Fréttablaðið - 16.12.2011, Page 8
16. desember 2011 FÖSTUDAGUR8
ÞÝSKALAND Saksóknari í Þýska-
landi hefur gefið út ákæru á
hendur fimm mönnum fyrir pen-
ingaþvætti. Þeir eru sakaðir um
að hafa þvætt um 150 milljónir
Bandaríkjadala, sem samsvarar
um 18,4 milljörðum króna, fyrir
rússneskan ráðherra.
Þetta kemur fram í frétt á vef
bandaríska dagblaðsins Wall
Street Journal. Rannsókn málsins
hefur staðið í sex ár.
Fullyrt hefur verið að einn hinna
ákærðu, danski lögfræðingurinn
Jeffrey Galmond, sé fyrrverandi
samstarfsmaður Björgólfs Guð-
mundssonar og Björgólfs Thors
Björgólfssonar. Það kemur meðal
annars fram í nýrri bók Ingimars
Hauks Ingimarssonar, fyrrverandi
viðskiptafélaga feðganna.
Björgólfur Thor hefur neitað því
að hafa átt viðskipti við Galmond.
Í pistli á vef hans segir hann að
tveir lögmenn sem starfa á sömu
lögfræðistofu og Galmond hafi
unnið fyrir sig um tíma, en ekki
Galmond sjálfur.
Auk Galmonds eru fimm fyrr-
verandi starfsmenn þýska bank-
ans Commerzbank AG ákærðir.
Mennirnir fimm eru sakaðir um
að hafa hjálpað Leonid Reiman,
sem var samskiptaráðherra Rúss-
lands á árunum 1999 til 2008, að
selja fjarskiptabúnað í eigu rúss-
neska ríkisins og stinga hagnaðin-
um í eigin vasa.
Mennirnir fimm neita sök í mál-
inu og Reiman hafnar ásökunum
um að hafa selt eigur rússneska
ríkisins og stungið hagnaðinum í
eigin vasa. - bj
ÁKÆRUR Fjórir af fimm sem ákærðir
hafa verið fyrir peningaþvætti störfuðu
hjá þýska bankanum Commerzbank.
NORDICPHOTOS/GETTY
UTANRÍKISMÁL „Þetta er mjög
mikil vægt því þetta auðveldar
öðrum ríkjum að fylgja í kjölfar-
ið,“ sagði Riad Malki, utanríkis-
ráðherra Palestínu, þegar hann
tók við viðurkenningu Íslands á
sjálfstæði Palestínuríkis í gær.
Það var Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra sem lýsti yfir
viðurkenningu íslensku þjóðar-
innar á sjálfstæði Palestínurík-
is, miðað við landamærin eins
og þau voru fyrir hernám Ísraels
árið 1967. Össur sagði þessa stund
verða bæði sér og öllum viðstödd-
um ógleymanlega.
„Ísland hefur nú staðið við
þau loforð sem gefin hafa verið
um stuðning við Palestínumenn,
og við ætlum að halda áfram að
veita Palestínumönnum stuðning
okkar,“ sagði Össur.
Viðstaddir athöfnina, sem hald-
in var í bókasal Þjóðmenningar-
hússins, voru meðal annars ýmsir
íslenskir þingmenn og ráðherrar
ásamt allmörgum þeirra Pal-
estínumanna sem búsettir eru
á Íslandi. Að lokinni athöfninni
gaf Malki sér góðan tíma til að
ræða við þessa palestínsku íbúa
Íslands.
„Nú þegar hafa 130 ríki víðs
vegar um heim viðurkennt sjálf-
stæði,“ sagði Malki, „en þessi
ákvörðun Íslands hefur allt annað
vægi.“ Ísland er fyrsta vestræna
ríkið sem viðurkennir sjálfstæði
Palestínu. Flest ríki Austur-Evr-
ópu, Asíu, Afríku og Suður-Amer-
íku viðurkenndu hins vegar sjálf-
stæði Palestínu strax árið 1989,
ári eftir að Jasser Arafat lýsti ein-
hliða yfir stofnun sjálfstæðs Pal-
estínuríkis. Vesturlönd hafa hins
vegar tekið þann pól í hæðina,
að betra sé að Ísraelar og Palest-
ínumenn semji sín á milli frekar
en að viðurkenna þessa einhliða
ákvörðun Palestínumanna.
Spurður um friðarferlið milli
Palestínumanna og Ísraels sagði
Malki það vera statt „í frysti-
kistu“ og ekkert þokast.
