Fréttablaðið - 16.12.2011, Page 32
32 16. desember 2011 FÖSTUDAGUR
F
íto
n
/S
ÍA
Njóttu jólanna í faðmi fjölskyldunnar
Við viljum öll njóta þess besta saman um jólin, hvort sem það er heitt súkkulaði og smákökur eða stórkostleg jóladagskrá Stöðvar 2.
Styttum biðina fyrir þau yngstu með vönduðu talsettu barnaefni, upplifum hátíðlega tónleika og hjúfrum okkur saman undir teppi
og njótum þeirra fjölmörgu bíómynda sem eru á dagskrá Stöðvar 2 og Stöðvar 2 Bíó um jólin.
Skoðaðu stod2.is og kynntu þér frábæru jóladagskrána okkar til hlítar!
Gefðu áskriftarkort að Stöð 2 í jólagjöf.
Það fæst hjá okkur í Skaftahlíðinni!
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
JÓLA BÍÓ
Stöð 2 Bíó sýnir yfir 200
úrvalskvikmyndir í hverjum
mánuði og stöðin fylgir frítt
með áskrift að Stöð 2.
Nokkur umræða hefur spunn-ist síðustu daga í kjölfar
fréttaflutnings fjölmiðla af
málþófi því sem hefur átt sér
stað innan veggja HÍ frá því í
febrúar 2010. Það er miður að
siðanefnd HÍ, háskólayfirvöld
og málsaðilar hafi ekki náð sam-
stöðu um að færa málið í mál-
efnalegan farveg.
Upphaf þessa máls má
rekja til þriggja kærubréfa
frá félaginu Vantrú á hend-
ur stundakennaranum Bjarna
Randveri Sigurvinssyni, m.a. til
siðanefndar HÍ. Viðbrögð siða-
nefndar HÍ voru þau að reyna
að koma málshefjanda og guð-
fræði- og trúarbragðafræðideild
að einhvers konar sáttaborði.
Það sem mér þykir furðu-
legast í því samhengi er að svo
virðist sem siðanefnd hafi ekki
ætlað sér að bjóða hinum kærða
stundakennara að þessu sátta-
borði, heldur gert þess í stað ráð
fyrir að hvers kyns sættir hlytu
að vera bundnar ávítum gegn
honum.
Óháð rannsóknarnefnd, sem
skipuð var til þess að fara yfir
þetta mál, gerir í skýrslu sinni
sem kom út í haust alvarlegar
athugasemdir við það verklag
siðanefndar að eiga í óform-
legum samskiptum við máls-
hefjanda. Þá er fundið að því að
nefndin aflaði ekki á kerfisbund-
inn hátt upplýsinga um málið og
hafi ekki farið eftir 1., 4., 5. og 6.
gr. eigin starfsreglna sem jafn-
framt eru áréttaðar í sjálfum
siðareglum skólans. Þrátt fyrir
þessi alvarlegu mistök virðist
HÍ ekki ætla að bæta Bjarna
Randveri það tjón sem hann
hefur orðið fyrir.
Hver gætir hagsmuna
(fræða)samfélagsins?
Ég vil ekki trúa því að HÍ hafi
ekki metnað til að styðja starfs-
mann sinn og gæta um leið
hagsmuna fræðasamfélagsins
í þessu samhengi. HÍ hlýtur að
eiga eftir að bregðast frekar við
skýrslu rannsóknarnefndarinn-
ar. Ég spyr hvort það geti verið
að ef ekki hefði ítrekað komið til
stuðningur háskólaprófessora og
kennara úr ýmsum deildum HÍ,
þá sætum við sem samfélag uppi
með þá staðreynd að geðþótti
en ekki fagleg vinnubrögð réðu
málalyktum í svona undarlegu
máli?
