Fréttablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 84
15. október 2011 LAUGARDAGUR52
Hvernig fékkstu hlutverkið í
Heimsendi? „Ég sá auglýsingu í
blaðinu og sótti um, en það voru
svo margar stelpur sem sóttu um
að það var ekki öllum svarað. En
mig langaði svo mikið að kom-
ast inn að ég sendi umsóknina
fimm sinnum. Svo var hringt
í mig og sagt að Sönglist hefði
mælt með mér í þetta hlutverk
og ég ætti að koma í prufu.“
Hvað er Sönglist? „Það er söng-
og leiklistarskóli fyrir krakka í
Borgarleikhúsinu. Ég er búin að
vera fjórar annir þar og mæli
bara með því að krakkar sem
hafa áhuga á leiklist komi
þangað. Þetta er alveg
ótrúlega góður grunnur
og mjög gaman.“
Var gaman að leika
í Heimsendi? „Já,
þetta var alveg æðis-
legt! Svona ævintýri
sem maður gleymir
aldrei.“
Þú varst að vinna
með mörgum fræg-
u m l e i k u r u m .
Varstu ekkert feim-
in? „Ég var svolítið
feimin svona fyrst.
Þetta var allt fólk
sem maður hafði séð
í sjónvarpinu og í
leikhúsunum en síðan
fór maður að kynnast
því og komst að því að
þetta er bara venjulegt
fólk og mjög skemmti-
legt og fyndið.“
Er Pét ur Jóh ann
skemmtilegur? „Já, maður
gat alveg endalaust hlegið
að honum. Hann var alltaf
að segja einhverja brand-
ara. Ótrúlega gaman.“
Mundirðu vilja eiga
hann fyrir pabba í
alvörunni? „Já, veistu,
ég hefði ekkert á móti
því, en ég er alveg
fegin að eiga mína
foreldra.“
Er Álfheiður Björk lík
þér? „Nei, eiginlega ekki.
Ég held ég sé aðeins
þroskaðri en hún. En
ég er auðvitað líka ung-
lingur og hef við mitt
að stríða eins og hún.“
fridrikab@frettabladid.is
krakkar@frettabladid.is
52
Ég held ég sé aðeins
þroskaðri en hún. En
ég er auðvitað líka ung-
lingur og hef við mitt að
stríða eins og hún.
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Í hvaða skóla ertu? Hvaleyrar-
skóla í Hafnarfirði.
Í hvaða stjörnumerki ertu?
Vatnsberi.
Helstu áhugamál: Teikna, lita
og lesa bækur.
Eftirlætissjónvarpsþáttur:
Finnbogi og Felix.
Besti matur: Grjónagrautur og
núðlur.
Eftirlætisdrykkur: Vatn.
Hvaða námsgrein er í eftir-
læti? Stærðfræði.
Áttu gæludýr? Nei, en afi og amma eiga svart-
an Labrador sem heitir Tinni og er 6 ára. Mér
finnst ég eiga hann með þeim.
Eftirlætistónlistarmaður/
hljómsveit: Justin Bieber.
Uppáhaldslitur: Fjólublár og
bleikur – get ekki valið.
Hvað gerðirðu í sumar? Ég
fór til Stykkishólms og þaðan
fórum við í stóran bát sem heit-
ir Baldur og heimsóttum eyju
sem heitir Flatey. Síðan fórum
við líka á Akureyri og þar fórum
við í sund, heimsóttum jólahús-
ið og borðuðum Brynjuís.
Skemmtilegasta bók sem þú
hefur lesið? Uppáhaldsbæk-
urnar mínar eru Andrésar Andar Syrpurnar.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú ert orðin
stór? Mig langar að vera listamaður og læknir.
Salka Rut Böðvarsdóttir, 7 ára.
STJÖRNUFRÆÐIVEFURINN eru uppfullur af alls kyns skemmtilegum fróðleik
um sólkerfið okkar, stjörnulíffræði og alheiminn. Slóðin er www.stjornufraedi.is
Gunni við Magga vin sinn:
„Viltu leika við nýja hundinn
minn fyrir mig?“
Maggi: „Æ, ég veit ekki. Bítur
hann?“
Gunni: „Það er einmitt það
sem ég vil finna út.“
Einu sinni voru tvennar
buxur að ganga yfir götu og
þá var keyrt yfir aðrar. Þá
sögðu hinar: „Þér var nær,
buxur!“
Í framhaldi fóru buxurnar á
spítala og báru sig illa. Þá
sagði læknir á vakt: „Þetta er
nú óþarfa kvart, buxur!“
Kennari við nemanda: „Staf-
aðu orðið rúm.“
Nemandi: „R-ú-m-m.“
Kennari: „Slepptu öðru
m-inu.“
Nemandi: „Hvoru?“
VILDI ALVEG EIGA PÉTUR
JÓHANN FYRIR PABBA
Bára Lind Þórarinsdóttir leikur Álfheiði Björk, dóttur Péturs Jóhanns, í sjónvarps-
þáttunum Heimsendi. Hún sagði Krakkasíðunni frá reynslunni við vinnslu þáttanna.
Á Vísi er hægt að horfa
á myndskreyttan upp-
lestur úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið
1928 í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið
endurprentað. Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna holl-
enska meistarans G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum
börnum í tugi ára.