Morgunblaðið - 01.07.2010, Page 21

Morgunblaðið - 01.07.2010, Page 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010 Búið Listasýningu Sigurðar Guðmundssonar er lokið og það er engu líkara en að maðurinn á veggmyndinni, sem auglýsir sýninguna, sé að styðja við kranann meðan myndin er tekin niður. Eggert Eldgos eru algeng á Íslandi og á 20. öld- inni liðu að jafnaði aðeins 3 ár á milli gosa. Sum gosanna eru hraungos sem valda staðbundnum breytingum á um- hverfinu en oft fylgir öskufall eldgosunum sem dreifist yfir stór landsvæði. Á seinni tímum hefur gróður- og jarðvegseyðing verið fylgifiskur öskugosa, en svo var ekki á meðan landið var óbyggt mönnum og þakið birkiskógum og kjarri. Nýj- ustu rannsóknir benda til að 25- 40% landsins hafi verið þakin skógi við landnám. Öskulagarann- sóknir sýna að margra sentimetra þykk aska hefur ítrekað fallið á skóga án þess að valda eyðingu þeirra. Má sem dæmi nefna að ár- ið 1104 dreifði eldgos í Heklu miklu magni af hvítum vikri yfir Þjórsárdal. Byggðin fór í eyði í því gosi en stærstur hluti skóg- anna lifði. Lítið hefur farið fyrir öskufalli á skóga síðustu öldina, enda skógar litlir. Þó féll vikur úr Heklu á Búrfells- og Þjórsárdalsskóga árið 1970 án þess að valda skemmdum á þeim. Hinsvegar olli sá vikur miklum skemmdum á gróðri á bersvæði, meðal annars á land- græðslusvæðum. Fleiri dæmi má nefna, s.s. vikurfall í gróðrarstöð- inni í Múlakoti árið 1947 og á Þórsmörk árin 1918 og 1947. Í engu þeirra tilvika urðu skemmdir á skógi af völdum öskunnar. Í eldgosinu í Eyja- fjallajökli, sem von- andi er nú afstaðið, féll aska víða um ná- grannasveitir og óbyggðir. Það sem vekur athygli er að trjágróður og skógar virðast koma óskemmdir undan öskufallinu. Jafnvel þar sem aska hefur fallið með rigningu og hlaðist utan á trén eins og í Húsa- dal í Þórsmörk náðu trén að standa af sér öskufargið og líta vel út í dag. Þar lagðist askan að mestu í skógarbotninn og fýkur ekki þótt hvessi. Gróður í skóg- arbotninum er þessa dagana að þekja öskulagið og í framtíðinni geta öskulagafræðingar skoðað öskulögin í jarðvegi undir skóg- unum. Annað er uppi á teningnum á bersvæðum. Þar fýkur askan þegar þurrt er jafnvel í blíðviðri eins og hefur verið undanfarnar vikur. Íbúar á Suðurlandi finna vel fyrir þessu öskufoki og er hætta á að aska á bersvæði muni fjúka næstu mánuði og ár. Hvað er til ráða? Skógræktarfólk hugsar ekki í árum heldur öldum. Eina var- anlega leiðin til að koma í veg fyr- ir öskufok í kjölfar ösku og vik- urgosa er að klæða úthaga aftur skógi eða kjarri og ræktunarland skjólbeltum eftir því sem hægt er. Endurheimt birkiskóga landsins er ódýr leið til að koma varanlega í veg fyrir öskufok í nágrenni eld- fjalla. Hefur endurheimt birki- skóga með friðunaraðgerðum stað- ið yfir hér á landi í heila öld, t.d. í Hallormsstaðarskógi, Vaglaskógi og Þórsmörk. Á síðustu árum hafa slíkar aðgerðir náð til mun stærri svæða en áður eða um 1% Íslands. Hekluskógar heita stærsta verk- efnið og tilgangur þess er að rækta aftur upp birkiskóga sem áður þöktu landið. Þannig má binda ösku sem á eftir að falla í næsta nágrenni Heklu og koma í veg fyrir að aska og vikur fjúki frá öskufallssvæðum, valdi upp- blæstri og skaði landbúnað og lífs- skilyrði í nálægum byggðum. Hekluskógar hafa starfað með landeigendum að endurheimt birkiskóga í nágrenni Heklu síð- ustu 5 ár með góðum árangri. Er verkefnið unnið á þann hátt að land er grætt upp, í kjölfarið er birki gróðursett í lundi á beit- arfriðuðum svæðum og að nokkr- um árum liðnum fara birkitrén að sá sér út og mynda nýja skóga. Birki er aðaltrjátegundin í Heklu- skógum en ýmsar aðrar trjáteg- undir koma einnig til greina, t.d. í ræktun nytjaskóga eða í skjól- beltarækt. Ég legg til að sú aðferðafræði sem hefur verið þróuð á síðustu árum í tengslum við Hekluskóga verði notuð á fleiri landsvæðum og vil ég þar sérstaklega nefna land- svæði í nágrenni Eyjafjallajökuls, Kötlu og Öræfajökuls. Þó kreppi að í fjármálum þjóðarinnar er brýnt að hugsa til framtíðar, skapa atvinnu á landinu við að byggja upp skógarauðlind sem á næstu áratugum á eftir að skila þjóðinni margvíslegum nytjum, þar á meðal að draga úr öskufoki. Eftir Hrein Óskarsson » Jafnvel þar sem aska hefur fallið með rigningu og hlaðist utan á trén eins og í Húsadal í Þórsmörk náðu trén að standa af sér öskufargið og líta vel út í dag. Hreinn Óskarsson Höfundur er verkefnisstjóri Heklu- skóga og skógarvörður Skógræktar ríkisins á Suðurlandi. Skógar og öskufall Töluverð aska féll á skóginn í Húsadal í Þórsmörk síðustu daga Eyjafjalla- jökulsgossins og voru tré sliguð af blautri öskunni. Nokkrum dögum síðar hafði skógurinn sprengt af sér öskuna og voru tré orðin allaufguð og spretta vel enda töluverð næring í öskunni. Enn er mikil aska í skógum Þórsmerkur og Goðalands en hún fýkur ekki í skjóli trjánna og botngróður vex upp úr henni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.