Fréttablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 74
15. október 2011 LAUGARDAGUR42 H rekkjusvín er ein ástsælasta plata Íslandssögunnar og kannski hefur hreinlega enginn þorað í þetta verk- efni áður, að gera úr henni söngleik. Það er snúið,“ segir María Reyndal, leikstjóri söngleiksins Hrekkjusvín sem frumsýndur var í Gamla bíói í gærkvöldi. Söngleikurinn er unn- inn upp úr plötunni Lög unga fólks- ins sem tónlistarhópurinn Hrekkju- svín, með þá Valgeir Guðjónsson og Leif Hauksson í broddi fylking- ar, sendi frá sér árið 1977. Rit- höfundurinn Pétur Gunnars- son samdi söng- textana á plöt- unni, sem naut mikilla vinsælda þá og gerir enn hjá fólki á ýmsum aldri, enda „plata fyrir alla fjölskylduna … og ein- hleypa,“ eins og segir á umslaginu. Íslendingi fylgt aftur á bak María segir hópinn sem setur söng- leikinn upp í Gamla bíói reyna að hafa téð einkunnarorð plötunnar að leiðarljósi, ásamt því að bera á borð nýtt íslenskt leikverk sem höfði til íslensks almennings í dag. „Allir sem hafa hlustað á plötuna ímynda sér persónur og atburði í textunum á mismunandi hátt. Við breytum engum textum og leyfum okkur ýmsar aðferðir til að tengja þá sögunni í söngleiknum,“ segir María. „Verkið hefst í nútímanum, þar sem við sjáum misheppnaða athafnaskáldið Jóhann Kristins- son liggja látinn í kistu sinni. Svo ferðumst við aftur á bak í gegnum líf Jóhanns á meðan hann vegur og metur hvernig hann hefur staðið sig á sinni ævi, allt aftur til ársins 1940 þegar hann kemur í heiminn. Þetta er mjög skemmtileg leið til að fylgja sögu eins Íslendings.“ Valgeir með tvo nýja smelli Leikarahjónin Tinna Hrafnsdóttir og Sveinn Geirsson eru framleið- endur verksins og skrifuðu handrit- ið ásamt Guðmundi S. Brynjólfssyni, með góðri hjálp leikstjórans Maríu og leikhópsins, sem telur Atla Þór Albertsson, Hannes Óla Ágústsson, Maríu Pálsdóttur, Maríu Hebu Þor- kelsdóttur, Orra Huginn Ágústsson og Vigdísi Gunnarsdóttur, ásamt þeim Tinnu og Sveini. María segir verkið unnið í náinni samvinnu allra sem að því koma. „Við erum lítill leikhópur og verkið er eins og platan var á sínum tíma, dálítið organískt og hrátt. Þetta er ekki 2007-sýning,“ segir María og hlær, en bætir við að söngleikurinn sé ekki verri fyrir vikið. „Þetta er mjög skemmtileg aðferð við að setja nýtt íslenskt leikhúsverk á fjalirn- ar. Hver einstaklingur er rosalega mikilvægur hlekkur í keðjunni. Sem dæmi þá mæðir mikið á leik- urunum, því auk þess að læra alla texta, söngva og dansa sjá þeir um að koma með alla leikmynd inn á sviðið. Það er enginn sviðsmaður fyrir aftan og þetta er svakaleg rútína.“ Leikstjórinn segir það mikinn happafeng að hafa fengið einn höf- uðpaura Hrekkjusvínaplötunnar, sjálfan Valgeir Guðjónsson, til liðs við leikhópinn í tilefni söngleiks- ins. Valgeir fer fyrir fimm manna hljómsveit á sviðinu og samdi auk þess tvö ný lög fyrir sýninguna. „Það er hreinlega ótrúlegt hvern- ig Valgeir framleiðir smelli á færi- bandi,“ segir María. „Enda hef ég heyrt að þegar Stuðmenn vantaði „hittara“ í gamla daga var einfald- lega kallað í Valgeir og hann beð- inn um að redda málunum. Popplag í G-Dúr, Slá í gegn og öll þessi lög eru hreinræktaðir smellir.