Fréttablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 15. október 2011 3
„Við mælum ekkert sérstaklega
með einum nammidegi í viku en
sé hann ákveðinn er nauðsynlegt
að skammta sælgætið úr hnefa,“
segir Elva Gísladóttir, verkefna-
stjóri næringar hjá embætti
landlæknis.
Hún segir helsta ókost nammi-
dags felast í óhóflegu magni sæl-
gætis og vill sjá afslátt afnuminn
af nammibörum um helgar.
„Afsláttur veldur því að fólk
kaupir meira en ella, á meðan lík-
aminn hefur ekki svigrúm fyrir
svo mikinn viðbættan sykur,“ segir
Elva og tekur dæmi um 2.000 hita-
eininga fæði, þar sem að hámarki
10 prósent orkunnar koma úr sykri.
„Það gera aðeins 50 grömm syk-
urs á dag. Í daglegu lífi þurfum við
að vera meðvituð um þennan litla
skammt og líka hafa hugfast að
sykur leynist mjög víða.“
Elva segir umhugsunarefni
hvort ekki væri skynsamlegra að
kenna börnum að borða sælgæti í
hófi, þegar löngun í sætindi kemur,
burtséð frá því hvaða dagur er.
„Það þarf að kenna þeim að ekki
þarf sérstök tilefni til sælgætis-
áts, eins og nammidaga, bíóferð-
ir, afmæli og fleira sem kallar á
sætindi,“ segir Elva og ráðleggur
einbeitta svengdarstjórnun.
„Þá dygði eitt lítið súkkulaði-
stykki í stað ofgnóttar sælgæt-
is á sérstökum nammidegi þegar
sjónvarp og tölvur taka athygli frá
því hversu mikið er borðað. Við
ættum frekar að tileinka okkur
minni skammta og njóta þeirra
með ánægju og athygli.“
Elva segir af og frá að líkam-
anum sé hollt að fá vikulegt sjokk
skyndibita og sykurs, eins og
margt líkamsræktarfólk prédikar
með einum sukkdegi í viku.
„Slíkt er ekki samkvæmt opin-
berum ráðleggingum og embætti
landlæknis hvetur til heilsuefling-
ar heilsunnar vegna. Við viljum
komast út úr þyngdar- og holda-
farsumræðu, því allir þurfa að
hreyfa sig og fylgja ráðlegging-
um embættisins, þar sem stund-
um er líka svigrúm til að borða
sætt og meira,“ segir Elva og legg-
ur áherslu á að allt sé best í hófi,
en aðgát skuli höfð í sælgætisvali
barna.
„Samkvæmt Evróputilskipun
átti strax í fyrra að birta varúðar-
merkingar á öllu sælgæti sem
inniheldur litarefni sem talin eru
tengjast ofvirkni barna. Á meðan
þeim merkingum er ábótavant er
enn meiri ástæða til að gæta hófs í
neyslu sælgætis,“ segir Elva.
Litarefnin eru númer 102, 104,
110, 122, 124 og 129. Ýmist eru þau
merkt E-númeri eða heiti sínu á
mismunandi tungumálum.
Jónína Stefánsdóttir, fagsviðs-
stjóri hjá Matvælastofnun, segir
reglugerð um litarefnin vera nú til
afgreiðslu hjá ráðuneytinu.
„Ákvæðið tekur gildi á næstu
dögum og þá verður undir sölu-
aðilum komið að merkja umbúðir
rétt. Innihaldslýsingar eru oft ill-
skiljanlegar neytendum en þurfa að
vera greinargóðar og aðgengilegar,“
segir Jónína og bætir við að merkja
þyrfti hvert og eitt sælgætis ílát á
nammibörum landsins.
„Því miður hefur ekki verið tekið
nægilega hart á þessu, en einfald-
ast væri að nota varúðarmiða sem
allir geta skilið, enda varða litar-
efnin mögulega heilsufar barna,“
segir Jónína. thordis@frettabladid.is
Vikulegt sykursjokk
er óhollt
Nammidagur er hjá velflestum Íslendingum í dag og margir sækja
sér sekki sælgætis á afsláttarverði á nammibörum. Á sælgætisbox
vantar enn tilskildar varúðarmerkingar vegna hættulegra litarefna.
Sælgætismagnið á
myndinni er 100 g af
blandi í poka, sem veitir
um 50 g af viðbættum
sykri. Þar með er hámarks
sykurneyslu dagsins fyrir
barn á aldrinum 9-10
ára náð. Ef hálfur lítri af
gosdrykk er drukkinn með
bætist annað eins magn
af sykri við. Sykurmolarnir
sýna hversu margir eru
í þessu magni sælgætis.
Elva Gísladóttir er verkefnastjóri næringar hjá embætti landlæknis. Hún segir afslátt á sælgæti gera fólki auðveldara fyrir að fylla
stóra sekki á freistandi nammibörum en mikið vanti upp á varúðarmerkingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
100 grömm af blandi í poka fullnægir hámarks
sykurneyslu 9-10 ára barna.
MYND/LÝÐHEILSUSTÖÐ
www.mysecret.is
frá M y S e c r e t
“Engiferdrykkurinn aada frá My Secret
vann til verðlauna í alþjóðlegri samkeppni
drykkjarvöruframleiðanda
fyrir besta hráefnið og innihaldið”
“Aðal áherslan hjá My Secret er að
framleiða aada drykkina úr fersku hráefni og
því notum við einungis ferskt engifer í okkar
drykki”
“Til að fá sem mesta virkni úr engifer er
nauðsynlegt að blanda rétt saman sýrum,
kryddi, sykur og engifer”
“Aðferðin sem notuð er skiptir miklu máli
til að halda næringargildi og virkum efnum í
engiferinu”
“Þetta vitum við með okkar leyndarmáli og
því er það okkur mikill heiður að vinna þessi
virtu alþjóðlegu verðlaun”. s cr t.is
„Engiferdrykkurinn aada frá My Secret
vann til verðl una í lþjóðlegri samkeppni
d ykkjarvö uframleiðe da
fyrir besta innihaldið og hráefnið“
„Aðal áhersl n hjá My Secret er að
framleiða aada drykkina úr fersku hráefni og
því notum við einungis ferskt engifer í okkar
drykki“
„Til að fá sem mesta virkni úr engifer er
nauðsynlegt að blanda rétt saman sýrum,
kryddi, sykur og engifer“
„Aðferðin sem notuð er skiptir miklu máli
til að halda næringargildi og virkum efnum í
engiferinu“
„Því erum við afar stolt að fá þessi virtu
alþjólegu verðlaun“