SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Side 26

SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Side 26
26 28. nóvember 2010 S núningastrákur í sveit í Borg- arfirði um miðja 20. öldina upplifði sterkt það blómaskeið í íslenzkum landbúnaði sem þá var að hefjast. Ár hvert voru nýir mýr- arflákar ræstir fram, nýir túnblettir urðu til, girðingar settar upp, nýjar byggingar risu, íbúðarhús, fjós og hlöður, súrheys- turnar byggðir með nýrri tækni, allt var á fleygiferð fram á við og upp á við. Snúningastrákurinn horfði til austurs, til Oks og Þórisjökuls, Skjaldbreiðar og Hlöðufells (í góðu skyggni) og sá fyrir sér túnin stækka og stækka, kúnum fjölga og draumana rætast. Svo kom stöðnun. Túnin hættu að stækka. Fénu hætti að fjölga. Og smátt og smátt varð hnignun sveitanna í Borg- arfirði augljós. Núna í haust var svo fátt fé í Rauðsgilsrétt að segja má, að þar hafi varla verið réttarhæft. Þetta er saga sveitanna um allt land á síðustu 60 ár- um. Og þó. Það eru ljósglætur. Fyrir gamlan fjósamann frá Hæli í Flókadal í Borgarfirði eru nýju fjósin undraveröld. Og kornræktin gefur von um betri tíð og að sveitirnar rísi á ný. Hákon Sigurgrímsson, bóndasonur frá Holti í Stokkseyrarhreppi, gerir svo ít- arlega grein fyrir bakgrunni þeirrar þró- unar, sem snúningastrákurinn upplifði með ofangreindum hætti að ég leyfi mér að fullyrða að hvergi er í rituðu máli hægt að fá jafn skýra yfirsýn yfir þróun íslenzks landbúnaðar frá því fyrir miðja 20. öldina og fram á okkar dag, og í ævi- minningum hans, sem nú eru komnar út en bókin heitir: Svo þú ert þessi Hákon! Kynslóð okkar Hákons náði að kynn- ast síðustu leifunum af gamla Íslandi. Við heyjuðum á engjum, slógum með orfi og ljá, fluttum baggana heim á hestum, handmjólkuðum (þótt hann geri lítið úr færni sinni í þeim efnum). Lýsingar Há- kons á æskuumhverfi hans á Suðurlandi vekja upp hlýjar minningar úr Flókadal. Þetta er veröld sem var og ómetanlegt að hafa kynnzt henni og eiga nú svo vand- aða lýsingu á henni á bók. Hákon er líka fulltrúi kynslóðar, sem átti sér nýjar vonir og gat vænzt meira af lífinu en foreldrar, afar og ömmur. Bóndasonurinn, sem átti sér þann draum að verða alvöru píanóleikari og fékk tækifæri til að verða nemandi Árna Kristjánssonar, sem mér var kennt í æsku, að væri mesti píanóleikari okkar Íslendinga. En horfðist í augu við þann veruleika, að það væri sennilega ekki mjög hagnýtt nám og fékk útrás fyrir tónlistaráhuga sinn í Pólýfónkór Ingólfs heitins Guðbrandssonar, sem er eitt mesta menningarafrek sem unnið var á síðari hluta 20. aldar. Draumurinn er hins vegar til marks um það menn- ingarlega umhverfi sem Hákon ólzt upp í og einkenndi mörg sveitaheimili. Auðvitað var ekki um annað að ræða á þessum tíma en draga úr framleiðslu landbúnaðarafurða sem var orðin veru- lega umfram innanlandsneyzlu. Og alltof dýrt að greiða bætur með útflutningi eins og gert var um skeið. Þetta var sárs- aukafullt fyrir bændur og ekki við öðru að búast en veruleg átök yrðu innan samtaka þeirra og á hinum pólitíska vettvangi. Engu að síður kemur á óvart hversu djúpstæð þessi átök hafa verið meðal forystumanna bænda sjálfra og innan Framsóknarflokksins. Lýsingar Hákons – sem gegndi lykilhlutverki í