Fréttablaðið - 15.10.2011, Page 61
LAUGARDAGUR 15. október 2011 13
Umsóknarfrestur:
Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2011.
Umsóknir sem berast eftir það eru ekki teknar gildar.
Hlutverk sjóðsins:
Samkvæmt lögum nr. 75/2011 um Framkvæmda sjóð
ferðamannastaða er markmið og hlutverk sjóðsins
að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun
ferðamannastaða í opinberri eigu eða umsjón
um land allt. Þá skal með fjármagni úr sjóðnum
leitast við að tryggja öryggi ferðamanna og vernda
náttúru landsins. Einnig er sjóðnum ætlað að fjölga
viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á
fjölsótta ferðamannastaði.
Fjármagni úr Framkvæmdasjóði ferðamanna-
staða skal varið til:
1. Uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja
og náttúru á ferðamannastöðum sem eru í eigu
opinberra aðila eða á náttúruverndarsvæðum.
2. Framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna
og verndun náttúru á ferðamannastöðum í eigu
opinberra aðila jafnt sem einkaaðila.
Framkvæmdasjóði ferðamannastaða er heimilt að
fjármagna undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er
nauðsynleg vegna framkvæmda en sjóðnum er ekki
heimilt að bera rekstrarkostnað.
Um styrkveitingar:
1. Framkvæmdasjóðurinn leggur sérstaka áherslu
á verkefni þar sem horft er til heildarmyndar
ferðamannastaða og ferðamannaleiða.
2. Hægt er að sækja um styrki fyrir skipulags- og
hönnunarvinnu ásamt undirbúningsrannsóknum.
Við skipulag og hönnun mannvirkja er höfð til
hliðsjónar “Menningarstefna í mannvirkjagerð”
sem gefin var út af Menntamálaráðaneytinu í apríl
2007, Leiðbeiningarritið Góðir staðir, sem fjallar
um uppbyggingu vandaðra ferðamannastaða
(í vinnslu), og skipulagslög nr. 123/2010.
3. Ef sótt er um styrk fyrir byggingu mannvirkja eða
aðrar framkvæmdir verður skipulag, fullnaðar-
hönnun og framkvæmdaleyfi að liggja fyrir.
4. Framlög til einkaaðila eru háð því skilyrði að
um sé að ræða ferðamannastaði sem eru opnir
almenningi.
5. Að jafnaði getur styrkur ekki numið hærri upp-
hæð en 50% af kostnaði.
Allar umsóknir skulu innihalda:
a. Verkefnislýsingu sem lýsir hugmyndinni
með rökstuddum og skýrum hætti
b. Kostnaðar- og verkáætlun
c. Afrit af skipulagi svæðis og/eða skriflegt samþykki
viðkomandi yfirvalda vegna verkefnisins
d. Teikningar af mannvirkjum, þar sem það á við,
og/eða skriflegt samþykki byggingarfulltrúa
e. Skriflegt samþykki allra landeigenda og/eða
umsjónaraðila
Nánari leiðbeiningar og umsóknareyðublöð má finna
á heimasíðu Ferðamálastofu www.ferdamalastofa.is.
Hverjir geta sótt um:
Öllum sem hagsmuna eiga að gæta er frjálst að
sækja um styrk að uppfylltum ofangreindum
skilyrðum. Við úthlutun verður m.a. tekið mið af
ástandi og álagi á svæði, og mikilvægi aðgerðanna
út frá náttúruverndarsjónarmiðum.
Hvar ber að sækja um:
Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu
Ferðamálastofu www.ferdamalastofa.is. Þar eru
jafnframt leiðbeiningar um hvernig skal sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Sveinn Rúnar Traustason
umhverfisstjóri Ferðamálastofu í síma 535-5500
eða með vefpósti sveinn@ferdamalastofa.is.
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki til
uppbyggingar á ferðamannastöðum fyrir árið 2012.
ICELANDIC
TOURIST
STOFA
BOARD
Geirsgata 9 | 101 Reykjavík | Iceland | Sími/Tel +354 535 5500 | Fax +354 535 5501
Strandgata 29 | 600 Akureyri | Iceland | Sími/Tel +354 535-5510 | Fax +354 535 5501
FRAMKVÆMDASJÓÐUR
FERÐAMANNASTAÐA
H
ön
n
u
n
:
P
O
R
T
h
ön
n
u
n
Aðalfundur Skíðaráðs Reykjavíkur verður haldin
Fimmtudaginn 27. október, kl. 20:00
í fundarsal E, Íþróttamiðstöðinni í
Laugardal, Engjavegi 6, Reykjavík.
Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf
samkvæmt lögum SKRR.
Stjórn SKRR
Aðalfundur Skíðaráðs Reykjavíkur
SÖLUMAÐUR KEFLAVÍK
REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR KEFLAVÍK SELFOSS HAFNARFJÖRÐUR
Umsækjendur þurfa að hafa eftirfarandi eiginleika:
Öflugur sölumaður óskast í fullt starf í verslun okkar í Keflavík
Umsóknir ásamt ferilskrá
með mynd sendist
á tölvupósti: starf@
tolvulistinn.is