SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Qupperneq 49

SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Qupperneq 49
28. nóvember 2010 49 meðvitað eftir að skapa? „Ég byrjaði að skrifa af því mér fannst það gaman. Ég sá ekki fyrir mér að þjóð- inni væri lífsnauðsynlegt að heyra hvaða skoðanir ég hefði á hinum og þessum mál- um. Ég sá bara fyrir mér eitthvað sem mér fannst skemmtilegt, vildi koma því á blað og vissi að það gæti falið í sér eitthvað meira en yfirborðskenndan húmor. Þetta er eins og svo margt í lífinu. Tökum sem dæmi: Maður getur haldið ræðu á alvar- legri ráðstefnu en það mun aldrei saka að sú ræða feli í sér einhver skemmtilegheit því það sem maður er að segja er miklu líklegra til að fá meiri og jákvæðari athygli ef það er sett fram á skemmtilegan hátt en ef maður flytur boðskapinn steinrunninn með samanbitnar tennur. En þetta gerir maður ekki nema manni líði vel með það. Ég held að það sé ekki hægt að setjast nið- ur og segja: Nú ætla ég að verða óskaplega skemmtilegur.“ Kosta skrifin áreynslu eða ertu fljótur að skrifa? „Ég sest yfirleitt ekki niður til að skrifa án þess að vera með nokkuð mótaða hug- mynd um söguna. Hugmyndin er ekki fullunnin að öllu leyti en grunn- hugmyndin er mótuð. Ég skrifa venjulegt mál af því þar eru rætur mínar, bæði í uppeldinu og þeirri vinnu sem ég vann sem ungur maður og langt fram eftir. Þannig að þegar fólk les sögur mínar þarf það ekki að fletta miklu upp til að skilja það sem skrifað er.“ Hef lært þó nokkuð frá síðustu bók Þú hefur fengið góða dóma fyrir bæði smásagnasöfnin. Kvíðirðu ekki dómum eins og langflestir rithöfundar? „Jú, ég dauðkvíði þeim. Þegar ég gaf út fyrri bókina kveið ég dómum reyndar ekkert óskaplega. Ég vildi bara komast skammlaust frá bókinni og vonaði að hún þætti í lagi. Ég fékk svo miklu betri dóma en ég bjóst við og varð auðvitað mjög ánægður með það. Núna hafði ég meiri áhyggjur af dómum en þeir hafa verið mjög góðir, og það gleður mig. Ég held að ég hafi lært þó nokkuð frá því ég skrifaði síðustu bók. Ég hef haft þann hátt á að leita til fólks sem hefur vit á texta og sækja til þess ráð. Þá gæti ég mín á því að setja mig ekki á of háan hest og hlusta á það sem við mig er sagt. Það er rithöfundi mjög hollt – og kannski fleirum.“ Lærirðu af því að lesa skáldskap? „Já, ég læri örugglega af því. Ég hef mikla ánægju af því að lesa og les mjög hægt enda hef ég enga sérstaka ástæðu til að flýta mér að lesa góða bók. Til hvers á maður að gera það? Ég held að maður sé alltaf að læra þegar maður les sæmilega góðar bækur. Og nú orðið áttar maður sig á því hvað er hvað í þeim efnum.“ Áttu eftirlætishöfunda? „Á árum áður hafði ég sérstakt dálæti á nafna mínum Oscar Wilde og las verk hans fram og til baka. Mér finnst Böðvar Guðmundsson góður rithöfundur og Vesturfarasögur hans eru mikið afrek. Í síðustu bókum Ólafs Hauks Símonarsonar er tónn sem höfðar mjög til mín. Þá hefur Einar Kárason auðvitað skrifað fínar bæk- ur undanfarin ár og er skemmtilegur maður og höfundur.“ Það er yfirleitt þannig að þegar tekin eru viðtöl við smásagnahöfunda eru þeir spurðir hvort þeir ætli ekki að skrifa skáldsögu. Geturðu hugsað þér að skrifa skáldsögu? „Þegar ég gaf út fyrri bókina var sagt við mig að ekki kæmi annað til greina en að næst kæmi skáldsaga. Ég taldi að þannig yrði það að vera í hinum virðulega bók- menntaheimi, maður kæmist ekki í full- orðinna manna tölu nema skrifa skáld- sögu. En viti borið fólk í kringum mig sagði að það væri ekki lífsnauðsynlegt svo ég lét slag standa öðru sinni og sendi frá mér smásagnasafn. Það er ástæðulaust að lofa einhverju um það að skrifa skáldsögu. Smásagnaformið á fullkominn rétt á sér eitt og sér og það er ekki hægt að ætlast til þess að þeir sem skrifa smásögur fari að skrifa eitthvað annað. Það getur vel verið að það gerist en ég held að ég muni komast af án þess. Þegar ég skrifaði fyrri bók mína var sagt á bókarkápu að þetta væri fyrsta bók höf- undar en ekki sú síðasta. Sumir töldu þetta hótun, aðrir loforð. Nú er best að hóta engu og lofa engu en hafa samt orð Bjarna múrara í huga þegar hann sagði: Maður getur ekki svikið meira en maður lofar.