samtökum bænda – á bændafundum víðs vegar um land gefa mikilvæga inn- sýn í viðhorf bænda sjálfra til stöðugra og ítrekaðra ótíðinda en um leið sýna þær að þrátt fyrir sterka forystumenn hafa lýðræðisleg vinnubrögð verið í heiðri höfð. Þessi átök, sem standa meira og minna í þrjá áratugi, hafa reynt á þol- rif þeirra sem í þessu stóðu. Hákon Sig- urgrímsson segir þessa sögu af hrein- skilni, líka þegar spjótin beinast að honum. Það er ekki hægt að starfa á vettvangi mikilla átaka án þess að verða fyrir aðkasti. Þótt rætnin sé of oft á ferð- inni í stað málefnalegra skoðanaskipta. Þessi mikla aðlögun að gjörbreyttum aðstæðum hefur verið erfið fyrir bændur og fjölskyldur þeirra. Þó má ekki gleyma því að fleiri atvinnugreinar lentu í því sama. Á árunum eftir heimsstyrjöldina síðari byggðist hér upp margvíslegur iðnaður í skjóli þeirra innflutningshafta, sem voru við lýði fram á Viðreisn- artímabilið. Þegar þeim höftum var af- létt og þegar Ísland gekk síðar í EFTA, Fríverzlunarsamtök Evrópu, var fót- unum kippt undan þeim iðnaði og fjár- festingu þeirra og rekstri, sem höfðu byggt upp ýmiss konar framleiðslu í ljósi þeirra aðstæðna, sem þá ríktu. Þetta fólk varð fyrir áfalli sem á margan hátt er sambærilegt við það sem gerðist í land- búnaði en minna hefur verið um fjallað. Karlmannaföt, skyrtur og skór eru ekki lengur framleidd á Íslandi svo dæmi sé nefnt. Sviptingar í lífi þjóða eru ekki minni en í lífi mannfólksins sjálfs. Það er lítið vit í því að búa á þessari eyju og eiga allt undir innflutningi matvæla frá öðrum löndum. Við erum þjóð sem lifir á því að veiða, vinna og selja fisk og nýta kosti landsins með margvíslegum hætti. Á árinu 1905 fluttum við út 167.379 rjúpur (Morgunblaðið 5. desember 1913). Þótt rjúpnaútflutningur sé aflagður er staðan sú í matvælaframleiðslu í heiminum að vatnsskortur háir henni mjög sem leiðir til hækkandi matvælaverðs. Við höfum nóg vatn og við gætum framleitt mun meira af landbúnaðarafurðum ef mark- aðsaðstæður breyttust. Það er ekki úti- lokað að það eigi eftir að gerast. Þess vegna eigum við að hlúa að íslenzkum landbúnaði. Framundan getur verið nýtt blómaskeið, ekki sízt í krafti kornræktar og tengdrar atvinnustarfsemi. Með æviminningum sínum hefur Há- kon Sigurgrímsson lagt grundvöll að efnislegum og uppbyggilegum umræðum um framtíð íslenzks landbúnaðar. Draumar snúningastráks og átök í landbúnaði Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@mbl.is A ð morgni þessa dags fyrir sextán árum skildu fangaverðir í Columbia Correctional- fangelsinu í Wisconsin þrjá fanga eftir eina í búningsklefa tækjasalarins. Fyrir þeim lá að þrífa klefann. Þau þrif fóru fram með öðrum hætti en ætlast var til því þegar að var komið, tuttugu mínútum síðar, hafði einn fanganna, Christopher Scarver, barið hina tvo af alefli í höfuðið með járnstöng, sem hann hafði stolið úr líkamsræktarsalnum, með þeim afleið- ingum að báðir létust af sárum sínum. Annar hinna látnu var Jeffrey Dahmer, alræmdur fjöldamorðingi, sem afplánaði 936 ára dóm í fangelsinu. Hinn var Jesse Anderson sem sat inni fyrir morðið á eiginkonu sinni. Við rannsókn málsins var fangavörðunum legið á hálsi fyrir að skilja mennina þrjá eftir eina. Scarver, sem glímdi við geðræn