Fréttablaðið - 16.12.2011, Blaðsíða 40
4 föstudagur 16. desember
Sendum í póstkröfu
Kringlan 4 - 12
Reykjavík s: 588 - 1705
Hafnarstræti 106, göngugötunni
Akureyri s: 463 - 3100
Lj
ós
m
yn
da
ri
He
id
a.
is
M - 3XL 3 litir 5.900.- S - XL 2 litir 5.900.-
Skyrta S - XL 5.900.-
Golla S - XL 4 litir 4.950.- Gallabuxur bláar 8.900.- Gallabuxur svartar stretch 9.900.-
Aldur: Jóhann: 31. Sædís: 26.
Starf: Jóhann: Stjórnandi
vídeóframleiðslu hjá CCP í
Sjanghæ. Sædís: Fjármála-
ráðgjafi og viðburðastjórnandi.
Búseta: Sjanghæ,
Jing‘an-svæðið.
Hversu lengi hefur
þú búið í borg-
inni? Rúmlega eitt og
hálft ár.
Hver er helsti kosturinn
við búsetu í borginni? Jó-
hann: Fjölbreytnin, menningin
og ævintýrin sem geta leynst
á hverju horni. Sædís: Ef New
York er borgin sem aldrei sefur,
þá er Sjanghæ borgin sem
aldrei sest niður. Það á vel við
mig.
Af hverju fluttir þú þangað:
Jóhann: Mér bauðst staða hjá
CCP í Sjanghæ en mig hefur allt-
af langað að búa í stórborg. Sú
staðreynd að þessi tiltekna stór-
tborg var í Asíu gerði það enn
meira spennandi. Sædís: Mig
hefur alltaf langað að láta reyna
á að búa annars stað-
ar en á Íslandi og þegar
tækifærið að flytja
til Sjanghæ bauðst
fannst mér einfaldlega
ekki annað hægt en að
láta á það reyna.
Ef þú mættir taka einn
hlut með þér aftur heim til
Íslands, hvað væri það? Jó-
hann: Sherpas. Alveg mögnuð
heimsendingarþjónusta sem
sendir heim frá helstu veitinga-
stöðunum í borginni. Sædís:
Það væri ekki hlutur heldur rétt-
ur, sem heitir Spicy Chicken in
Stone Pot af uppáhaldsveitinga-
staðnum mínum, People‘s 7. Á
erfitt með að ímynda mér lífið án
hans.
Hvað er það fyrsta sem þú
gerir á morgnana þegar þú
vaknar? Jóhann: Teygi mig í
iPad-inn og skoða veðrið og
fréttir sniðnar að mínum smekk
í gegnum forritið Zite. Sædís:
Teygi mig í iPhone-inn og
skoða tölvupóstinn.
Hvaða stað í borginni er
nauðsynlegt fyrir ferðamenn
að skoða? Bæði: Að fara
upp í hæstu bygginuna í borg-
inni (Shanghai World Financial
Center) í ljósaskiptunum og
verða vitni að umbreytingunni
sem á sér stað þegar ljósadýrð-
in tekur völdin er ansi mögnuð
upplifun.
Í einni setningu, hvern-
ig myndirðu lýsa þjóðinni?
Jóhann: Sparsöm, hagnýt og
nýtir tækifærin þegar þau bjóð-
ast. Sædís: Kínverska þjóðin er
gríðar lega fjölmenn og ansi for-
vitin að eðlisfari.
Dagur í lífi Íslendings: Jóhann Örn Reynisson og Sædís Kolbrún Steinsdóttir
SPARSAMT OG
FORVITIÐ FÓLK
Magnað útsýni Útsýnið úr efsta útsýnis-
punkti borgarinnar í Shanghai World
Financial Center.
Innkaup Að versla hjá Avocado Lady. Kaupkonan á horninu.
Horft yfir borgina Útsýnið af svölunum hjá okkur.
Borgin Nanjing-göngugatan.
Í góðra vina hópi Við ásamt vinum á góðri stundu í garðinum á veitingahúsinu Cotton‘s.
Vinnustaðirnir Myndir af okkur fyrir utan vinnustaðina okkar. Skrifstofan hennar Sædísar er á 36. hæð í þessari byggingu.
Sjanghæ