Fréttablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 61

Fréttablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 61
LAUGARDAGUR 15. október 2011 13 Umsóknarfrestur: Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2011. Umsóknir sem berast eftir það eru ekki teknar gildar. Hlutverk sjóðsins: Samkvæmt lögum nr. 75/2011 um Framkvæmda sjóð ferðamannastaða er markmið og hlutverk sjóðsins að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða í opinberri eigu eða umsjón um land allt. Þá skal með fjármagni úr sjóðnum leitast við að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins. Einnig er sjóðnum ætlað að fjölga viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðamannastaði. Fjármagni úr Framkvæmdasjóði ferðamanna- staða skal varið til: 1. Uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru á ferðamannastöðum sem eru í eigu opinberra aðila eða á náttúruverndarsvæðum. 2. Framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna og verndun náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila jafnt sem einkaaðila. Framkvæmdasjóði ferðamannastaða er heimilt að fjármagna undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna framkvæmda en sjóðnum er ekki heimilt að bera rekstrarkostnað. Um styrkveitingar: 1. Framkvæmdasjóðurinn leggur sérstaka áherslu á verkefni þar sem horft er til heildarmyndar ferðamannastaða og ferðamannaleiða. 2. Hægt er að sækja um styrki fyrir skipulags- og hönnunarvinnu ásamt undirbúningsrannsóknum. Við skipulag og hönnun mannvirkja er höfð til hliðsjónar “Menningarstefna í mannvirkjagerð” sem gefin var út af Menntamálaráðaneytinu í apríl 2007, Leiðbeiningarritið Góðir staðir, sem fjallar um uppbyggingu vandaðra ferðamannastaða (í vinnslu), og skipulagslög nr. 123/2010. 3. Ef sótt er um styrk fyrir byggingu mannvirkja eða aðrar framkvæmdir verður skipulag, fullnaðar- hönnun og framkvæmdaleyfi að liggja fyrir. 4. Framlög til einkaaðila eru háð því skilyrði að um sé að ræða ferðamannastaði sem eru opnir almenningi. 5. Að jafnaði getur styrkur ekki numið hærri upp- hæð en 50% af kostnaði. Allar umsóknir skulu innihalda: a. Verkefnislýsingu sem lýsir hugmyndinni með rökstuddum og skýrum hætti b. Kostnaðar- og verkáætlun c. Afrit af skipulagi svæðis og/eða skriflegt samþykki viðkomandi yfirvalda vegna verkefnisins d. Teikningar af mannvirkjum, þar sem það á við, og/eða skriflegt samþykki byggingarfulltrúa e. Skriflegt samþykki allra landeigenda og/eða umsjónaraðila Nánari leiðbeiningar og umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Ferðamálastofu www.ferdamalastofa.is. Hverjir geta sótt um: Öllum sem hagsmuna eiga að gæta er frjálst að sækja um styrk að uppfylltum ofangreindum skilyrðum. Við úthlutun verður m.a. tekið mið af ástandi og álagi á svæði, og mikilvægi aðgerðanna út frá náttúruverndarsjónarmiðum. Hvar ber að sækja um: Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Ferðamálastofu www.ferdamalastofa.is. Þar eru jafnframt leiðbeiningar um hvernig skal sækja um. Nánari upplýsingar veitir Sveinn Rúnar Traustason umhverfisstjóri Ferðamálastofu í síma 535-5500 eða með vefpósti sveinn@ferdamalastofa.is. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar á ferðamannastöðum fyrir árið 2012. ICELANDIC TOURIST STOFA BOARD Geirsgata 9 | 101 Reykjavík | Iceland | Sími/Tel +354 535 5500 | Fax +354 535 5501 Strandgata 29 | 600 Akureyri | Iceland | Sími/Tel +354 535-5510 | Fax +354 535 5501 FRAMKVÆMDASJÓÐUR FERÐAMANNASTAÐA H ön n u n : P O R T h ön n u n Aðalfundur Skíðaráðs Reykjavíkur verður haldin Fimmtudaginn 27. október, kl. 20:00 í fundarsal E, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Engjavegi 6, Reykjavík. Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum SKRR. Stjórn SKRR Aðalfundur Skíðaráðs Reykjavíkur SÖLUMAÐUR KEFLAVÍK REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR KEFLAVÍK SELFOSS HAFNARFJÖRÐUR Umsækjendur þurfa að hafa eftirfarandi eiginleika: Öflugur sölumaður óskast í fullt starf í verslun okkar í Keflavík Umsóknir ásamt ferilskrá með mynd sendist á tölvupósti: starf@ tolvulistinn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.