vandamál og ofbeldishneigð, hafði hlotið dóm fyrir morð með aftökuívafi. Hann er svartur og fyrir vikið átti fangavörðunum að vera ljóst að hon- um væri í nöp við Dahmer, en flest fórnarlamba hans voru af afrískum eða asískum uppruna, og Anderson, sem hafði reynt að klína morðinu á eiginkonu sinni á tvo blökkumenn sem ekki reyndust vera til. Heiftin í verknaðinum var algjör og Dahmer dó á leið á sjúkrahús, Anderson tveimur dögum síðar. Spurður hvers vegna hann hefði gripið til þessa örþrifaráðs svar- aði Scarver: „Guð sagði mér að gera þetta.“ Á þessum tíma var Scarver víst sannfærður um að hann væri einkasonur almættisins. Handan rimlanna greindi menn á um hvort Scarver hefði unnið gott verk eða slæmt. Sumir fögnuðu dauða Dahmers, þeirra á meðal aðstandendur flestra fórn- arlamba hans, meðan aðrir bentu á, að morð væri alltaf morð. Yfirvöld dómsmála í Bandaríkjunum vöruðu menn við því að bera Scarver á höndum sér. Jeffrey Dahmer, sem var 34 ára þegar hann lést, er einn alræmdasti fjöldamorðinginn í sögu Bandaríkjanna en heimsbyggðin var slegin óhug þegar hann var tekinn höndum á heimili sínu í Milwaukee sumarið 1991. Slíkur var hryllingurinn. Að minnsta kosti sautján menn á aldrinum fjórtán til 36 ára lágu í valnum og líkamsleifar voru á víð og dreif í íbúðinni. Mannshöfuð í ísskápnum, hjarta í frystikistunni og þar fram eftir götunum. Lyktin í íbúðinni var að sögn óbærileg. Dahmer var bæði grun- aður um mannát og að svívirða lík fórnarlamba sinna. Ekkert sannaðist þó í þeim efnum. Fyrsta morðið sem hann hlaut dóm fyrir framdi Dah- mer á unglingsaldri, 1978. Níu ár liðu fram að næsta morði en eftir það héldu Dahmer engin bönd, tólf af fórnarlömbunum sautján (sem vitað er um) féllu á bilinu júní 1990 til júlí 1991 að Dahmer náðist. Tildrögin voru yfirleitt með svipuðum hætti, Dahmer narraði mennina heim með sér, þar sem þeir nutu ásta. Að því loknu réði hann þeim bana. Spurður hvers vegna hann hefði myrt fyrsta fórnarlambið, Stephen Hicks, svaraði Dahmer: „Vegna þess að ég vildi ekki að hann færi heim.“ Morðæðinu lauk 22. júlí 1991 þegar maður að nafni Tracy Edwards slapp við illan leik úr klóm Dahmers á heimili hans og gerði lögreglu aðvart. Þegar að var gáð kom andstyggðin í ljós. Dahmer reyndi ekki að flýja af hólmi, var handtekinn á heimili sínu. Dahmer hallaði sér að trúnni í fangelsinu, þar sem hann hlaut meðal annars skírn. Presturinn sem átti vikulega fundi með honum, séra Roy Ratcliff, sagði eftir á að Dahmer hefði haft fjölmargs að spyrja um dauðann og viljað vita hvort hann væri að syndga gegn Guði með því að halda áfram að lifa eftir þessi ódæðisverk. Móðir Dahmers, Joyce, sagði hann ekki hafa óttast dauðann – jafnvel sóst eftir honum. Hún stóð alltaf við bakið á syni sínum og fræg eru ummæli hennar þegar hann var allur: „Eru allir ánægðir núna þegar búið er að berja hann til bana? Nægir það fólki?“ orri@mbl.is Dahmer barinn til bana Jeffrey Dahmer, fjöldamorðinginn ískyggilegi, fyrir dómi. ’ Að minnsta kosti sautján menn á aldrinum fjórtán til 36 ára lágu í valnum og líkamsleifar voru á víð og dreif í íbúðinni. Christopher Scarver banaði Dahmer bak við lás og slá. Á þessum degi 28. nóvember 1994

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.