Fréttablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 15. október 2011 19 Fólk með lausnir Hjá Nýherja starfa hátt í 300 sérfræðingar í upplýsingatækni. Lausnir okkar byggja á skilningi á þörfum viðskiptavina, framúrskarandi tækniþjónustu og tæknibúnaði frá heims- þekktum framleiðendum. Með frumkvæði og metnað að leiðarljósi finnum við réttu lausnina fyrir þitt fyrirtæki. Nýherji hf. Sími 569 7700 www.nyherji.is Í viðtalsþætti á RÚV 9. októ-ber sl. bauðst landsmönnum að skyggnast inn í þann hryll- ing sem sifjaspell og kynferðis- leg misnotkun barna er. Reið- in kraumar í mönnum og beinist eðlilega að yfirstjórn kirkjunnar og þá sér í lagi biskupi sem ítrek- að brást konunum sem reyndu að segja sögu sína af Ólafi Skúlasyni árum saman fyrir daufum stofn- anaeyrum. Guðrún Ebba Ólafsdóttir sýndi mikinn kjark og fádæma æðru- leysi þegar hún kom fram fyrir alþjóð og sagði sögu sína af ein- lægni og yfirvegun. Líklega er það fyrst og fremst hennar framgöngu að þakka að öðrum konum í málum Ólafs er nú trúað og þeim jafnvel þakkað fyrir baráttu sína. Sem sálfræðingur, m.a. í barna- vernd, þekki ég nokkuð til þessara erfiðu mála. Þau koma illa við alla og enginn skyldi vanmeta þá ang- ist og hrylling sem eru fylgifisk- ur þeirra. En hinu má ekki gleyma að til er nokkuð sem heitir rangar sakargiftir og hryllingur þeirra er líka óskaplegur. Í viðtalinu sagði Guðrún Ebba að minningabrotin hefðu fyrst skotið upp kollinum fyrir átta árum. Þetta stakk mig vegna þess að ég veit hversu brigðult og óáreiðanlegt minni okkar er á stundum. Minningar eru ekki skráðar í orð eða myndir í heilan- um heldur eru þær byggðar upp aftur og aftur við hverja yfirferð og þá getur ýmislegt skolast til; breyst, tapast eða bæst við. Allir sálfræðingar ættu líka að þekkja fyrirbæri sem kallast falskar eða rangar minningar. Í Bandaríkjunum gaus upp mikið fár á níunda og tíunda áratug síð- ustu aldar þegar það komst í tísku að grafa upp „bældar“ minning- ar, sem oftar en ekki snerust um kynferðislega misnotkun í æsku. Afleiðingarnar voru hörmulegar nornaveiðar. Um þessar mundir er Guðmund- ar- og Geirfinnsmálið ofarlega í hugum landsmanna, þar sem grunaðir játuðu á sig sakir eftir ómanneskjulega og óafsakanlega langa gæsluvarðhaldsvist. Í slíkri einangrun er ekki skrítið að fólk játi á sig rangar sakir og fari jafn- vel að trúa eigin játningum, telji sig muna atburði sem síðan kemur í ljós að voru helber skáldskapur. Í fræðum um þessi mál er orsökin nefnd sefnæmi og við eigum einn fremsta sérfræðing heims á sviði þess og falskra játninga, Gísla Guðjónsson sálfræðing. En sefnæmi er líka fyrir hendi í meðferð og líkt og lögreglumenn í yfirheyrslum geta „meðferðarað- ilar“ spurt leiðandi spurninga og í raun leitt þá sefnæmustu inn á brautir sem þá hefði aldrei órað fyrir eða þeir sækjast eftir. Ef „meðferðaraðilinn“ er mik- ill áhugamaður um geimverur, komur þeirra til jarðar og til- raunir á mönnum má búast við að ákveðinn hluti skjólstæðinga hans fari að „muna“ eftir því þegar þeim var rænt í slíkar tilraunir. Ef skjólstæðingurinn hefur áhuga á endurholdgun getur hann leitað til „meðferðaraðila“ sem „hjálp- ar“ honum að rifja upp fyrri líf eða minningar úr móðurkviði. Í fárinu í Bandaríkjunum var líka mjög algengt að fólk „mundi“ smám saman eftir að hafa verið viðstatt satanískar fórnarathafn- ir. Ef helsta hugðarefni skjól- stæðings eða „meðferðaraðila“ er kynferðisleg misnotkun geta þeir báðir leiðst á villigötur sef- næmis og falskra minninga ef fag- mennsku er ábótavant. Sefnæmi er ekki aulaháttur og sefnæm manneskja er ekki verr gefin en hver önnur, jafnvel betur. Hún er hins vegar yfirleitt með auðugra ímyndunarafl en meðal- jóninn. Sama