Fréttablaðið - 16.12.2011, Síða 12
16. desember 2011 FÖSTUDAGUR12
EFNAHAGSMÁL Viðskiptaráð Íslands
kynnti í gær tillögur sérfræðinga-
hóps úr viðskiptalífi og háskólunum
um hvernig afnema megi gjaldeyris-
höft á einu ári. Er það mat hópsins að
það megi gera á svo skömmum tíma
án þess að verulegur þrýstingur
verði á gjaldeyrismarkaði og þann-
ig að kostnaður verði ekki of mikill.
Við sama tækifæri kynnti ráðið nýja
skýrslu um gjaldeyrishöftin.
„Við teljum að þessi áætlun sé
raunhæf og framkvæmanleg. Hún
er markvissari en áætlun Seðla-
bankans þar sem í henni er gengið
ákveðnar til verks en nú við öflun
upplýsinga um núverandi styrk
gjaldmiðilsins og að losa um þrýst-
ing vegna aflandskróna,“ segir Finn-
ur Oddsson, framkvæmdastjóri Við-
skiptaráðs, og bætir því við að eins
árs tímarammann beri ekki að taka
of bókstaflega. Yfirskrift áætlunar-
innar endurspegli fyrst og fremst
óþolinmæði með framgang áætlunar
Seðlabankans og þá trú að fara megi
fram með meiri ákveðni.
Finnur segir að ekki hafi farið
fram nægilega djúp umræða um
áætlun Seðlabankans og því hafi
Viðskiptaráð haft frumkvæði að
þeirri vinnu sem kynnt var í gær.
Þá gerir hann sér vonir um að fleiri
aðilar muni láta sig málið varða á
næstunni.
Sérfræðingahópinn skipuðu
átta sérfræðingar úr atvinnulífi
og háskólunum, þar á meðal Gylfi
Magnússon dósent, Orri Hauksson,
framkvæmdastjóri Samtaka iðnað-
arins, og Páll Harðarson, forstjóri
Kauphallarinnar.
Í greinargerð hópsins segir að
nauðsynlegt sé að draga eftir föng-
um úr líkum á því að sambærilegt
ójafnvægi og skapaðist í gjaldeyris-
málum fyrir fall krónunnar 2008
myndist á ný. Áætlun hópsins tekur
mið af því en henni er skipt í tvennt.
Fyrra skrefið snýr að því að losa
um svokallaða snjóhengju óþolin-
móðs fjármagns með því að gefa
eigendum króna kost á að bjóða í
langtíma ríkisskuldabréf í erlend-
um gjaldmiðlum. Slík bréf væri svo
hægt að selja á virkum eftirmark-
aði og þannig breyta í aðrar tegundir
erlendra eigna.
Seinna skrefið væri svo afnám
almennra gjaldeyrishafta þar sem
hömlum sem nú eru í gildi yrði aflétt
í þrepum á um það bil tólf mánaða
tímabili. Þessu til viðbótar þyrfti að
útfæra reglur sem hefðu það hlut-
verk að koma í veg fyrir að þau mál
sem leiddu til gjaldeyriskreppunnar
2008 endurtækju sig.
Ræðumenn voru sammála um að
gjaldeyrishöftin yllu efnahagslífinu
og landsmönnum öllum talsverðum
skaða. Þau væru hamlandi fyrir
framgang og vöxt atvinnulífsins og
stæðu þar með hagvexti fyrir þrif-
um. Þá drægju þau úr skilvirkni og
bjöguðu ákvörðunartöku.
Þó voru flestir sammála um nauð-
syn þess að setja á höft á sínum tíma.
Þau hefðu komið í veg fyrir að krón-
an félli talsvert meira en hún gerði.
Það hefði leitt af sér aukna verð-
bólgu, hærri vexti, lægri kaupátt
og enn verri skuldastöðu heimila og
fyrirtækja.
Arnór Sighvatsson, aðstoðar-
seðlabankastjóri, var meðal þeirra
sem tóku til máls á fundinum. Hann
fjallaði um áætlun Seðlabankans og
sagði farsælast að styðjast áfram við
hana. Hann fagnaði þó framtaki Við-
skiptaráðs og hvatti fleiri til að viðra
skoðanir sínar. magnusl@frettabladid.is
Barcelona
Kynntu þér ferðamöguleikana og
skráðu þig í netklúbbinn á VITA.is VITA er lífið
VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.is
Flugsæti, 28. des. - 2. jan.
