nefnd- ur annað en „vítisvöllur“. Það hefur verið óskemmtileg að falla á þeim velli. Alls um 800 blaðsíður Tilefni skrifa Sigmundar er að Íslands- mótið í knattspyrnu fer fram í hundr- aðasta sinn næsta sumar. Fyrsta mótið var haldið 1912. Fyrra bindi sögunnar kemur út í apríl en hið síðara í nóvember. Hvort bindi verður um 400 síður að stærð. Knattspyrnusamband Íslands annast útgáfuna en Sigmundur hefur haft frjáls- ar hendur við efnistökin. „Ég finn að mér er treyst til verksins og það er mjög þægi- legt. Ritnefnd á vegum KSÍ mun þó lesa bókina yfir og gera athugasemdir ef þurfa þykir. Við viljum hafa þetta skothelt.“ Sigmundur hefur víða leitað fanga við ritun bókarinnar. Hann hefur verið með annan fótinn á gamla Melavellinum, þar sem Þjóðarbókhlaðan stendur nú, og á Borgarskjalasafninu, og lúsleitað í skrif- uðum heimildum. Auk þess hefur hann tekið fjölda viðtala við gamlar kempur og afkomendur genginna sparkenda. Hann segir sér hvarvetna hafa verið afar vel tekið og fjölmargir verið boðnir og búnir að greiða götu sína. Ein fullorðin kona lét sig til að mynda ekki muna um að pússa upp verðlaunasafn föður síns fyrir myndatöku. „Án aðstoðar þessa fólk hefði þessi bók aldrei orðið að veruleika. Það er búið að fylla inn í margar eyður.“ Sigmundur segir stórmerkilegar heim- ildir víða að finna, til dæmis á heimilum, jafnvel án þess að fólk geri sér nokkra grein fyrir því. „Þá er ég að tala um dag- bækur leikmanna og annað sem þeir hafa hripað hjá sér. Fólk áttar sig ekki alltaf á því að þarna geta verið æðisleg verðmæti á ferðinni, jafnvel á leið í glötun. Það hafa margir bent mér á að ég sé að bjarga menningarverðmætum og eflaust er mikið til í því.“ Blaðað í minningargreinum Eins og gefur að skilja hefur heim- ildavinnan verið tímafrek en ekki er í öll- um tilvikum auðvelt að hafa uppi á ætt- ingjum látinna leikmanna. „Það er mismiklar upplýsingar hjá knattspyrnu- félögunum að hafa og oftar en ekki þurfti ég að leita í minningargreinum til að finna aðstandendur. Þetta hefur verið geysimikill eltingarleikur.“ Sigmundur hefur ekki aðeins tekið við upplýsingum frá niðjum leikmanna, hann hefur líka miðlað þeim. „Það er mjög ánægjulegt þegar ég get upplýst af- komendur um eitthvað. Fyllt út í mynd- ina af afrekum föður eða afa á vellinum. Einn afkomanda gat ég frætt um að faðir hans hefði bara leikið einn leik eitt sum- arið vegna þess að hann var við landbún- aðarstörf í Danmörku. Ég fann meira að segja mynd, þar sem fram kom á bak- hliðinni hvar hann hafði nákvæmlega verið.“ Bækurnar verða ríkulega mynd- skreyttar og grafíkin hvergi spöruð. „Það er mín reynsla úr íþróttafréttunum að texti, grafík og ljósmyndir vinni vel sam- an og þannig byggi ég bókina upp,“ segir höfundurinn sem hannar útlit bók- arinnar sjálfur. Hann leggur mikla áherslu á að komast yfir frumgerðir af ljósmyndum og hefur orðið talsvert ágengt. „Það hafa margir farið að gramsa fyrir mig og kann ég þeim vitaskuld bestu þakkir fyrir ómakið. Það skiptir sköpum að hafa aðgang að frum- myndunum enda eru myndir úr gömlum blöðum misskýrar þar sem þær voru prentaðar með blýi.“ Sigmundur Ó. Steinarsson hefur fjallað um íslenska knattspyrnu í fjóra áratugi í dagblöðum. Nú er röðin komin að bók. Morgunblaðið/RAX ’ Margt kyndugt hefur komið upp úr krafs- inu. Til dæmis hefur Sigmundur fundið heim- ildir fyrir því að a.m.k. tveir menn hafi varið markið með gleraugu á nefinu. Sigmund Ó. Steinarsson þarf ekki að kynna fyrir áhugamönn- um um knattspyrnu. Hann starfaði um árabil sem íþrótta- fréttamaður á Tímanum, Vísi og Morgunblaðinu en und- anfarin tvö og hálft ár hefur hann helgað sig ritun sögu Íslandsmótsins. „Ég hef safnað upplýsingum allan minn starfsferil og komið mér upp ágætum grunni. Undanfarin tvö og hálft ár hef ég verið að byggja ofan á þann grunn og reisa verkið við,“ segir hann. Sigmundur fæddist á Grettisgötunni í Reykjavík árið 1948, þar sem vígi Fram og Vals voru á þeim tíma. Hann gekk ungur í Fram en tengist fleiri félögum traustum bönd- um. „Faðir minn, Steinar Þorsteinsson, spilaði með KR og lék fyrsta leikinn fimm dögum áður en ég kom í heiminn. Um haustið fagnaði hann sigri á Íslandsmótinu, þannig að segja má að ég hafi fengið meistaratitilinn í vöggugjöf,“ segir Sig- mundur kíminn. Faðir hans varð ferfaldur Íslandsmeistari með KR. Afi Sigmundar, Ragnar Lárusson, var lengi formaður Fram, þannig að það hefur verið fjör við kvöldverðarborðið! Þá má geta þess að Sigmundur bjó um tíma í Þróttarhverf- inu og nú heldur hann heimili steinsnar frá Víkinni. „Ég hef því komið nálægt flestum gömlu félögunum í Reykjavík.“ Sigmundur fór oft út fyrir bæjarmörkin – kynntist til dæmis eiginkonu sinni, Maríu Haraldsdóttur frá Keflavík, í Glasgow þegar hópferð var farin með hinu sigursæla liði Keflavíkur á Evrópuleik gegn Hibernian í Skotlandi. Var um stuttan tíma eftir það kallaður í gamni – af knattspyrnumönnum í Reykja- vík; tengdasonur Keflavíkurliðsins. Magnús, bróðir Maríu, varð tvisvar Íslandsmeistari með Keflavík. Fékk meistaratitil í vöggugjöf

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.