Fréttablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 96
15. október 2011 LAUGARDAGUR64
Bíó ★★
Borgríki
Leikstjóri: Ólafur Jóhannesson
Aðalhlutverk: Sigurður Sigurjónsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Ingvar
E. Sigurðsson, Zlatko Krickic, Björn Thors, Björn Hlynur Haraldsson,
Jonathan Pryce, Philip Jackson
Púður óskast
Það tók íslenska kvikmyndagerðarmenn dágóðan tíma að ná tökum á
spennumyndagerð en á endanum tókst það. Eftir nokkra skrambi vel
heppnaða þrillera þyrstir landann í meira, en um leið gerir hann meiri
kröfur. Borgríki er nýjasta kvikmynd leikstjórans Ólafs de Fleur, en hann leik-
stýrði Stóra planinu fyrir nokkrum árum, skemmtilega furðulegri mynd sem
skiptar skoðanir voru um. Boginn er spenntur hærra í Borgríki og skartar
myndin fjölmörgum frábærum leikurum, innlendum jafnt sem alþjóðlegum.
Siggi Sigurjóns er góður í hlutverki spillta lögreglumannsins Margeirs,
en hann hefur reyndar ágætt forskot því persóna hans er áhugaverðust.
Aðrar persónur eru fremur flatar og af þeim sökum var mér nokkuð sama
um afdrif þeirra, sem og framvindu sögunnar. Leikhópurinn, með örfáum
undantekningum, stendur sig þó ágætlega, enda virðist sem vandamálið
liggi frekar í handritinu en hjá leikurunum sjálfum. Ágústa Eva hefur til
dæmis mikla og góða nærveru sem leikkona og hefði persóna hennar verið
bitastæðari er ég viss um að myndinni hefði fyrirgefist margt annað.
Handritið er stórt í sniðum, persónurnar eru margar, og meira að segja
er flakkað eilítið til og frá í tíma, en púðrið vantar. Myndin gefur sér lítinn
tíma til að skapa tengsl við áhorfandann og steypir sér þess í stað beint í
hasarinn, en sökkullinn er veikbyggður og myndin fellur því undan eigin
þunga. Þetta er mikil synd því að djúpt í iðrum Borgríkis leynist saga sem ég
hefði gaman af því að sjá og heyra. Myndin er þó laus við töffarastælana og
rembinginn sem einkenndi íslenskar spennumyndir allt of lengi, og því ber
að hrósa.
Haukur Viðar Alfreðsson
Niðurstaða: Góður mannskapur nær ekki að bjarga losaralegu handritinu.
Borgríki er því töluverð vonbrigði.
BORGRÍKI Sigurður Sigurjónsson er flottur í hlutverki spillts lögreglumanns.
Fjölmiðlamiðstöð Iceland
Airwaves er á skemmtistaðn-
um Austur og þar var staddur
eigandi staðarinns, Ásgeir
Kolbeinsson, og einnig Diljá
Ámundadóttir, borgarfulltrúi
Besta flokksins. Á Gauki
á Stöng steig rapparinn
ungi Gísli Pálmi á svið og
þar var á meðal gesta
Logi Pedro Stefánsson
úr Retro Stefson, auk rapparanna Emmsjé
Gauta og Bents. Í Tjarnarbíói var borgar-
fulltrúinn Dagur B. Eggertsson sem fylgdist
með finnsku hljómsveitinni
22-Pistepirkko leika listir sínar.
Annar borgarfulltrúi var í
Hafnarhúsinu, Gísli Mar-
teinn Baldursson, sem var
mættur til að horfa á Beach
House. Í röðinni spjallaði hann
við Hollendinga og ráðlagði
þeim hvaða bönd þeir
ættu á sjá á hátíðinni.
Grínistinn Ari
Eldjárn var einnig í
Hafnarhúsinu ásamt kærustu sinni og vinum.
Sömuleiðis var þar fótboltakappinn fyrr-
verandi Ríkharður Daðason, þjálfarinn Gunn-
laugur Jónsson og íþróttafréttamaðurinn og
markaskorarinn Hjörtur Hjartason. Tónlistar-
spekúlantinn Dr. Gunni var einnig á svæðinu.