“ Nýju lögin sem Valgeir hefur samið heita Ég skil, þar sem meðal annars er sungið um hrekkjusvín á Alþingi, og Ég reyni, sem er söngur Áslaugar í efnalaug, eiginkonu höf- uðpersónunnar Jóhanns sem aðdá- endur plötunnar ættu að muna eftir. Í tilefni söngleiksins verður Lög unga fólksins endurútgefin, endur- hljóðblönduð, ásamt þessum tveimur nýju lögum. „Við ákváðum að hljóð- rita gömlu lögin ekki upp á nýtt því við ætlum ekki að reyna að keppa við upprunalegu útgáfurnar. Frekar að minnast þess og njóta hversu frá- bær gamla platan er,“ segir María. Abbababb! óður til Hrekkjusvína María hefur reynslu af uppsetning- um sem þessari, en fyrir nokkrum árum leikstýrði hún einnig söng- leikjaútgáfu á annarri ástsælli plötu sem öðrum þræði var ætluð börnum, Abbababb! eftir Dr. Gunna. Með henni í þeirri sýningu starfaði meðal annarra Lára Stef- ánsdóttir danshöfundur, sem einn- ig sér um dansa í Hrekkjusvínum. „Það er skemmtilegt því Abba- babb! [sem kom fyrst út árið 1997] var nokkurs konar óður til Hrekkjusvínaplötunnar,“ segir María. „Helsti munurinn er lík- lega sá að í Abbababb! vorum við að vinna með eitt tímabil en ekki marga áratugi eins og í Hrekkju- svínum. Abbababb! var líka skrif- að sem barnaleikrit sem fullorðn- ir gætu líka haft gaman af en með Hrekkjusvínum erum við frekar að reyna að búa til fullorðinssýningu sem börn kunna einnig að meta. En báðar plöturnar eru auðvitað frábærar.“ Ævintýri í uppáhaldi Sjálfur hefur Valgeir tjáð sig um að leynt og ljóst markmið með gerð plötunnar Lög unga fólksins á sínum tíma hafi verið að gera „barnaplötu fyrir foreldra barna sem eiga foreldra sem eru komm- únistar“. En hlustaði María mikið á plötuna sem barn? „Nei, ekki mikið. Ég man að frænka mín gaf mér plötuna en pabbi var víst ekkert rosalega ánægður með það því hann var svo mikill sjálfstæðismaður og vildi ekki neinn kommúnistaáróð- ur,“ segir María og skellir upp úr. „En ég hlustaði heilmikið á plöt- una þegar ég var komin í Mennta- skólann við Hamrahlíð. Þá var ég komin í hippafílinginn og meðlim- ir Spilverks þjóðanna voru miklar hetjur. Uppáhaldslagið mitt hefur alltaf verið Ævintýri, sem Egg- ert Þorleifsson söng svo listilega á plötunni. Mikið af þessum textum á enn mjög vel við í dag, til dæmis þegar sungið er um að æðstu ráðamenn sofi með lygaramerki á tánum og að vilja miklu frekar hjól eða fíl heldur en bíl. Þetta er græna leiðin.“ Hrátt og organískt eins og platan María Reyndal leikstýrir Hrekkjusvínum, nýjum söngleik sem unninn er upp úr barnaplötunni ástsælu Lög unga fólksins sem kom út árið 1977. Kjartan Guðmundsson spjallaði við Maríu um söguþráð söngleiksins, lítinn leikhóp þar sem hver einstaklingur gegnir mikilvægu hlutverki og plötuna sem hún hlustaði lítið á sem barn en þeim mun meira sem menntaskólanemi. MARÍA REYNDAL ATHAFNASKÁLD Hannes Óli Ágústsson og Sveinn Geirsson í hlutverkum sínum í Hrekkjusvínum sem sýnt er í Gamla bíói. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.