Fréttablaðið - 15.10.2011, Síða 19
LAUGARDAGUR 15. október 2011 19
Fólk með lausnir
Hjá Nýherja starfa hátt í 300 sérfræðingar í upplýsingatækni.
Lausnir okkar byggja á skilningi á þörfum viðskiptavina,
framúrskarandi tækniþjónustu og tæknibúnaði frá heims-
þekktum framleiðendum.
Með frumkvæði og metnað að leiðarljósi finnum
við réttu lausnina fyrir þitt fyrirtæki.
Nýherji hf. Sími 569 7700 www.nyherji.is
Í viðtalsþætti á RÚV 9. októ-ber sl. bauðst landsmönnum
að skyggnast inn í þann hryll-
ing sem sifjaspell og kynferðis-
leg misnotkun barna er. Reið-
in kraumar í mönnum og beinist
eðlilega að yfirstjórn kirkjunnar
og þá sér í lagi biskupi sem ítrek-
að brást konunum sem reyndu að
segja sögu sína af Ólafi Skúlasyni
árum saman fyrir daufum stofn-
anaeyrum.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir sýndi
mikinn kjark og fádæma æðru-
leysi þegar hún kom fram fyrir
alþjóð og sagði sögu sína af ein-
lægni og yfirvegun.
Líklega er það fyrst og fremst
hennar framgöngu að þakka að
öðrum konum í málum Ólafs er
nú trúað og þeim jafnvel þakkað
fyrir baráttu sína.
Sem sálfræðingur, m.a. í barna-
vernd, þekki ég nokkuð til þessara
erfiðu mála. Þau koma illa við alla
og enginn skyldi vanmeta þá ang-
ist og hrylling sem eru fylgifisk-
ur þeirra. En hinu má ekki gleyma
að til er nokkuð sem heitir rangar
sakargiftir og hryllingur þeirra er
líka óskaplegur.
Í viðtalinu sagði Guðrún Ebba
að minningabrotin hefðu fyrst
skotið upp kollinum fyrir átta
árum. Þetta stakk mig vegna
þess að ég veit hversu brigðult
og óáreiðanlegt minni okkar er
á stundum. Minningar eru ekki
skráðar í orð eða myndir í heilan-
um heldur eru þær byggðar upp
aftur og aftur við hverja yfirferð
og þá getur ýmislegt skolast til;
breyst, tapast eða bæst við.
Allir sálfræðingar ættu líka
að þekkja fyrirbæri sem kallast
falskar eða rangar minningar. Í
Bandaríkjunum gaus upp mikið
fár á níunda og tíunda áratug síð-
ustu aldar þegar það komst í tísku
að grafa upp „bældar“ minning-
ar, sem oftar en ekki snerust um
kynferðislega misnotkun í æsku.
Afleiðingarnar voru hörmulegar
nornaveiðar.
Um þessar mundir er Guðmund-
ar- og Geirfinnsmálið ofarlega
í hugum landsmanna, þar sem
grunaðir játuðu á sig sakir eftir
ómanneskjulega og óafsakanlega
langa gæsluvarðhaldsvist. Í slíkri
einangrun er ekki skrítið að fólk
játi á sig rangar sakir og fari jafn-
vel að trúa eigin játningum, telji
sig muna atburði sem síðan kemur
í ljós að voru helber skáldskapur.
Í fræðum um þessi mál er orsökin
nefnd sefnæmi og við eigum einn
fremsta sérfræðing heims á sviði
þess og falskra játninga, Gísla
Guðjónsson sálfræðing.
En sefnæmi er líka fyrir hendi í
meðferð og líkt og lögreglumenn í
yfirheyrslum geta „meðferðarað-
ilar“ spurt leiðandi spurninga og
í raun leitt þá sefnæmustu inn á
brautir sem þá hefði aldrei órað
fyrir eða þeir sækjast eftir.
Ef „meðferðaraðilinn“ er mik-
ill áhugamaður um geimverur,
komur þeirra til jarðar og til-
raunir á mönnum má búast við að
ákveðinn hluti skjólstæðinga hans
fari að „muna“ eftir því þegar
þeim var rænt í slíkar tilraunir.
Ef skjólstæðingurinn hefur áhuga
á endurholdgun getur hann leitað
til „meðferðaraðila“ sem „hjálp-
ar“ honum að rifja upp fyrri líf
eða minningar úr móðurkviði. Í
fárinu í Bandaríkjunum var líka
mjög algengt að fólk „mundi“
smám saman eftir að hafa verið
viðstatt satanískar fórnarathafn-
ir. Ef helsta hugðarefni skjól-
stæðings eða „meðferðaraðila“
er kynferðisleg misnotkun geta
þeir báðir leiðst á villigötur sef-
næmis og falskra minninga ef fag-
mennsku er ábótavant.
Sefnæmi er ekki aulaháttur og
sefnæm manneskja er ekki verr
gefin en hver önnur, jafnvel betur.
