Morgunblaðið - 27.04.2010, Blaðsíða 21
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2010
✝ Ingibjörg Heiðdalfæddist í Mýr-
arhúsaskóla á Sel-
tjarnarnesi 10. júní
1915. Hún lést á
hjúkrunardeild
Hrafnistu í Reykjavík
15. apríl 2010.
Foreldrar hennar
voru Jóhanna Sigríð-
ur Jörgensdóttir frá
Krossavík í Vopna-
firði, húsmóðir, f. 2.
júní 1890, d. 27. sept-
ember 1965, og Sig-
urður Heiðdal rithöf-
undur, skólastjóri og
forstöðumaður á Litla-Hrauni, f. í
Saurbæ á Kjalarnesi 16. júlí 1884, d.
17. febrúar 1972.
Systkini Ingibjargar sem komust
á legg eru: Vilhjálmur f. 4. ágúst
1912, d. 3. febrúar 2005, Margrét f.
16. október 1917, Gunnar f. 16.
febrúar 1926, Anna f. 25. sept-
ember 1930 og Kristjana f. 22. júlí
1933. Ingibjörg giftist 5. október
1946 Baldri Sigurðssyni f. á Eyr-
arbakka 20. janúar 1906, d. 18. nóv-
ember 1999. Foreldrar hans voru
hjónin Sigurður Guð-
mundsson kaup-
maður og síðar
bankastarfsmaður, og
Sigríður Ólafsdóttir
húsmóðir.
Æsku- og unglings-
árin átti Ingibjörg á
Stokkseyri og Eyr-
arbakka. Hún var tvo
vetur í Héraðsskól-
anum á Laugarvatni
og síðan í Samvinnu-
skólanum í Reykjavík
þaðan sem hún út-
skrifaðist árið 1936.
Eftir það vann hún í Útvegsbank-
anum um árabil og seinna við ýmis
verslunarstörf, síðast í Kjólabúð-
inni Mær við Lækjargötu. Ingibjörg
og Baldur byggðu sér hús við
Skipasund 59 þar sem þau bjuggu í
tæp 40 ár, þar til þau fluttu að
Akralandi í Reykjavík. Haustið
1994 fluttu þau að Dalbraut 20 en
frá marslokum á sl. ári bjó Ingi-
björg á Hrafnistu í Reykjavík.
Útför Ingibjargar fer fram frá
Langholtskirkju í dag, 27. apríl
2010, og hefst athöfnin kl. 13.
Elsku Imba okkar, nú hefur þú yf-
irgefið þennan heim. Okkur systk-
inunum finnst stór partur úr lífi okk-
ar farinn og viljum við nota
tækifærið til að þakka þér fyrir allt
það sem þú hefur gert fyrir okkur.
Það var blessun að fá að hafa þig í lifi
okkar og við sem fengum að þekkja
þig erum betra fólk fyrir vikið.
Mín sál, því örugg sértu,
og set á Guð þitt traust.
Hann man þig, vís þess vertu,
og verndar efalaust.
Hann mun þig miskunn krýna.
Þú mæðist litla hríð.
Þér innan skamms mun skína
úr skýjum sólin blíð.
(Björn Halldórsson)
Þú varst yndisleg kona með stórt
hjarta og húmorinn á réttum stað.
Minning þín mun lifa í hjörtum okk-
ar.
Þín
Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir,
Friðrik Ari Sigurðarson.
Í dag kveðjum við ástkæra frænku
mína, Ingibjörgu Heiðdal eða Imbu.
Imba var móðursystir mín og
næstelst í sínum systkinahópi og í
mínum huga var hún höfuð ættarinn-
ar. Það var henni fátt mikilvægara
en stórfjölskyldan og það var sama á
hverju gekk hún varði alltaf fjöl-
skylduna. Imba bjó á Stokkseyri og
Eyrarbakka frá unga aldri eða þar
til hún fór í Héraðsskólann að Laug-
arvatni. Imba hafði gaman af
skemmtunum og það voru ófáar sög-
urnar sem hún sagði frá skemmti-
legum böllum og þá sérstaklega frá
Skeggjastöðum enda hafði Imba
skemmtilegan frásagnarstíl.
Imba útskrifaðist úr Samvinnu-
skólann og vann lengi í Útvegsbank-
anum og síðan við hin ýmsu versl-
unarstörf. Síðast vann hún í
Kjólabúðinni Mær, sem þá var ein
flottasta kjólabúðin í bænum. Þar sá
hún meðal annars um innkaup og fór
í þeim erindagjörðum til útlanda og
þá oftast til London. Margar voru
sögurnar þegar hún gisti á Cumber-
land-hótelinu og fór á milli seljenda
og keypti flottustu kjólana sem völ
var á.
