SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Side 23

SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Side 23
28. nóvember 2010 23 M eira er sagt frá átökunum í Afganistan og Írak en skálmöldinni í norðanverðu Mexíkó þótt mannfallið sé mun meira í síðasttalda landinu. Talið er að nærri 30 þúsund manns hafa fallið síðustu fjögur árin, þar af liðlega þúsund börn og unglingar. Þarna berjast hópar fíkni- efnasala innbyrðis og við lögreglu og hermenn og mikið er í húfi. Yfir 70% af öllum fíkniefnum sem berast að utan til Bandaríkjanna er smyglað frá Mexíkó, giskað er á að veltan á hverju ári sé á milli 13 og 43 milljarðar dollara og hagnaðurinn geysimikill. Nákvæm- ari tölur um veltuna eru eðlilega ekki á boðstólum. Heimildarmenn segja að í reynd ráði fíkniefnasalar lögum og lofum í sumum borgum Mexíkó, hefðbundin og löglega kjörin stjórnvöld séu nánast utangarðs. Einna mest hefur því gengið á í borgum eins og Ciudad Juarez við landamærin í norðri, hún er eins konar tvíburaborg El Paso í Texas. Saklausir borgarar lenda hvað eftir annað í eldlínunni og eru orðnir langþreyttir á ástand- inu, þúsundir manna hafa hreinlega flúið heimili sín. Glæpagengin fá oft unglinga til að gerast leigumorðingjar. Öðru hverju eru gerðar tilviljanakenndar skotárásir á fólk á almannafæri, háls- höggvin lík finnast á fjölförnum stöðum, stundum hengd upp á brúm. Markmiðið er að ógna, kæfa allt viðnám í fæðingu. Smygla fíkniefnum og fólki Smygl á fólki er tekjulind sem getur líka gefið mikið í aðra hönd. Fjöldi Mexíkóa freistar gæfunnar og reynir að komast til Banda- ríkjanna, ár hvert tekst einnig hundruðum fátækra íbúa frá öðrum löndum Rómönsku Ameríku að komast alla leið að landamær- unum. Þeir kaupa sér síðan aðstoð Mexíkóa sem lofa að smygla þeim yfir fyrir greiðslu. En fjöldagrafir benda til þess að sumir þeirra fari með fólkið út í óbyggðir og myrði það en hirði féð. Eru glæpagengin að sigra, er Mexíkó að hrynja? Ekki segja ráða- menn landsins það og varast ber að ýkja vandann þótt slæmur sé. Tölur sýna að ástandið er slæmt í níu af alls 31 sambandsríki Mexíkó. En morðtíðni í landinu í heild er mun lægri en í mörgum öðrum. Hún er nú um 14 af hverjum 100 þúsundum, í Brasilíu er hún t.d. 22. Og tíðnin í Mexíkóborg er mun lægri en í höfuðborg Bandaríkjanna, Washington. Hvort tölur af þessu tagi eru mikil huggun fyrir íbúa Ciudad Juarez er önnur saga. Nýlega fundust um 500 metra jarð- göng undir landamærin við Tijuana. Um þau er smyglað fíkniefnum til Bandaríkjanna en peningum, gróð- anum af sölunni, suður yfir til Mexíkó. Milli tveggja elda í gengjastríðum Nokkur eiturlyfjasamtök í norðanverðu Mexíkó berjast innbyrðis um völd og milljarðamarkaðina í Bandaríkjunum, einnig gegn her og lögreglu. Tugþús- undir manna hafa fallið síðustu árin. Saklausir óbreyttir borgarar eru oft skotskífur og örvæntingin fer vaxandi. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Grátandi aðstandendur í Ciudad Juarez í október. 13 féllu og um 20 særðust þeg- ar óþekktir menn létu byssukúlum rigna yfir gesti í afmælisveislu. Mexíkóskur hermaður miðar byssu sinni á óþekktan ofbeldismann í borginni Tijuana, rétt sunnan við San Diego í Bandaríkjunum, í lok oktober. Minnst einn maður féll í bardaganum, að sögn fjölmiðla í borginni. Lögreglumaður í Tihuatlan í Veracruz- ríki með mann sem sakaður var um aðild að morði á svissneskum starfs- manni olíufélags í nóvember. Tugþúsundir hermanna taka þátt í baráttunni við eiturlyfjagengin, hér eru konur úr Mexíkóher á æfingu. Reuters

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.