Fréttablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 8
15. október 2011 LAUGARDAGUR8
Grænn Kostur
Skólavörðustíg 8
101 Reykjavík
Sími: 552 2028
www.graennkostur.is
15%
afsláttur
Við bjóðum öllum þeim sem bera
Iceland Airwaves armband 15% afslátt.
Ljúffengir og hollir grænmetisréttir
og ómótstæðilegir eftirréttir fyrir
svanga tónleikagesti.
Iceland
Airwaves
tilboð
SAMFÉLAGSMÁL Vin við Hverfis-
götu, athvarf Rauða Kross-
ins fyrir fólk með geðraskan-
ir, mun loka dyrum sínum eftir
tveggja áratuga starf, í lok mars
á næsta ári að öllu óbreyttu. Með-
limir nýstofnaðs hollvinafélags
athvarfsins, Vinafélagið, hyggj-
ast standa vörð um starfsemina.
Ástæða þess að Rauði krossinn
hefur ákveðið að loka Vin, er fjár-
hagslegs eðlis. Áætlaður rekstrar-
kostnaður athvarfsins á næsta ári
er um 25 milljónir króna, að því
er kemur fram í frétt á vef Rauða
krossins, en þar segir jafnframt
að á bilinu 25 til 30 gestir hafi að
jafnaði sótt athvarfið hvern dag.
Þar vinna fjórir starfsmenn.
Kristján Sturluson, fram-
kvæmdastjóri Rauða kross-
ins, segir á vefnum að samtökin
treysti sér ekki til að halda rekstr-
inum áfram og hafi því leitað til
Reykjavíkurborgar í september í
fyrra varðandi aðkomu að rekstri
Vinjar.
Þó að yfirvöld sýndu því áhuga
að sinna málaflokki geðfatlaðra
vel, hafi þó verið ljóst að borgin
myndi ekki taka yfir reksturinn á
Vin og því hafi verið ákveðið að
loka athvarfinu. Kristján segist þó
gjarna vilja sjá Vin starfa áfram,
eða þá einhver önnur úrræði fyrir
skjólstæðinga athvarfsins.
Vin fékk á dögunum Hvatning-
arverðlaun Geðhjálpar. Verðlaun-
in eru veitt fyrir nýjungar eða
frumkvæði í þjónustu við þá sem
glíma við geðraskanir og eru jafn-
framt hugsuð sem „stuðningsyfir-
lýsing og hvatning til einingar hjá
þeim er starfa að bættum hag geð-
sjúkra“.
Geðhjálp segist harma lokun
Vinjar og lýsa yfir stuðningi
við áframhaldandi starfsemi í
athvarfinu.
Stofnfundur Vinafélagsins á
fimmtudagskvöld var fjölsóttur
og var Magnús Matthíasson kjör-
inn formaður.
Í tilkynningu frá Vinafélaginu
er haft eftir Magnúsi að athvarfið
í Vin sé einstakt og nauðsynlegt
að allir taki höndum saman um að
tryggja framtíð starfsins.
Það væri „miðpunktur í lífi fjöl-
margra einstaklinga“.
Magnús kallaði eftir samvinnu
Rauða krossins, Reykjavíkur-
borgar og ríkisins og hét stuðn-
ingi Vinafélagsins, sem hefur sett
sér það markmið að safna árlega
fyrir rekstrarkostnaði Vinjar, að
frátöldum launakostnaði.
Hátt í 200 manns höfðu þegar
gengið í Vinafélagið fyrir helgi,
en árgjaldið, 3.000 krónur, renn-
ur óskipt til starfseminnar í Vin.
thorgils@frettabladid.is
Félag gegn lokun athvarfs
fyrir fólk með geðraskanir
Rauði krossinn hyggst loka Vin, athvarfi fyrir fólk með geðraskanir, í mars vegna mikils rekstrarkostnaðar.
Leitaði eftir samstarfi við Reykjavíkurborg. Vinafélagið stofnað til að koma í veg fyrir lokun athvarfsins.
GLATT Á HJALLA Athvarfið Vin hefur verið fjölsótt þau tuttugu ár sem það hefur verið
starfrækt. Um 25 til 30 gestir sækja Vin á hverjum degi.
EFNAHAGSMÁL Fjármálafyrirtæki
höfðu í lok ágúst afskrifað lán til
einstaklinga um 163,6 milljarða
króna. Niðurfærsla vegna hinn-
ar svokölluðu 110 prósenta leiðar
nemur um 27,2 milljörðum en enn
eru fimm þúsund mál í vinnslu.
Þá nemur niðurfærsla vegna sér-
tækrar skuldaaðlögunar tæpum
5,6 milljörðum króna en 600 mál
eru enn í vinnslu.
Þetta kemur fram í tölum sem
Samtök fjármálafyrirtækja (SFF)
sendu frá sér í gær. Tölurnar eru
í samræmi við tölur sem birtust
í Þjóðhagsáætlun 2012 sem Árni
Páll Árnason, efnahags- og við-
skiptaráðherra, lagði fyrir Alþingi
í síðustu viku.