“ ’ Smásagnaformið á fullkominn rétt á sér eitt og sér og það er ekki hægt að ætlast til þess að þeir sem skrifa smásög- ur fari að skrifa eitthvað annað. Morgunblaðið/Kristinn Óskar Magnússon: „Það eru tiltekin atvik eða ým- islegt í fari fólks sem ýtir mér af stað. Langlestar sögur mínar fjalla um- venjulegt fólk.“ urkennir í bókinni að hann hafi ekki haft mikla þekkingu á málaflokknum, en það sem verra er að samstarfsmenn í ríkisstjórn, bæði í Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingunni, virðast ekki hafa treyst honum fyllilega. Björgvin lýsir því hvernig ráðuneytisstjórinn í við- skiptaráðuneytinu og aðstoðarmaður hans reyna um Glitnishelgina að fá upplýsingar með því að hringja í sam- starfsmenn í forsætisráðuneytinu og Seðlabanka og senda þeim SMS-skeyti. Þeim er ekki einu sinni svarað. Meira að segja Össur Skarphéðinsson tekur þátt í að niðurlægja vopnabróður sinn með því að halda honum fyrir utan málið. Björgvin lýsir því að hann hafi velt fyrir sér að segja af sér strax eftir þessa helgi og raunar virðist hann aftur og aftur íhuga afsögn. Það tekur hann hins vegar þrjá mánuði að taka ákvörðun. Hann virðist m.a. setja fyrir sig að eng- in fordæmi séu fyrir því að þeir „öxl- uðu ábyrgð, sem fyrir ráðuneytum fóru“. Í bókinni lýsir Björgvin með dramatískum hætti hversu mikið áfall það hafi verið fyrir hann að lögð hafi verið fram á Alþingi tillaga um að hann yrði dreginn fyrir landsdóm. Samt kemur fram í bókinni að Björg- vin lagði sjálfur til sl. vor að lands- dómur kæmi saman svo honum gæfist tækifæri til að hreinsa nafn sitt. Það sem er sláandi í frásögn Björg- vins er að íslensk stjórnvöld virðast aldrei gera sér almennilega grein fyrir heildarmyndinni. Þau átta sig ekki á vandanum fyrir hrun og þegar bank- arnir eru að hrynja virðast þau heldur ekki átta sig á stöðunni. Að því er kemur fram í bók Björgvins er það ekki fyrr en á fundi með sérfræðingum J.P. Morgan aðfaranótt 6. október sem forystumönnum ríkisstjórnarinnar er gert ljóst að íslenska bankakerfið sé fallið. Það þurfti að fá útlenda sér- fræðinga til landsins til að segja að baráttan væri töpuð. Þótt Björgvin viðurkenni mistök virðist hann oft skauta nokkuð hratt yfir hlutina. Umfjöllun hans um pen- ingamarkaðssjóðina er t.d. ekki trú- verðug. Óumdeilt er að ríkisbankarnir keyptu verðbréf af sjóðunum fyrir tugi milljarða sem síðar þurfti að afskrifa. Í lok bókarinnar lýsir Björgvin framtíðarsýn sinni og ræðir m.a. um helsta baráttumál sitt, aðild Íslands að Evrópusambandinu og upptöku evru. Athyglisvert er að Björgvin er þeirrar skoðunar að kosningin um það hvort Ísland gengur í ESB eða ekki muni ráðast úti á landi og því skrifar hann heilan kafla um ESB og landbúnaðinn. Lokakaflar bókarinnar undirstrika að hún er ekki síst skrifuð til að styrkja stöðu höfundar pólitískt, enda segir hann í viðtölum að hann hafi lært mikið og sé nú sterkari stjórn- málamaður en áður eftir að hafa geng- ið í gegnum þessa erfiðu lífsreynslu. „Þótt Björgvin viðurkenni mistök virðist hann oft skauta nokkuð hratt yfir hlutina.“ Egill Ólafsson

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.