Verð frá 27.900 kr.
og 15.000 Vildarpunktar
Innifalið: Flug fram og til baka með sköttum.
Verð án Vildarpunkta: 37.900 kr.
FÖNIX Raftækjaverslun . Hátúni 6a . Sími 552 4420 . fonix@fonix.is . www.fonix.is
LÖGGÆSLA „Þetta kom skemmtilega
á óvart. Það er nú ekki svo oft sem
okkur er hrósað og sjálfur lít ég á
aðstoð lögreglunnar við borgarana
sem sjálfsagðan hlut,“ segir lög-
reglumaðurinn Jóhann Birkir Guð-
mundsson sem í fyrradag hlaut
heiðursverðlaun Stúdentaráðs.
Upphaf málsins fá rekja til
hjálpsemi lögreglumannsins fyrr
í vikunni. Þá varð ungur náms-
maður fyrir því óláni að bifreið
hans varð bensínlaus í morgun-
umferðinni á Miklubraut. Hann
var á leið í próf og mátti því engan
tíma missa. Manninum til happs
kom Jóhann Birkir honum til
aðstoðar og ók með hann á næstu
bensínstöð til að sækja nokkra
lítra af bensíni. Að því loknu var
námsmanninum ekið aftur að bíln-
um. Þar var bensíninu hellt á tank-
inn og síðan hélt maðurinn áleiðis
í prófið.
Fyrir þessa greiðvikni veitti
Stúdentaráð Jóhann Birki heiðurs-
verðlaun ráðsins. Þess má geta að
Jóhann Birkir, sem er einn marga
ungra og efnilegra lögreglumanna
sem við eigum, útskrifaðist úr
Lögregluskóla ríkisins á síðasta
ári. - jss
VERÐLAUN Lilja Dögg Jónsdóttir, for-
maður Stúdentaráðs, afhenti Jóhanni
Birki viðurkenninguna. Aðrir á myndinni
eru Gunnar Hilmarsson aðalvarðstjóri,
og Heimir Hannesson, hagsmuna- og
lánasjóðsfulltrúi Stúdentaráðs.
Aðstoðaði námsmann sem var á leið í próf þegar bensínið þraut:
Ung lögga fékk heiðurverðlaun
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur til að greiða tuttugu þús-
und krónur í sekt til ríkissjóðs
fyrir að stela sex flöskum af kardi-
mommudropum og sjö flöskum af
vanilludropum úr verslun Nettó í
Reykjanesbæ.
Maðurinn játaði brot sitt. Hann
á langan brotaferil að baki. Þar má
nefna fíkniefnalagabrot, fölsun og
skjalabrot, ölvunar- og lyfjaakst-
ur. Árið 2006 var ákærði dæmdur
til greiðslu sektar og sviptur öku-
rétti fyrir lyfjaakstur. Með brotinu
nú rauf maðurinn skilorð. - jss
Dæmdur til að greiða sekt:
Stal 13 flöskum
af kökudropum
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP
TAKTU VÍSI Á
HVERJUM MORGNI!
ÁÆTLUN STJÓRNVALDA KYNNT Sérfræðingahópur Viðskiptaráðs telur áætlun Seðla-
bankans ekki nægilega markvissa. Aðstoðarseðlabankastjóri fagnar framtaki Viðskipta-
ráðs en telur skynsamlegt að halda sig við fyrirliggjandi áætlun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Afnema má gjald-
eyrishöftin hraðar
Viðskiptaráð kynnti í gær áætlun um afnám gjaldeyrishafta sem sérfræðinga-
hópur úr atvinnulífinu og háskólunum hefur unnið að. Er það mat hópsins að
áætlun Seðlabankans sé ekki nægilega markviss.
fjölpósti, blöðum,
tímaritum, bréfum
og vörum.
Okkar
hlutverk
er að
dreifa
Sími 585 8300 - www.postdreifing.is