Í tilkynningu Samtaka fjármála-
fyrirtækja kemur einnig fram að
fjármálafyrirtæki landsins höfðu
lokið endurútreikningi á 70 þús-
und gengistryggðum lánum í lok
ágúst. Þar af voru rúm 12.700 fast-
eignalán og 57 þúsund bifreiðalán.
Heildarniðurfærsla fasteigna-
veðlána vegna endurútreiknings
var rúmir 92 milljarðar króna og
heildarniðurfærsla bifreiðalána
um 38,4 milljarðar króna.
Í tilkynningunni frá SFF kom
einnig fram að í eldri tölum frá
samtökunum var niðurfærsla
vegna endurútreiknaðra bílalána
ofmetin um rúma tvo milljarða
króna.
- mþl
Uppfærðar tölur um afskriftir á lánum einstaklinga:
164 milljarða afskriftir
ÍBÚÐARHÚS Endurútreikningar gengistryggðra lána í kjölfar dóms Hæstaréttar um
ólögmæti slíkra lána hafa talsvert gengið á afskriftasvigrúm fjármálastofnana.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SAMFÉLAGSMÁL Íslendingar eru næsthamingju-
samasta þjóð veraldar á eftir Dönum. Þetta er
niðurstaða Efnahags- og framfarastofnunar
Evrópu (OECD) sem hefur gefið út skýrslu
um vellíðan og hamingju í 40 löndum víða um
heim.
Á eftir Dönum og Íslendingum koma Jap-
anar, Indónesar, Hollendingar, Norðmenn og
Svíar. Niðurstöðurnar byggja á svörum íbúa
í löndunum við spurningum um líðan sína.
Tyrkir, Eistar og Ungverjar voru óhamingju-
samastir þeirra þjóða sem rannsakaðar voru.
Í skýrslunni er einnig gerð tilraun til að
mæla lífskjör í löndum OECD. Þar trónir Dan-
mörk einnig á toppnum en Ísland er í 16. til 17.
sæti ásamt Belgíu. Á eftir Danmörku koma
Kanada og Noregur á lífskjaralistanum.
Í skýrslunni er litið til ellefu þátta sem
taldir eru hafa áhrif á hamingju og vellíðan.
Þeirra á meðal eru tekjur, starfsumhverfi og
húsnæði en einnig heilsa, menntun, samheldni
þjóðfélags og hreinleiki umhverfis. Skýrsl-
an, sem kom út á miðvikudag, er gefin út í
tengslum við vinnu OECD við að hanna lífs-
kjaramælikvarða sem eru víðtækari en verg
landsframleiðsla.
Meðal niðurstaðna skýrslunnar eru að það
að vera í starfi er lykilatriði þegar kemur
að vellíðan einstaklinga. Gott starf tryggir
tekjur, hefur jákvæð áhrif á sjálfsmynd og
ýtir undir félagsleg tengsl.
- mþl
OECD mælir hamingju íbúa og lífskjör í 40 löndum víða um heim:
Íslendingar næsthamingjusamastir á eftir Dönum
AUSTURVÖLLUR Íslendingar eru næst hamingjusam-
asta þjóð heims að mati OECD. Lífskjör þykja hins
vegar betri í fimmtán öðrum löndum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
1. Hvar munu forsetahjónin verða
viðstödd galakvöldverð ásamt
kóngafólki af Norðurlöndunum?
2. Hver var heildarafli íslenskra
skipa fyrstu sjö mánuði ársins?
3. Hvaða lið í handbolta karla
hefur fullt hús stiga eftir fjórar
umferðir?
SVÖR: 1. Í NEW YORK. 2. 928
ÞÚSUND TONN. 3. FRAM.
LÖGREGLAN Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu lagði hald á
fimmtíu kannabisplöntur við hús-
leit í íbúð í Vogahverfi í gærdag.
Enginn bjó í íbúðinni þar sem
efnið fannst, heldur var hún
undirlögð af plöntum og tækjum
til ræktunar á kannabis. Einnig
var lagt hald á tækin.
Einn var handtekinn vegna
málsins og telur lögreglan að
málið sé upplýst. Þá minnir lög-
reglan á það í tilkynningu að
hægt sé að hringja nafnlaust í
fíkniefnasímann, 800 5005, til að
koma á framfæri upplýsingum
um fíkniefnamál. - þeb
Kannabisræktun upprætt:
50 plöntur í
mannlausri íbúð
Falsaði nafn konu
Ríkissaksóknari hefur ákært konu
á fertugsaldri fyrir fíkniefnaakstur
og fölsun. Konan ók um Reykjavík
þar til lögregla stöðvaði för hennar.
Þegar lögreglumenn höfðu afskipti af
ákærðu gaf hún ranglega upp nafn og
kennitölu annarrar konu og reyndi að
koma sökinni yfir á hana.
DÓMSMÁL
Skilaði ekki uppgjöri
Fyrrverandi starfsmaður vínbúðar-
innar á Hellu hefur verið ákærður fyrir
að skila ekki uppgjöri verslunarinnar,
ríflega 175 þúsund krónum, fyrir tvo
daga árið 2009. Þannig hafi hann
haldið fjármunum með ólögmætum
hætti frá eiganda sínum.
VEISTU SVARIÐ?