Fréttablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 86
15. október 2011 LAUGARDAGUR54
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
Háspennu línudans
LÁRÉTT
2. á eftir, 6. hljóm, 8. lífshlaup, 9.
gljúfur, 11. samanburðarteng., 12.
vanvirðing, 14. skot, 16. drykkur, 17.
vætla, 18. fugl, 20. umhverfis, 21.
lima sundur.
LÓÐRÉTT
1. kennimark, 3. tveir eins, 4. bylgju,
5. málmur, 7. árstíð, 10. uppistaða,
13. mánuður, 15. lappi, 16. skrá, 19.
stöðug hreyfing.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. næst, 6. óm, 8. ævi, 9. gil,
11. en, 12. ósómi, 14. snafs, 16. te,
17. íla, 18. ari, 20. um, 21. liða.
LÓÐRÉTT: 1. lógó, 3. ææ, 4. sveiflu,
5. tin, 7. misseri, 10. lón, 13. maí, 15.
sami, 16. tal, 19. ið.
Vá, þú ert
flinkur.
Glæsilegt!
Sjáðu
þessa,
kanína!
UFF! UFF!
UFF!
UFF!
UFF!
Ætli það sé hægt að
fá sterkara lyktar-
sprey en selt er úti
í búð?
Ég er kominn! Sjáðu þetta Lárus! Barn yðar kann að
hafa fengið lús í
skólanum.
Oó.
LÚS! Er það
ekki það
ógeðslegasta
sem þú hefur
heyrt um?
Komdu, þetta
verður allt í lagi.
Engin faðmlög fyrr en ég
hef skoðað á þér hausinn!
Er
pabbi
með
lúsir
líka?
Í vikunni las ég að prestur hefði lent í bobba í útvarpsviðtali aðspurður um
núverandi dvalarstað látins manns. Þegar
ég horfði á upptöku af viðtalinu gat ég þó
ekki séð að bobbinn væri ýkja mikill. Rétt
er að fát kom á prestinn og hann tafsaði,
greinilega ekki viðbúinn spurningunni.
Henni var líka slengt fram á óvenjulega
skorinorðan og umbúðalausan hátt. Sem
er hressandi. En svarið kom: Það er ekki
okkar að dæma, Guð einn dæmir (sbr. Lúk
6.37). Presturinn bætti því enn fremur við
að það sem gert er á hluta barns er gert
á hluta Krists (sbr. Matt 25.40, 45). En
eftir stóð spurningin: „Stendur ekki í
Biblíunni að hann muni brenna í helvíti
um alla eilífð?“ Illu heilli lét presturinn
það ógert að svara þeirri spurningu.
SVARIÐ er nei. Það stendur hvergi í
Biblíunni. Það kenningakerfi var smíð-
að snemma á miðöldum, byggt á
heimsslitabókmenntum sem
voru í tísku í kringum upp-
haf okkar tímatals, en
eru hvorki hluti af helgi-
ritasafni gyðinga né krist-
inna manna. Jesús talar
aðeins um helvíti sem and-
stæðu við Guðs ríki eða
táknmyndir þess; lífið og
himininn. Og Guðsríkið
er í senn innra með okkur
og mitt á meðal okkar. Hið sama gildir
um helvíti. Ein saga lýsir að vísu Hades
sem hlutskipti vonds manns eftir dauðann
(Lúk 16.19-31). Þar er myndmálið sótt í
þessa rithefð, en sú saga fjallar reynd-
ar um félagslegar skyldur manna hérna
megin grafar. Sagan á skýra hliðstæðu í
egypskri helgisögu og í rabbínskum bók-
menntum.
EN HVAR eru dánir syndaselir þá núna
skv. kenningum Biblíunnar um afdrif
sálnanna? Ætli Páll postuli svari því ekki
best: „Því að laun syndarinnar er dauði en
náðargjöf Guðs er eilíft líf í Kristi Jesú,
Drottni vorum (Róm 6.23).“ Dauði er ekki
eilíft líf í kvöl. Dauði er ekkert líf. Dauð-
inn er endanlegur. Það er því hann sem
er hin eilífa refsing, en ekki eldur og mis-
þyrmingar. Tal Jesú um „eldsofninn“ er
líking við það þegar illgresi er brennt –
ekki til að pynta það heldur eyða því.
KRISTNIR menn treysta á eilíft líf. En
með „eilífð“ er ekki átt við endalaust
magn af tíma. Aldir alda á skýi með hörpu
í fanginu yrðu brátt sannkallað helvíti.
Eilíft líf er andlegt líf sem er eðlisólíkt
jarðnesku og veraldlegu lífi, ný og guð-
dómleg vídd tilveru. Sú er náðargjöf Guðs.
En það er ekki okkar að útdeila henni eftir
okkar persónulegu réttlætiskennd. Það
gerir Guð einn.
Hvar eru þau nú?
Z IK ZAK F I LMWORKS OG F INE & MELLOW KYNNA KV IKMYND EFT IR RÚNAR RÚNARSSON „ELDFJALL“
THEODÓR JÚL ÍUSSON MARGRÉT HELGA JÓHANNSDÓTT IR ÞORSTE INN BACHMANN ELMA L ÍSA GUNNARSDÓTT IR
HÁR OG FÖRÐUN GUÐBJÖRG HULDÍS KR IST INSDÓTT IR BÚNINGAHÖNNUN HELGA RÓS V. HANNAM LEIKMYND HAUKUR KARLSSON
TÓNL IST K JARTAN SVE INSSON HLJÓÐ INGVAR LUNDBERG KL IPP ING JACOB SECHER SCHULS INGER KVIKMYNDATAKA SOPHIA OLSSON DFF
FRAMKVÆMDASTJÓRI RANNVE IG JÓNSDÓTT IR SAMFRAMLE IÐANDI HL ÍN JÓHANNESDÓTT IR EXECUT IVE FRAMLE IÐANDI THOMAS GAMMELTOFT
FRAMLE IÐENDUR ÞÓRIR S IGURJÓNSSON SKÚL I FR . MALMQUIST EG IL DENNERL INE HANDRIT OG LE IKSTJÓRN RÚNAR RÚNARSSON
STYRKT AF NEW DANISH SCREEN KV IKMYNDASJÓÐI Í SLANDS NORRÆNA KV IKMYNDA- OG S JÓNVARPSSJÓÐNUM
LISTRÆN STJÓRN, NEW DANISH SCREEN JACOB HØGEL RÁÐGJÖF, NEW DANISH SCREEN K IM LEONA FORSTÖÐUMAÐUR NORRÆNA KV IKMYNDA- OG S JÓNVARPSSJÓÐS INS HANNE PALMQUIST FORSTÖÐUMAÐUR KV IKMYNDASJÓÐS ÍSLANDS LAUFEY GUÐJÓNSDÓTT IR