Imba giftist Baldri Sigurðssyni
frá Eyrarbakka. Þeim Baldri varð
ekki barna auðið en aðstæður urðu
þess valdandi að Imba flutti oft inn á
heimili foreldra minna og hugsaði
um okkur systkinin. Þau voru mikið
akkeri í mínu lífi og það var mikið og
náið samband á milli okkar og minn-
ar fjölskyldu. Imba og Baldur voru
yndisleg hjón og þreyttust seint á því
að hjálpa okkur við hvað sem var,
hvort sem það var að læra að reima
skóna eða að gera við og sprauta
bíla. Alltaf var hægt að leita til þeirra
og aldrei var maður gagnrýndur eða
dreginn í efa sama á hverju dundi.
Og þegar við hjónin fluttum heim
eftir nám erlendis fluttum við í kjall-
arann hjá Imbu og þar bjuggum við
þegar sonur okkar, Baldur, fæddist.
En ég er fæddur heima í stofunni hjá
Imbu.
Imba fylgdist vel með öllu og ég
minnist þess að fyrir mörgum árum
bað hún mig um ráð varðandi banka-
reikninga. Einhverju sinni nefndi ég
ákveðinn innlánsreikning við hana
og sagði að vextirnir væru um 7%.
Hún var ekki lengi að svara: 6,85%.
Hún þekkti þetta miklu betur en ég,
með allt sitt á hreinu.
Imba fylgdist vel með allri fjöl-
skyldunni og hún mundi ótrúlegustu
hluti allt fram á dánardag, hverjir
gerðu hvað, hvenær og með hverj-
um. Mér er minnisstætt þegar hún
var nýflutt á Dalbrautina þá um átt-
rætt og fór í göngutúr og mætti þar
manni á gangi. Hún stoppaði og leit á
manninn og spurði hvort þetta væri
ekki Jón. Hann játti því og þá spurði
Imba hvort hann myndi ekki eftir
sér þau hefðu verið saman í eldhús-
hóp á Laugarvatni veturinn ’33-’34.
Hún þekkti hann þó þau hefðu ekki
sést í rúm 50 ár. En ég held að aum-
ingja Jón hafi ekki einu sinni munað
að hann hafi verið á Laugarvatni.
Við kveðjum Imbu í hinsta sinn,
hún reyndist okkur hjónum og börn-
unum okkar vel og við munum sakna
hennar og umfram allt munum við
minnast þeirra yndislegu stundar
sem við áttum saman. Minning
þeirra heiðurshjóna Ingibjargar og
Baldurs mun lifa með okkur alla tíð.
Knútur G. Hauksson
og fjölskylda.
Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð;
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(G.J.)
Í dag kveðjum við hana Imbu
frænku, móðursystur mína.
Imba frænka var ekki bara
frænka mín, hún var frænka með
stóru F.
Hún tók alltaf mikinn þátt í lífi
mínu og fjölskyldu minnar. Alltaf var
hún með á nótunum, vissi upp á hár
hvernig okkur leið, hvað við vorum
að gera og hvernig okkur gekk, bæði
í leik og starfi. Hún tók þátt bæði í
gleði og sorg. Og alltaf var hún boðin
og búin ef eitthvað var hægt að að-
stoða. Yngri kynslóðinni sýndi hún
bæði virðingu og umhyggju og sóttu
þau áfram til hennar eftir að þau uxu
úr grasi. Hún þekkti vini þeirra og
vinkonur sem undantekningarlaust
heilluðust af þessari frábæru konu.
Það var alltaf gaman að heim-
sækja hana, hún hafði mikinn áhuga
á því sem var að gerast í þjóðfélaginu
almennt og ekki spillti kaffimeðlætið
fyrir. Hún hafði ákveðnar stjórn-
málaskoðanir og þó að við værum
ekki alltaf sammála þar var alltaf
gaman að ræða við hana um lífsins
gagn og nauðsynjar, hvergi kom
maður að tómum kofanum. Við gönt-
uðumst oft með að hún heyrði og sæi
betur en allir aðrir, og minnið var
óbrigðult. Ég fæddist í húsinu henn-
ar í Skipasundinu og hún hefur alltaf
verið til staðar fyrir mig. Hún pass-
aði mig þegar foreldrar mínir voru
ekki til staðar, reyndi að benda mér
á beinu brautina þegar hliðarsporin
voru helst til freistandi og hún sá
alltaf meira af hinu góða í sérhverri
manneskju.