Hljómsveitin Plastic Ono Band tróð upp í
Norðurljósasal Hörpu. Þar var David Fricke,
blaðamaður bandaríska tímaritsins
Rolling Stone, í hvítum striga-
skóm og svörtum leðurjakka
merktum pönksveitinni The
Ramones. Sjónvarpsmaður-
inn Þórhallur Gunnarsson
sá einnig Yoko Ono ásamt
kvikmyndagerðarmanninum
Ara Alexander. - fb, sm
FÓLK Á AIRWAVES
Fimmtudagurinn 13. október
★★★
Borko
Hafnarhúsið
Skemmtilegt
Borko reið á vaðið í Hafnarhúsinu á fimmtu-
dagskvöld með stórskemmtilega popptónlist.
Blásturshljóðfæri færðu flutninginn upp á
annað stig og það var augljóst að Borko var í
stuði, því hann fór með gamanmál á milli laga.
„I‘m gonna give you the best of both worlds,
þannig að ég tala bæði á íslensku og ensku,“
grínaðist hann og skaut nett á þá sem kjósa að
skipta vandræðalega milli íslensku og ensku á
tónleikum sínum.
Hápunkturinn var lag um Lionel Richie, sem
endaði á skemmtilegri vísun í hinn ódauðlega
Þorpara Pálma Gunnarssonar. Skemmtilegir
tónleikar sem fleiri hefðu mátt sjá. - afb
★★
Hjaltalín
Hafnarhúsið
Lágt flug
Hljómsveitin Hjaltalín sló í gegn með fyrstu
breiðskífu sinni, Sleepdrunk Seasons, sem kom
út árið 2007 og þótti þá á meðal efnilegustu
sveita landsins. Sveitin steig á svið í Hafnarhús-
inu í gær og lék þá eitthvað af nýju efni í bland
við nokkur gömul og góð.
Tónleikarnir náðu engu sérstöku flugi og
beindist athygli tónleikagesta fyrst og fremst
að hinni mögnuðu söngkonu sveitarinnar,
Sigríði Thorlacius. Hljómsveitin var vel spilandi
og syngjandi en þrátt fyrir það vantaði stemn-
inguna í salinn. - sm
★★★★
Fig
Norðurljós í Hörpu
Tilþrif og tilrauna-
mennska
Dúóið Fig er skipað Yuku Honda úr Cibo Matto
og Nels Cline, gítarleikara Wilco. Þau spiluðu
þrjú lög sem öll voru tengd saman. Yuka spilaði
á hljómborð og rafgræjur en Nels á gítar sem
hann tengdi við ýmis tól. Þetta var tilraunakennt
og byrjaði rólega með juði á pedalarofum og
ýmsu effektasargi en stigmagnaðist þegar á leið.
Lag tvö var mjög flott og lokalagið hrein snilld,
en í því sýndi Nels mikil og góð tilþrif á gítarinn.
- tj
★★★★
The Ghost of a Saber Tooth Tiger
Norðurljós í Hörpu
Kósí byrjun á kvöldinu
Plastic Ono Band og plötuútgáfan Chimera
Music lögðu undir sig Norðurljósasal Hörpu á
fimmtudagskvöldið. Áður en Plastic Ono Bandið
og Yoko stigu á svið spiluðu þar fjórar hljóm-
sveitir sem allar eru skipaðar meðlimum í POB.
Fyrst á svið var poppsveit Sean Lennon og kær-
ustunnar Charlotte Kemp Muhl, The Ghost of a
Saber Tooth Tiger, en auk þeirra tveggja spilaði
trompetleikari Bon Iver, CJ Camerieri, með
þeim. Tónlistin var ljúft popp í anda sjöunda
áratugarins með smá sýruáhrifum. Sean spilaði
á gítar og trommusett, en Charlotte spilaði m.a.
á nikku og bassa og svo sungu þau bæði og CJ
blés af mikilli snilld. Fínt upphaf á kvöldinu. - tj
RAPPAÐ Á GAUKNUM Stúlka í salnum var svo ánægð með Gísla Pálma á tónleikum hans að hún reyndi
að rífa hann úr bolnum. Hann sá að lokum um það sjálfur.