Fréttablaðið - 16.12.2011, Page 2
16. desember 2011 FÖSTUDAGUR2
NÝSKÖPUN Björgúlfur EA 312,
ísfiskstogari Samherja, kom til
heimahafnar á Dalvík í gær en
í veiðiferðinni var nýttur inn-
lendur orku-
gjafi, lífdísill,
framleiddur
hjá nýsköpun-
arfyrirtækinu
Orkey á Akur-
ey r i . Þ et t a
mun vera eins-
dæmi í heimin-
um að úrgangi
sé breytt í orku
sem nýtt er til
að keyra fiskiskip.
Kristján Vilhelmsson, fram-
kvæmdastjóri útgerðarsviðs Sam-
herja, segir að um tímamót sé að
ræða. Veiðiferðin hafi verið þrír
sólarhringar núna en fyrirtækið
nýti allt það magn af lífdísli sem
fáanlegur er. Framleiðslugeta
verksmiðjunnar setji því hins
vegar skorður að mögulegt sé að
keyra eitt eða fleiri skip í lengri
tíma, hvað þá á ársgrundvelli. „En
það sem við getum fengið munum
við nota,“ segir Kristján og bætir
við að Björgúlfur brenni 5.500
lítrum af lífdísli á sólarhring við
veiðar og á keyrslu.
„Þetta er verulega spennandi.
Ég vil kalla þetta afganga sem
verið er að nota til að búa til þetta
eldsneyti því þetta er ekki notað í
neitt annað,“ segir Kristján.
Spurður hvort það sé ódýrara
að nýta lífdísil heldur en hefð-
bundna olíu svarar Kristján því
til að sparnaðurinn liggi í því að
gjaldeyrir sparast. „Þetta er unnið
úr innlendu hráefni og það er stóri
sparnaðurinn. Þjóðhagslegi sparn-
aðurinn.“
Kristinn F. Sigurharðarson,
framkvæmdastjóri Orkeyjar,
segir að framleiðslugeta verk-
smiðjunnar í dag sé fimmfalt
þau 300 tonn sem framleidd eru í
dag af lífdísli. „Það sem stendur
í vegi fyrir aukinni framleiðslu
eru aðdrættir á hráefni. Það fell-
ur mikið til víða um land. Í dag er
þetta hráefni urðað að mestu leyti
og er engum til gagns.“
Lífdísillinn er framleiddur úr
notaðri steikingarolíu og dýrafitu.
Áætlanir fyrirtækisins, sem skýr-
ir framleiðslumagnið í dag, gerðu
ráð fyrir að 300 tonn myndu duga
til að greiða niður fjárfestinguna
við verksmiðjuna, sem var tölu-
verð. „Núna þegar við sjáum hvað
er hægt að gera þá herðir það í
mönnum,“ segir Kristinn sem
getur þess að tækjabúnaður verk-
smiðjunnar var að stærstum hluta
smíðaður á Akureyri.
Tækifærin fyrir fyrirtæk-
ið liggja víða enda 500 þúsund
tonn af olíu flutt til landsins á ári
hverju. Skipaflotinn notar 300
þúsund tonn.
svavar@frettabladid.is
Í dag er þetta hráefni
urðað að mestu leyti
og er engum til gagns.
KRISTINN F. SIGURHARÐARSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI ORKEYJAR
Ingimar, hefurðu fengið sand
af seðlum?
„Það má segja að sandurinn hafi
breyst í seðla.“
Ingimar Georgsson, kaupmaður í Vöru-
vali í Vestmannaeyjum, selur nú sand úr
Landeyjahöfn í verslun sinni.
VEÐUR Óvíst er hvort jólin verði
hvít í höfuðborginni. Næsta
vika verður umhleypingasam-
ari í veðri en undanfarið, þá sér
í lagi sunnanlands.
Meiri líkur eru á hvítum
jólum á norðan-, vestan- og aust-
anverðu landinu en fyrir sunn-
an, en Einar Magnús Einarsson,
veðurfræðingur hjá Veðurstofu
Íslands, segir þó að ekki sé
hægt að spá fyrir með vissu um
snjóalög.