Að fara Selfoss-, Stokkseyrar- og
Eyrarbakkahring með Imbu var allt-
af frábær skemmtun. Það sem hún
mundi og hvernig hún sagði frá hlut-
unum var óborganlegt.
Og hún Imba frænka var gift hon-
um Baldri. Fyrir að gefa mér hlut-
deild í Baldri verð ég henni ævinlega
þakklátur því betri maður en hann
var er vandfundinn.
Mér þótti mjög vænt um Imbu og
kveð hana nú með söknuði og þakk-
læti fyrir allt og allt.
Sigurður.
Ingibjörg Heiðdal
HINSTA KVEÐJA.
Nú er lífsins leiðir skilja,
lokið þinni göngu á jörð.
Flyt ég þér af hljóðu hjarta,
hinstu kveðju og þakkargjörð.
Gegnum árin okkar björtu,
átti ég þig í gleði og þraut.
Umhyggju sem aldrei gleymist,
ávallt lést mér falla í skaut.
(Höf. ók.)
Þakka þér Imba mín fyrir
allt sem þú varst mér og mín-
um.
Far þú í friði.
Anna Kristín.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
RÓSA MARÍA ÞÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
lést á Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 23. apríl.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn
30. apríl kl. 14.00.
Guðmundur Vésteinsson, Málhildur Traustadóttir,
Vésteinn Vésteinsson, Elínborg Bessadóttir,
Grétar Vésteinsson, Gyða Ólafsdóttir,
Sigurður Vésteinsson, Hafdís Karvelsdóttir,
Bjarni Vésteinsson, Steinunn Sigurðardóttir,
Viðar Vésteinsson, Guðrún Lovísa Víkingsdóttir,
Auður Vésteinsdóttir, Sveinn K. Baldursson,
Anna Margrét Vésteinsdóttir, Höskuldur E. Höskuldsson,
Guðbjörg Vésteinsdóttir, Sveinbjörn M. Njálsson,
Árni Þór Vésteinsson, Ingibjörg Rögnvaldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARHEIÐUR VIGGÓSDÓTTIR
frá Siglufirði,
Hverfisgötu 47,
Hafnarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði
sunnudaginn 25. apríl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ásdís Guðmundsdóttir, Birgir Sigmundsson,
Bjarney Guðmundsdóttir, Bjarni Guðjónsson,
Guðlaug Guðmundsdóttir, Jón Alfreðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐLAUG BERGMANN JÚLÍUSDÓTTIR,
Reykjanesvegi 12,
Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtu-
daginn 22. apríl.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
30. apríl kl. 13.00.
Valgeir Ólafur Helgason,
Júlíus H. Valgeirsson, Ásgerður Þorgeirsdóttir,
Guðrún Bergmann Valgeirsdóttir, Sigfús R. Eysteinsson,
Jóhanna Valgeirsdóttir, Leifur Gunnlaugsson,
Erla Valgeirsdóttir, Guðni Grétarsson,
Einar Valgeirsson, Unnur M. Magnadóttir,
Susan Anna Wilson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÁSDÍS ANDRÉSDÓTTIR ARNALDS,
Kleppsvegi 4,
Reykjavík,
andaðist sunnudaginn 25. apríl.
Sigurður St. Arnalds, Sigríður María Sigurðardóttir,
Andrés Arnalds, Guðrún Pálmadóttir,
Sigrún Jóhannsdóttir,
Ólafur Arnalds, Ása Lovísa Aradóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
GUNNAR ÁRNASON,
Hallakri 1,
Garðabæ,
lést á Landspítalanum Hringbraut mánudaginn
26. apríl.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
30. apríl kl. 13.00.
Guðný Jónasdóttir,
Hilmir Þór Gunnarsson, Steinunn Lund Níelsdóttir,
Jónína Gunnarsdóttir, Guðni Magnús Ingvason,
Gunnar Már Gunnarsson, Laufey Þórarinsdóttir
og barnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGURÐUR ARNAR SVANBERG EINARSSON,
Erluási 2,
Hafnarfirði,
áður til heimilis í Erluhrauni 2b,
lést á heimili sínu föstudaginn 23. apríl.
Jarðsungið verður frá Hafnarfjarðarkirkju föstu-
daginn 30. apríl kl. 13.00.
Lísabet Sólhildur Einarsdóttir,
Indíana F. E. Sigurðardóttir, Aðalsteinn Aðalsteinsson,
Viktoría I. Sigurðardóttir, Jón Marías Torfason,
Einar Svanberg Sigurðsson, Dagrún N. Magnúsdóttir,
Sigríður Lísabet Sigurðardóttir, Guðmundur Jónsson,
Sólborg Sigurðardóttir,
Sigurður Arnar Sigurðsson, Birna Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.