Morgunblaðið - 26.06.2010, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.06.2010, Blaðsíða 15
Fréttir 15INNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2010 FRÉTTASKÝRING Skúli Á. Sigurðsson skulias@mbl.is Samkvæmt heimildum innan úr Fjármálaeftirlitinu og frá fyrrver- andi lykilstarfsmönnum þess komu gengistryggð lán, gjarna kölluð myntkörfulán, aldrei til athugunar hjá stofnuninni; hvorki í kjölfar þess að lög sem tóku fyrir aðra verðtryggingu láns- og sparifjár í íslenskum krónum en tengingu við vísitölu neysluverðs voru sett 2001 né á síðari stigum, þegar tekið var að lána fólki gengistryggðar krónur í miklum mæli. Herma þessar sömu heimildir að úr því að her lögfræðinga banka og fjármögnunarfyrirtækja hafi talið gengistryggingu lögmæta hafi ekki komið til nein athugun af hálfu eft- irlitsins. Með öðrum orðum hafi fjármálafyrirtækjunum verið treyst til að meta lögmæti skilmálanna án nokkurrar sjálfstæðrar skoðunar Fjármálaeftirlitsins. Í lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi er stofnuninni falið að hafa eftirlit með starfsemi banka, sparistjóða, lánastofnana og fleiri lögaðila af svipuðu tagi. Kveða lögin á um virkt frumkvæðiseftirlit með því hvort eftirlitsskyldir lög- aðilar fara að lögum og öðrum reglum. Þá eru veittar heimildir til að gefa út leiðbeindandi tilmæli, gera kröfur um úrbætur og beita févíti og dagsektum sé kröfum um úrbætur ekki sinnt. Ljóst er að mat á því hvort farið sé að lögum og reglum er á stjórnsýslustigi í hönd- um Fjármálaeftirlitsins en lokaúr- lausn er þó alltaf í höndum dóm- stóla. Gengistryggð lán í íslenskum krónum voru veitt af bönkum og fjármögnunarfyrirtækjum í um átta ár þrátt fyrir ákvæði laga. Ólög- mæti gengistryggingar lánsfjár í ís- lenskum krónum var staðfest með dómum Hæstaréttar í málum SP- fjármögnunar og Lýsingar sex- tánda þessa mánuðar. Stóð FME nær að athuga lánin Fulltrúar Fjármálaeftirlitsins hafa bent á að Samkeppniseftirlit- inu og síðar Neytendastofu hafi verið falið eftirlitshlutverk með neytendalánum samkvæmt lögum um þau. Hjá Neytendastofu benda menn á Fjármálaeftirlitið; því beri að hafa eftirlit með starfsemi fjár- málafyrirtækja og lánveitingum þeirra. Að mati sérfræðings á sviði stjórnsýsluréttar og fjármálaeftir- lits stendur eftirlit með lánaskilmál- unum á mörkum verksviða þessara stofnana. Þeir séu á gráu svæði og óljóst undir hvora stofnunina þeir heyra en Fjármálaeftirlitinu standi þó nær að hafa eftirlit með skilmálum þessara lánasamninga. Meðal ann- ars bendir hann á að Neytendastofu sé aðallega ætlað að standa vörð um hag neytenda og gengistryggðu lánin hafi í upphafi virst þeim hag- stæð. Þá hafi lög um neytendalán að mestu að geyma ákvæði um að upplýsingaskylda séu uppfyllt en eiginlegt lögmæti lána og samn- ingsskilmála sé á könnu Fjármála- eftirlitsins samkvæmt almennum ákvæðum laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Í rannsóknarskýrslu Alþingis kemur fram að Fjármálaeftirlitið hafi í aðdraganda efnahagshrunsins glímt við stór verkefni með ónógar fjárveitingar að baki sér. Forgangs- röðun og áræði í vinnulagi hafi einnig skort. Telur sérfræðingurinn sem Morgunblaðið ræddi við að þetta, í bland við tíðaranda sem var allt að því fjandsamlegur hvers konar afskiptum stjórnvalda af fjár- málafyrirtækjum, hafi orsakað að almenn ákvæði og vísireglur um eftirlit hafi verið túlkaðar þröngt. Eftirlitið hafi því ekki náð mark- miði sínu í þessum málum og öðr- um. Valgerður Sverrisdóttir tekur undir að afskipti stjórnvalda hafi verið litin hornauga. Hún var við- skiptaráðherra frá 1999 til 2006 og segir að hún og ráðuneytið hafi tal- ið lögin frá 2001 taka með öllu fyrir gengistryggingu lána í íslenskum krónum. „Á þessum tíma var lögð mikil áhersla á sjálfstæði FME og að stjórnmálamenn ættu ekki að hafa afskipti að því,“ segir Valgerður og kveður að í ljósi þess hafi ráðu- neytið ekki hlutast til um málið. Á sínum tíma hafi hún jafnvel þótt hafa of mikil afskipti af stofnuninni og verið gagnrýnd fyrir það. Þá er Fjármálaeftirlitið samkvæmt lögum sjálfstæð stofnun og lýtur ekki beinu boðvaldi viðskiptaráðherra þó hún heyri undir ráðuneyti hans. Myntkarfan týndist á gráu svæði FME Fjármálaeftirlitinu er með lögum falið að fylgjast með því að starfsemi fjármálafyrirtækja sé í samræmi við lög, reglur og eðlilega viðskiptahætti.  Ólögmæt gengistrygging lánsfjár viðgekkst athugasemdalítið í um átta ár fram að dómi Hæstaréttar  FME sinnti ekki hlutverki sínu og treysti lánveitendum í blindni  Tíðarandinn latti eftirlitsstofnanir Lög um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi 3. gr. Stofnun. Með eftirlit samkvæmt lögum þessum fer sérstök stofnun er nefnist Fjármálaeftirlitið. Fjár- málaeftirlitið er ríkisstofnun og lýtur sérstakri stjórn. Stofnunin heyrir undir efnahags- og við- skiptaráðherra. 8. gr. Eftirlit. Fjármálaeftirlitið skal fylgjast með að starfsemi eftirlitsskyldra aðila sé í samræmi við lög, reglugerðir, reglur eða samþykktir sem um starfsemina gilda og að starfsem- in sé að öðru leyti í samræmi við heilbrigða og eðlilega við- skiptahætti. 9. gr. Fjármálaeftirlitið skal athuga rekstur eftirlitsskyldra aðila svo oft sem þurfa þykir. [...] Lög um vexti og verðtryggingu 13. gr. [...] Um heimildir til verð- tryggingar fer skv. 14. gr. nema lög kveði á um annað. 14. gr. Heimilt er að verðtryggja sparifé og lánsfé skv. 13. gr. sé grundvöllur verðtryggingarinnar vísitala neysluverðs [...] Ótvíræð frumkvæðisskylda LÖGIN SKÝR UM FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ OG GENGISTRYGGINGU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.