„Það eru meiri líkur á hvít-
um jólum fyrir norðan heldur
en fyrir sunnan, en þetta er
allt saman spurning enn þá,“
segir Einar. „Það er ekki hægt
að segja að það séu litlar líkur
á hvítum jólum í Reykjavík, en
næsta vika verður umhleyp-
ingasamari.“
Einar segir spána fyrir næstu
helgi nokkuð fína. Dagurinn
í dag og í kvöld verður víðast
hvar góður, þó er hætta á éli
með kvöldinu. Spáð er bjartviðri
á Austurlandi og víðar á morg-
un, en á sunnudag koma skil upp
að landinu með slyddu eða snjó-
komu. Þá gæti jafnvel farið að
rigna sunnanlands. - sv
Næsta vika umhleypingasöm og gæti farið að rigna sunnanlands á sunnudag:
Óvíst með hvít jól í Reykjavík
VÍSINDI Stærðin skiptir vissu-
lega máli í kvennamálum, í það
minnsta fyrir þá sem eru rauð-
hærðir, sambrýndir og með átta
útstæð augu. Nánar til tekið
skiptir máli fyrir karlkyns stökk-
köngulær að vera með sem
stærstar vígtennur til að fá að
makast með kvendýrum.
Þetta er niðurstaða vísinda-
manna við Duke-háskóla í Banda-
ríkjunum. Þeir öttu saman karl-
kyns köngulóm til að kanna hvað
ræður því hver fær kvendýrið. Í
ljós kom að þeir karlar sem voru
með stærstu vígtennurnar þurftu
sjaldnast að berjast, þar sem and-
stæðingurinn gaf eftir áður en til
slagsmála kom. - bj
Kanna hver fær að makast:
Stærðin skiptir
máli fyrir karla
RAUÐ JÓL Í REYKJAVÍK 2010 Líkur eru á
rigningu í Reykjavík á sunnudaginn næsta,
en rúm vika er til jóla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Togari knúinn áfram
með orku úr dýrafitu
Skip Samherja, Björgúlfur EA, nýtti lífdísil sem orkugjafa í síðustu veiðiferð.
Eldsneytið er framleitt á Akureyri af nýsköpunarfyrirtækinu Orkey sem fram-
leiðir 300 tonn á ári. Mögulegt væri að framleiða 2.500 tonn ef hráefni fengist.
KRISTJÁN
VILHELMSSON
BJÖRGÚLFUR Í HEIMAHÖFN Samherji hyggst nota lífdísil á skip sín í því magni sem
olían fæst. Hráefnisskortur stendur Orkey í vegi ef auka á framleiðsluna frá því sem
nú er. MYND/GIJ
SVEITARSTJÓRNIR Foreldraráð
Hafnarfjarðar fær ekki áheyrn-
arfulltrúa í íþrótta- og tóm-
stundanefnd bæjarins eins og
ráðið óskaði eftir. Nefndin segist
ekki geta orðið við óskinni að svo
stöddu.
„Starfsemi sem fram fer í frí-
stundaheimilum og félagsmið-
stöðvum er ekki lögbundin líkt
og starfsemi grunnskólanna og
því ekki hægt að leggja að jöfnu,“
segir íþrótta- og tómstundanefnd
sem þó kveður mikilvægt að
eiga gott samstarf við foreldra-
ráðið og hyggst bjóða fulltrúa
þess „eftir þörfum“ til fundar við
nefndina þegar fjallað er um mál-
efni frístundaheimila og félags-
miðstöðva. - gar
Synja ósk hafnfirskra foreldra:
Fá ekki fulltrúa
í íþróttanefnd
BANDARÍKIN, AP Fimmtungur banda-
rískra kvenna hefur orðið fyrir
kynferðisofbeldi, samkvæmt nýrri
rannsókn bandarísku sóttvarna-
stofnunarinnar CDC. Helmingur
árásanna átti sér stað meðal sam-
búðarfólks eða kærustupara.
Jafnframt kemur fram að fjórða
hver kona sem rannsóknin náði til
kveðst hafa verið beitt ofbeldi af
hálfu maka eða kærasta.
Sérfræðingar í heimilisofbeldi
segja tölurnar ekki koma sérstak-
lega á óvart en þó kunni ákveðnir
þættir rannsóknarinnar að hafa leitt
til hærri talna en áður hafa komið
fram. Þannig segjast sjö sinnum
fleiri konur hafa orðið fyrir nauðg-
un eða tilraun til nauðgunar en
raunin var í könnun bandaríska
dómsmálaráðuneytisins í fyrra.
„Þetta er í fyrsta sinn sem við
höfum fengið fram þessa tegund
áætlunar á tíðni ofbeldis í sambönd-
um,“ er haft eftir Lindu Degutis,
starfsmanni CDC. Rannsóknin verð-
ur framkvæmd árlega hér eftir.