Bæði Össur og Malki sögðu það
hafa sérstaka þýðingu að Alþingi
hafi samþykkt að viðurkenna
sjálfstæði Palestínu 29. nóvember
síðastliðinn, á alþjóðlegum sam-
stöðudegi með Palestínu.
Malki utanríkisráðherra kom til
landsins á miðvikudag og hefur
átt fundi með Jóhönnu Sigurðar-
dóttur forsætisráðherra, Össuri
Skarphéðinssyni utanríkisráð-
herra, Jóni Gnarr borgarstjóra
og utanríkismálanefnd. Þá heim-
sótti hann Alþingi og flutti í gær
erindi í Norræna húsinu á vegum
Alþjóðamálastofnunar Háskóla
Íslands og utanríkisráðuneytis-
ins. gudsteinn@frettabladid.is
SÝRLAND Liðhlaupar úr sýrlenska
hernum skýra frá því að yfirmenn
þeirra hafi gefið þeim skipanir um
að brjóta öll mótmæli á bak aftur
með öllum tiltækum ráðum. Þeir
segjast hafa skilið þetta sem svo
að þeim væri frjálst að skjóta og
drepa að vild til þess að stöðva
mótmælin gegn Basher al-Assad
forseta og öðrum stjórnvöldum.
Þetta kemur fram í skýrslu frá
mannréttindasamtökunum Human
Rights Watch, sem byggð er á
meira en 60 viðtölum við liðhlaupa
úr sýrlenska hernum og sýrlensku
leyniþjónustunni. Í skýrslunni eru
jafnframt nafngreindir 74 yfir-
menn sem gáfu slíkar skipanir.
„Liðhlauparnir gáfu okkur
upp nöfn, tignarstöðu og emb-
ætti þeirra sem gáfu skipanir um
að skjóta og drepa,“ segir Anna
Neistat hjá Human Rights Watch.
„Og hver einasti embættismaður
sem nefndur er í þessari skýrslu,
allt upp til æðstu embættismanna
sýrlensku stjórnarinnar, ætti að
svara fyrir glæpi sína gegn sýr-
lensku þjóðinni.“
Samkvæmt upplýsingum Sam-
einuðu þjóðanna hafa harkalegar
aðgerðir stjórnvalda gegn mót-
mælendum kostað meira en fimm
þúsund manns lífið síðan mótmæl-
in hófust í vor.
Átökin í landinu hafa harðnað
verulega síðustu vikur, ekki síst
eftir að liðhlaupar úr hernum
gengu til liðs við mótmælendur og
tóku að berjast gegn fyrrverandi
félögum sínum. - gb
Liðhlaupar úr sýrlenska hernum leysa frá skjóðunni í viðtölum:
Áttu að beita öllum ráðum
Stækkunarglerslampar
Vandaðir
stækkunar-
glerslampar
í föndur og
fína vinnu.
Góð birta.
14.998,-
29.990,-
19.998,-
- eflir einbeitingu, úthald og þrek
- vinnur gegn streitu og álagi
- talin hjálpa gegn depurð og
prófkvíða
við hlustum!
1. Hvað heitir utanríkisráðherra
Palestínu?
2. Hjá hvaða erlenda tískurisa fékk
Íslendingurinn Arnar Már Jónsson
vinnu?
3. Hve miklu tapa erlendir kröfu-
hafar á föllnu íslensku bönkunum
þremur?
SVÖRIN
1. Riad Malki. 2. Vivienne Westwood. 3.
5.245 milljörðum króna.
VIÐURKENNING AFHENT Riad Malki, utanríkisráðherra Palestínu, ræðir við Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Svein Rúnar
Hauksson, formann Félagsins Ísland-Palestína, og Salman Tamimi, formann Félags múslima á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sjálfstæði Palestínu
viðurkennt á Íslandi
Raid Malki, utanríkisráðherra Palestínu, tók í gær við formlegri viðurkenningu
Íslands á sjálfstæði Palestínuríkis úr hendi Össurar Skarphéðinssonar. „Þetta
verður bæði mér og öðrum viðstöddum ógleymanleg stund,“ sagði Össur.
SÝRLENSKIR HERMENN Skildu skipanir
yfirmanna þannig að þeir mættu skjóta
og drepa að vild. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Meintur viðskiptafélagi Björgólfsfeðga ákærður fyrir peningaþvætti fyrir ráðherra:
Seldu fjarskiptabúnað ríkisins
VEISTU SVARIÐ?