Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.11.1965, Blaðsíða 20

Skólablaðið - 01.11.1965, Blaðsíða 20
- 46 - IV. Okkur nútímamönnum hættir stundum til að líta á sumar tilfinningar og hug- myndir sem séreign 20. aldar. Við tölum stundum um kváða, tómleika, framandleik, einmanakennd, bælingu, eins og þetta væru tilfinningar sem við hefðum fundið upp og enginn hefði fundið fyrir og því" síður skilið fyrr en Freud, Kierkegaard, Nietzsche og aðrir spámenn okkar gerðu þeim skil 1 lærðum bókum, og skáld okkar og listamenn festu hendur á þeim 1 óbrotgjörnum listaverkum : Kafka, Camus, Eliot, Antonioni, Sartre. En við nánari athugun kemur fljótt 1 ljós hversu grunnhyggið þetta sjónarmið er. Allar þessar tilfinningar tuttugustu aldar má finna 1 verkum fyrri tíma meistara ef vel er að gáð - auðvitað mótuð þjóðfélagslegum aðstæðum hvers tíma, en 1 eðli smu hinar sömu. Fyrír skemmstu var sýnd merkileg kvikmynd hér í bæ, sem sumir lesenda minna hafa ef til vill séð : La Notte, eftir Michelangelo Antonioni. Hun var reyndar ekki sýnd nema fjóra daga jprátt fyrir góða aðsókn, líklega til þess að sanna enn einu sinni þá kenningu að það se tilgangslaust að sýna hér góðar kvikmyndir, Islendingar vilji ekki sjá þær. La Notte fjallar á meistaralegan hátt um tilfinningalega örbirgð tveggja mann- eskja, hjóna sem hætt eru að elskast. Antonioni staðfestir á tjaldinu hið óbruanlega djup sem er á milli þeirra, en jafnframt þörf þeirra fyrir samband við aðra manneskju, leit þeirra eftir einhverju til þess að fylla upp 1 eigin tómleika. Skömmu eftir að ég sá þessa kvikmynd var ég að lesa yfir Hávamál og stað- næmdist þá við 95. visu : Hugr einn þat veit, er býr hjarta nær, einn er hann sér of sefa ; öng er sótt verri hveim snotrum manni en sér engu at una. Og ósjálfrátt bar ég þessa vísu saman við kvikmyndina. Og líkindin voru auðsæ. Hinir tveir helmingar vásunnar opinbera mótsögnina í eðli mannsins : annars vegar hiri óhjákvæmilega einvera og hins vegar nauðsyn félagsskapar og sambands við aðra manneskju, ástar. Og yfir hyldýpi alda og úthafs haldast þessi tvö skáld í hendur: Þjóðfélags- legar aðstæður þeirra og listrænar aðferðir eru að visu eins ólíkar og framast má verða, en engu að síður er grunntónn þeirra hinn sami. í nóvember 1965 Sverrir Hólmarsson

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.