Ekki er gerð tilraun til að stað-
festa frásagnir í rannsókninni, sem
fengnar eru nafnlaust í símakönnun
CDC. Hringt var af handahófi í um
9.000 konur og 7.400 karla. - óká
Sláandi niðurstöður í rannsókn á heimilis- og kynferðisofbeldi í Bandaríkjunum:
Helmingur árása innan sambands
Í NEW YORK Ný rannsókn bandarískra
sóttvarnayfirvalda hefur leitt í ljós að
umfang heimilisofbeldis þar í landi er
meira en áður var talið. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Rannsókn CDC
Nærri helmingur kvenna sem
greina frá nauðgun eða tilraun til
nauðgunar segir árásina hafa átt
sér stað fyrir átján ára aldur.
Allt að þriðja hver kona segist
einhvern tímann á lífsleiðinni hafa
orðið fyrir nauðgun, barsmíðum
eða eltihrellingu maka, meðan
einungis einn af hverjum tíu
körlum segist hafa lent í sambæri-
legu.
Þrír í vímuefnaakstri
Þrír ökumenn voru teknir fyrir ölv-
unar- og fíkniefnaakstur á höfuðborg-
arsvæðinu í fyrrakvöld og fyrrinótt.
Þetta voru karlmenn á aldrinum 25 til
40 ára. Tveir þeirra höfðu þegar verið
sviptir ökuleyfi en sá þriðji var sviptur
ökuleyfi til bráðabirgða, eftir á lög-
reglustöðina var komið.
LÖGREGLUMÁL
VÍSINDI Náttúrufræðingar hafa
staðfest að froskategund sem
fundist hefur á eyjunni Papúa
Nýju-Gíneu í Kyrrahafi sé sú
minnsta í heimi.
Froskarnir eru 8 til 9 milli-
metrar að lengd, sem þýðir að
tíu froskar gætu komist fyrir
á íslenskum 50 króna peningi.
Þetta eru jafnframt smæstu land-
dýr heims sem eru með hrygg.
Þessi smávaxna froskategund
fannst fyrir nærri tíu árum en nú
fyrst hefur verið staðfest að um
nýja tegund sé að ræða. - bj
Fundu minnstu froska í heimi:
Komast tíu á 50
krónu pening
ÞÝSKALAND, AP Maður sem sak-
felldur var fyrir að myrða þrjá
Hollendinga í síðari heimsstyrj-
öldinni hefur nú hafið afplánun
á lífstíðardómi í þýsku fangelsi,
90 ára að aldri.
Heinrich
Boere var með-
limur í SS-
sveitum nas-
ista, og játaði
við réttarhöld
í fyrra að hafa
skotið menn-
ina þrjá. Einn
þeirra var með-
limur hollensku
andspyrnuhreyfingarinnar og
annar hafði hjálpað gyðing-
um að komast undan ofsóknum
nasista. Boere hélt því fram að
hann hafi aðeins verið að fylgja
skipunum.
Verjandi Boere hefur haldið
því fram að hann sé of veik-
burða til að þola fangelsisvist,
en á það var ekki hlustað. - bj
Myrti fólk fyrir þýska nasista:
Hefur afplánun
90 ára að aldri
HEINRICH BOERE
KÖNNUN Dagleg neysla Íslendinga
síðustu vikur hefur aukist um
umtalsvert milli ára samkvæmt
Þjóðarpúlsi Capacent Gallup.
Síðustu fjórar vikur hafa lands-
menn eytt 12,1 prósentum hærri
upphæð í vörur og þjónustu en á
sama tímabili í fyrra, að því er
fram kemur í niðurstöðunum.
Meðalmaðurinn eyðir um 4.900
krónum á dag nú, en 4.370 krón-
um á sama tíma í fyrra. Verðbólg-
an á árinu var um fimm prósent,
og raunhækkun á eyðslu því um
sjö prósentustig. - bj
Ný könnun Capacent Gallup:
Neyslan 12%
meiri en 2010
í ísinn
500 ml rjómi
3 stk. eggjarauður
2 stk. egg
130 g sykur
Vanilludropar
Þeytið rjómann og setjið í kæli. Þeytið vel
saman eggjarauður, egg og sykur. Blandið
saman við rjómann og bragðbætið með
vanilludropum. Setjið í form og frystið.
Þú getur einnig bætt uppáhaldssælgætinu
þínu við blönduna.
SPURNING DAGSINS