manneskja getur líka verið missefnæm eftir því í hvaða aðstæðum hún er á lífsleið- inni. Þetta er flókið spil. Minningar, sem sannarlega hafa reynst falskar, hafa leitt til skelfi- legra afleiðinga, m.a. margra ára fangelsisvistar saklausra karla og kvenna. Þær hafa sundrað fjöl- skyldum, svipt fólk ærunni og leitt suma til að binda enda á eigið líf. Minningarnar geta verið afar raunverulegar, frásagnir af þeim trúverðugar og særindin átakan- leg en það er ekki mælikvarði á sannleiksgildi þeirra. Ef mál er einvörðungu byggt á „bældum“ minningum er ábyrgðarlaust að líta framhjá hættunum sem staf- ar af fölskum minningum. Mikilvægt er að fórnarlömbum kynferðislegrar áreitni og ofbeld- is sé gert sem auðveldast fyrir að leita réttar síns og stuðnings. Óskandi væri að aldrei þyrfti að efast um frásagnir þeirra því það er sárt að mæta tortryggni og efa- semdum, það bætir aðeins gráu ofan á svart þegar á manni hefur verið brotið. En við megum ekki gleyma fórnarlömbum rangra sakargifta, falskra játninga og falskra minninga. Þess vegna er mikilvægt að um þessi mál sé fjallað af yfirvegun og þekkingu. Fórnarlömb falskra minninga og sakargifta eru ekki bara sak- lausir karlar og konur, sem eru sökuð um hroðalega glæpi, held- ur líka aðstandendur þeirra. En manneskjan sem fer að trúa fölsk- um minningum sínum er líka fórn- arlamb og erlendis hafa „meðferð- araðilar“ sem komið hafa fölskum minningum í koll skjólstæðinga sinna verið dæmdir til greiðslu hárra skaðabóta. En kannski eru það fyrst og fremst raunveruleg fórnarlömb kynferðisglæpa sem líða mest fyrir konur og karla sem bera fram rangar sakargift- ir vegna slíkra glæpa, hvort sem það er vegna falskra minninga eða annars, því einmitt vegna þess að rangar sakargiftir og falskar minningar fyrirfinnast þarf allt- af að hafa varann á. Mikilvægt er að fórnarlömbum kynferðis- legrar áreitni og ofbeldis sé gert sem auðveldast fyrir að leita réttar síns og stuðnings. Óskandi væri að aldrei þyrfti að efast um frásagnir þeirra því það er sárt að mæta tortryggni og efasemdum, það bætir aðeins gráu ofan á svart þegar á manni hefur verið brotið. Bældar og falskar minningar Minningar Reynir Harðarson sálfræðingur Tenerife 25. október Frá kr. 129.900 með „öllu inniföldu“ 10 nátta ferð - síðustu sætin! Heimsferðir bjóða frábær tilboð á allra síðustu sætunum til Tenerife þann 25. október. Flogið er í beinu leiguflugi til Tenerife en heimflugið er í gegnum Kaupmannahöfn þar sem gist er síðustu nóttina. Í boði eru sértilboð m.a. á Villa Adeje Beach íbúðahótelinu með “öllu inniföldu” og á tveimur frábærum hótelum Hotel Jacaranda og Hotel Bahia Pricipe. Athugið að mjög takmörkuð gisting er í boði! Innifalið er flug báðar leiðir, skattar, gisting í 9 nætur á Tenerife og 1 nótt í Kaupmannahöfn (rútuferð milli hótels og flugvallar í Kaupmannahöfn innifalin). Frá kr. 129.900 Hotel Villa Adeje *** með “öllu inniföldu” Netverð á mann m.v. tvo fullorðna og eitt eða tvö börn, 2-11 ára, í 9 nætur með “öllu inniföldu”. Verð m.v. gistingu í tvíbýli kr. 149.900. Sértilboð 25. október. Frá kr. 147.900 Hotel Jacaranda **** með hálfu fæði eða “öllu inniföldu” Netverð á mann m.v. tvo fullorðna og eitt barn, 2-11 ára, í 9 nætur með hálfu fæði. Verð m.v. gistingu í tvíbýli kr. 169.900. Aukagjald fyrir “allt innifalið” kr. 18.900 fyrir fullorðna og kr. 9.450 fyrir börn. Sértilboð 25. október. Frá kr. 185.000 Hotel Bahia Principe ****+ með “öllu inniföldu” Netverð á mann m.v. tvo fullorðna og eitt barn, 2-11 ára, í 9 nætur með “öllu inniföldu”. Verð m.v. gistingu í tvíbýli kr. 199.900. Aukalega m.v. gistingu í “junior suite” kr. 13.200. Sértilboð 25. október.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.