Fréttablaðið - 16.12.2011, Blaðsíða 38
2 föstudagur 16. desember
núna
✽ jólin nálgast
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Haraldur Guðjónsson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
meðmælin
S ysturnar María Björg og Guðrún Sigurðar-dætur hanna falleg-
an tískufatnað undir nafn-
inu Klukka. Fyrsta lína systr-
anna kom út fyrir skömmu
og fæst meðal annars í versl-
uninni Kiosk.
María var einn af stofn-
endum Kiosk á sínum tíma
en dró sig í hlé stuttu eftir
opnun verslunarinnar til að
sinna öðrum verkefnum.
Hún ákvað síðan fyrir stuttu
að taka höndum saman við
systur sína og gefa út litla
línu fyrir jólin sem inniheld-
ur meðal annars kjóla, slár
og fylgihluti. „Kjólarnir eru
úr silki og með handteikn-
uðu munstri og eru fram-
leiddir hér á landi. Móttök-
urnar hafa verið mjög góðar,
ég hef fundið fyrir aukn-
um áhuga fólks á íslenskri
hönnun og verslunum eins
og Kiosk sem reknar eru af
hönnuðum,“ útskýrir María.
Systurnar ólust upp í
Englandi til unglingsald-
urs og segir María að fata-
smekkur þeirra sé blanda
af þeim breska og íslenska
og hönnun þeirra sömuleið-
is. „Íslendingar og Skandi-
navar hafa einkennandi
útlit og smekk sem ræðst
bæði af veðurfari og menn-
ingu okkar. Bretinn er aftur
á móti klassískari og tekur
færri sénsa þegar kemur að
tísku en leggur mikið upp
úr góðum efnum og sniðum.
Hönnun okkar tekur mið af
þessu tvennu, við erum með
sígilda vöru sem kaupandinn
ætti að geta notað í mörg ár
og úr besta efni sem völ er á
en hressum upp á útlit flík-
urinnar með skemmtilegu
handteiknuðu munstri.“
María er menntaður fata-
hönnuður frá LHÍ og starfaði
áður sem aðstoðarinnkaupa-
stjóri tískudeildar Harrods í
London í fimm ár. Guðrún
starfaði einnig hjá sömu
verslun í eitt ár og hafa syst-
urnar því báðar verið við-
loðandi tískubransann í
nokkurn tíma.
Ný lína er væntanleg frá
systrunum með vorinu. Allar
nánari upplýsingar má finna
á heimasíðu þeirra www.my-
klukka.is. sara@frettabladid.is
SYSTURNAR MARÍA OG GUÐRÚN SIGURÐARDÆTUR HANNA UNDIR NAFNINU KLUKKA
BLANDA AF TVEIMUR
MENNINGARHEIMUM
Samvinna systra Systurnar María og Guðrún Sigurðardætur hanna saman fallegar og ein-
stakar flíkur undir nafninu Klukka.
Jólaglögg til góðs
Jólaglögg UN Women á Íslandi fer
fram á eins árs afmæli samtakanna
á morgun. Glöggið verður haldið í
versluninni Ellu á Ingólfsstræti 5 og
stendur frá klukkan 16 til 18. Tón-
listarkonan Sóley syngur fyrir gesti
lög af hinni margrómuðu plötu
sinni We Sink. Ella mun einnig til-
kynna styrk sinn til samtakanna,
en fyrirtækið gefur 1.000 krónur
af hverju seldu ilmvatni í Styrktar-
sjóð UN Women til af-
náms ofbeldis gegn
konum. Allir velunn-
arar samtakanna
eru hvattir til að
mæta og eiga
notalega stund
saman í tilefni
dagsins.
Frábærir tónleikar
Söngkonan Ragga Gröndal og
dúettinn Song for Wendy, sem er
skipaður Bryndísi Jakobsdóttur
og Mads Mouritz, standa fyrir tvö-
földum útgáfutónleikum í Fríkirkj-
unni á sunnudaginn. Ragga Grön-
dal mun flytja lög af nýjustu plötu
sinni, Astrocat Lullaby, og Song
for Wendy fagnar útgáfu fyrstu
plötu sinnar, Meeting Point. Sér-
stakur gestur á tónleikunum verð-
ur söngkonan
snjalla Sigríður
Thorlacius. Tón-
leikarnir hefjast
klukkan 20.30 og
hægt er að nálg-
ast miða á
Midi.is eða við
inngang.
SJÁÐU MITT GLINGUR Fallegur og sérstakur hringur frá hollenska
skartgripamerkinu fashionology sem glitrar og geislar og lýsir upp skamm-
degið. Hringurinn er fullkominn í jólapakkann í ár og fæst í GK Reykjavík.
GLÆSILEG Fyrirsætan Christy Turling-
ton Burns var á meðal þeirra gesta er
sóttu CNN-Heroes viðburðinn á sunnu-
daginn síðasta. NORDIC PHOTOS/GETTY
R
okktónlistarkonan og fyrir-
sætan Alice Dellal verður að
öllum líkindum næsta and-
lit töskulínu tískuhússins Chanel.
Sé það satt mun Dellal taka við af
leikkonunni Blake Lively.
Dellal er þekkt fyrir að fara
eigin leiðir í klæðavali og skart-
ar iðulega dökkri augnmálningu,
rökuðu höfði og rifnum fötum.
Hún er þekkt fyrirsæta og hefur
setið fyrir hjá Agent Provoca-
teur og gengið sýningar Vivienne
Westwood. Þar að auki er stúlk-
an trommari hljómsveitarinn-
ar Thrush Metal og dóttir And-
reu Dellal, sem var kosin ein af
best klæddu konum ársins 2011
af tímaritinu Vanity Fair. Dellal er
eins ólík forvera sínum og hugs-
ast getur og verður spennandi að
sjá afrakstur samstarfs hennar og
Chanel.
Alice Dellal nýtt andlit töskulínu Chanel:
Trommari og
Chanel-fyrirsæta
Andlit Chanel Fyrirsætan Alice Dellal
gæti tekið við af Blake Lively sem andlit
töskulínu tískurisans Chanel.
NORDIC PHOTOS/GETTY
15.DES 16.DES
17.DES 18.DES
22.DES 29.DES
30.DES 31.DES
Lay Low
Vintage
Caravan
aðventutónleikar
Tinnu og Orra
( 4.aðventa )
Rock Quiz
Rock Quiz Rock Quiz
Fræbbblarnir
Morgan Kane
Hellvar
órafmagnað
kl:21:30
rafmagnað
kl:22:10
(2x session)
Áramótapartí
Andreu Jónssdóttir