Hún er hins vegar yfirleitt með
auðugra ímyndunarafl en meðal-
jóninn. Sama manneskja getur
líka verið missefnæm eftir því í
hvaða aðstæðum hún er á lífsleið-
inni. Þetta er flókið spil.
Minningar, sem sannarlega hafa
reynst falskar, hafa leitt til skelfi-
legra afleiðinga, m.a. margra ára
fangelsisvistar saklausra karla
og kvenna. Þær hafa sundrað fjöl-
skyldum, svipt fólk ærunni og
leitt suma til að binda enda á eigið
líf. Minningarnar geta verið afar
raunverulegar, frásagnir af þeim
trúverðugar og særindin átakan-
leg en það er ekki mælikvarði á
sannleiksgildi þeirra. Ef mál er
einvörðungu byggt á „bældum“
minningum er ábyrgðarlaust að
líta framhjá hættunum sem staf-
ar af fölskum minningum.
Mikilvægt er að fórnarlömbum
kynferðislegrar áreitni og ofbeld-
is sé gert sem auðveldast fyrir
að leita réttar síns og stuðnings.
Óskandi væri að aldrei þyrfti að
efast um frásagnir þeirra því það
er sárt að mæta tortryggni og efa-
semdum, það bætir aðeins gráu
ofan á svart þegar á manni hefur
verið brotið. En við megum ekki
gleyma fórnarlömbum rangra
sakargifta, falskra játninga og
falskra minninga. Þess vegna er
mikilvægt að um þessi mál sé
fjallað af yfirvegun og þekkingu.
Fórnarlömb falskra minninga
og sakargifta eru ekki bara sak-
lausir karlar og konur, sem eru
sökuð um hroðalega glæpi, held-
ur líka aðstandendur þeirra. En
manneskjan sem fer að trúa fölsk-
um minningum sínum er líka fórn-
arlamb og erlendis hafa „meðferð-
araðilar“ sem komið hafa fölskum
minningum í koll skjólstæðinga
sinna verið dæmdir til greiðslu
hárra skaðabóta. En kannski eru
það fyrst og fremst raunveruleg
fórnarlömb kynferðisglæpa sem
líða mest fyrir konur og karla
sem bera fram rangar sakargift-
ir vegna slíkra glæpa, hvort sem
það er vegna falskra minninga eða
annars, því einmitt vegna þess
að rangar sakargiftir og falskar
minningar fyrirfinnast þarf allt-
af að hafa varann á.
Mikilvægt er að fórnarlömbum kynferðis-
legrar áreitni og ofbeldis sé gert sem
auðveldast fyrir að leita réttar síns og
stuðnings. Óskandi væri að aldrei þyrfti að efast um
frásagnir þeirra því það er sárt að mæta tortryggni og
efasemdum, það bætir aðeins gráu ofan á svart þegar
á manni hefur verið brotið.
Bældar og falskar minningar
Minningar
Reynir
Harðarson
sálfræðingur
Tenerife
25. október
Frá kr. 129.900 með „öllu inniföldu“
10 nátta ferð - síðustu sætin!
Heimsferðir bjóða frábær tilboð á allra síðustu sætunum til Tenerife þann 25. október. Flogið er í beinu leiguflugi til Tenerife en
heimflugið er í gegnum Kaupmannahöfn þar sem gist er síðustu nóttina. Í boði eru sértilboð m.a. á Villa Adeje Beach íbúðahótelinu
með “öllu inniföldu” og á tveimur frábærum hótelum Hotel Jacaranda og Hotel Bahia Pricipe.
Athugið að mjög takmörkuð gisting er í boði! Innifalið er flug báðar leiðir, skattar, gisting í 9 nætur á Tenerife og 1 nótt í
Kaupmannahöfn (rútuferð milli hótels og flugvallar í Kaupmannahöfn innifalin).
Frá kr. 129.900 Hotel Villa Adeje *** með “öllu inniföldu”
Netverð á mann m.v. tvo fullorðna og eitt eða tvö börn, 2-11 ára, í 9 nætur með “öllu inniföldu”.
Verð m.v. gistingu í tvíbýli kr. 149.900. Sértilboð 25. október.
Frá kr. 147.900 Hotel Jacaranda **** með hálfu fæði eða “öllu inniföldu”
Netverð á mann m.v. tvo fullorðna og eitt barn, 2-11 ára, í 9 nætur með hálfu fæði. Verð m.v.
gistingu í tvíbýli kr. 169.900. Aukagjald fyrir “allt innifalið” kr. 18.900 fyrir fullorðna og kr. 9.450
fyrir börn. Sértilboð 25. október.
Frá kr. 185.000 Hotel Bahia Principe ****+ með “öllu inniföldu”
Netverð á mann m.v. tvo fullorðna og eitt barn, 2-11 ára, í 9 nætur með “öllu inniföldu”. Verð m.v.
gistingu í tvíbýli kr. 199.900. Aukalega m.v. gistingu í “junior suite” kr. 13.200. Sértilboð 25. október.