Fréttablaðið - 02.12.2011, Síða 33
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
MATSEÐILL
LEIKHÚS-
Aðalstræti 2 / 101 Reykjavík / Sími: 517 4300 / www.geysirbistro.is
Fo r r é t t u r
Aða l r é t t i r
Laxatvenna –
reyktur og grafinn lax
Bleikja & humar
með hollandaise sósu
E f t i r r é t t u r
Þriggja rétta máltíð á 4.900 kr.
Jack Daniel’s
súkkulaðikaka
Djúpsteiktur ís og súkkulaði-
hjúpuð jarðarber
Brasserað fennell, kartöflu-
stappa og ostrusveppir
eða...
Grillað Lambafille
Með rófutvennu,
sveppakartöflum
og bláberja anís kjötsósu Þ
etta konfekt geri ég oft
heima þegar ég á von á
fólki í mat. Það er mjög
fljótlegt og rosalega gott
með ísnum eða kaffinu. Svo er
það líka hollt,“ segir Fríða Sophía
Böðvarsdóttir kokkur, en hún
lumar á uppskrift að einföldu kon-
fekti fyrir aðventuna.
„Konfektið er líka mjög sniðugt
í litlar gjafir um jólin. Ég hef látið
grunnskólabörn búa svona til og
gefa mömmu og pabba í jólagjöf en
það er mjög einfalt fyrir krakka að
búa þetta til,“ segir Fríða en hún
hefur kennt matreiðslu í yfir tutt-
ugu ár, í grunnskólum og á nám-
skeiðum í kvöldskóla Kópavogs.
Námskeiðin hafa einmitt gengið út
á einfalda matargerð og nýlega kom
út bókin Matmenn eftir Fríðu.
„Bókin er sniðin að karlmönn-
um en það geta auðvitað allir eldað
þennan mat. Ég er búin að kenna
lengi og er farin að þekkja hvað er
að flækjast fyrir fólki í eldhúsinu
og hvað þarf að einfalda.“ Áður hafa
komið út bækurnar Bakað úr spelti
og Bakað í brauðvél eftir Fríðu sem
báðar nutu mikilla vinsælda. Þá er
hún með enn eina bókina í smíðum
en fæst ekki til að ljóstra innihaldi
hennar upp. „Það er leyndarmál.
Hún kemur út fyrir næstu jól ef ég
verð dugleg.“ heida@frettabladid.is
Hollt, fljótlegt og rosa gott
Fríða Sophía Böðvarsdóttir kokkur býr til döðlu- og apríkósukonfekt þegar hún á von á gestum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
OFUREINFALT JÓLAKONFEKT
sem bragð er að
Apríkósur með salthnetum og súkkulaði
14 apríkósur
100 g dökkt suðusúkkulaði
50 g salthnetur
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði.
Dýfið apríkósunum til helminga
ofan í brætt súkkulaðið og veltið
þeim upp úr maukuðum salthnetum.
Leggið apríkósurnar á bökunar-
pappír og látið þorna yfir nótt.
Döðlukonfekt sem kemur á óvart
14 döðlur
100 g suðusúkkulaði
100 g hvítlauksostur
15 g kókósmjöl
Bræðið súkkulaðið. Skerið
döðlurnar langsum til helminga
og fyllið þær með 1½ tsk. af
hvítlauksosti. Dýfið helmingnum
af döðlunum ofan í súkkulaðið og
veltið þeim upp úr kókósmjöli. Leggið
döðlurnar á bökunarpappír og látið þorna.
Jólamarkaður Hins hússins verður haldinn á
morgun en þar mun ungt fólk selja notuð föt,
fylgihluti og ýmislegt dót. Markaðurinn verður
opnaður í kjallara Hins hússins í Pósthússtræti
3-5 klukkan 13 og stendur opinn til 16.