Í mínum augum er einstakur
kennari ekki án samhengis. Allt
efni sem sett er fram á vett-
vangi háskóla er bæði í fræði-
legu samhengi (að baki því eru
ákveðnar kenningar fræði-
manna, námskeiðslýsing…)
og í stjórnsýslulegu samhengi
(að baki kennaranum er deild,
svið…). Siðanefndin er líka í
samhengi. Hún er bundin starfs-
reglum, siðareglum, landslög-
um og stjórnarskrá. Því hlýtur
það að teljast álitshnekkir fyrir
HÍ þegar umræða um óánægju
utanaðkomandi hóps kemst
aldrei í málefnalegan farveg
innan stofnunarinnar vegna
rangrar málsmeðferðar en fer
þess í stað fram að stórum hluta
í dagblöðum og á vefnum. Hver
eru áhrif þess? Mun það ekki
t.d. fæla aðra frá því að koma
athugasemdum á framfæri
innan háskóla?
Vert er að halda því til haga að
hinn kærði vildi, frá þeim tíma-
punkti sem honum var kunnugt
um margþætt brot siðanefnd-
arinnar á eigin starfsreglum í
málsmeðferð sem virtist mjög
hlutdræg, að skipuð yrði ný
siðanefnd til að tryggja faglega
málsmeðferð. Til þess kom ekki
enda vildi siðanefndin ekki víkja
vegna vanhæfis og Vantrú gat
ekki hugsað sér nýja siðanefnd.
Fyrir vikið fékk kæra Vantrúar
aldrei málefnalega umfjöllun á
vettvangi siðanefndar HÍ, þar
sem félagið dró hana til baka
eftir að átök höfðu staðið yfir á
annað ár, m.a. um hæfi siða-
nefndar.
Það er miður, því að hags-
munum fræðasamfélagsins sem
og almennings í landinu hlýtur
að vera best borgið þegar hvers
konar ágreiningur fær mál-
efnalega umfjöllun, hvort sem
hún felst í því að kæru sé vikið
frá eða hún tekin til efnislegrar
meðferðar í samræmi við starfs-
reglur siðanefndar.
Fólki er brugðið
Upp úr stendur að fjölda fólks er
verulega brugðið yfir því öng-
stræti sem þetta mál hefur ratað
í. Mér þykir mjög miður að það
skuli snúast um persónu stunda-
kennarans. Bjarni Randver
Sigurvinsson fær þá einkunn
hjá langflestu af samferðafólki
sínu að hann sé einstaklega sam-
viskusamur og að þekking hans
sé yfirgripsmikil. Af því sem ég
þekki Bjarna Randver á ég ekki
von á því að hann telji að allt efni
sem frá honum komi sé fullkom-
ið, enda maðurinn sér meðvitað-
ur um annmarka eigin fræða-
sviðs auk þess sem hann hvetur
nemendur sína bæði munnlega
og skriflega til að meta allt sem
frá honum kemur með gagnrýnu
hugarfari. Hann hafnar því hins
vegar alfarið að hann hafi gerst
brotlegur við siðareglur HÍ og er
fjöldi háskólakennara sammála
honum þar.
Hvert fræðasvið hefur sína
annmarka og snýr þróun fræð-
anna jú sífellt að því að feng-
ist er við þessa annmarka. Með
rannsóknum og ritrýni, sem og
öllum öðrum þeim tækjum sem
fræðimennskunni stendur til
boða, leitast fræðimaðurinn við
á hverjum tíma að þróa fræðin
og bæta nýrri þekkingu í sarp-
inn. Að ráðist sé á persónu fræði-
mannsins vegna þess að einhver
sé ósáttur við aðferðir viðkom-
andi fræðigreinar er aðför að
háskólastarfi í landinu. Við það
verður ekki unað.
Höfundur er einn þeirra sem
staðið hafa fyrir fjársöfnun til
stuðnings Bjarna Randver.
Vantrú og HÍ
Trúmál
Pétur Björgvin
Þorsteinsson
djákni
Ég vil ekki trúa því að HÍ hafi ekki metn-
að til að styðja starfsmann sinn og gæta
um leið hagsmuna fræðasamfélagsins í
þessu samhengi. HÍ hlýtur að eiga eftir að bregðast
frekar við skýrslu rannsóknarnefndarinnar.
AF NETINU
Nei, takk við sölu
á Landsvirkjun
Lífeyrissjóðirnir bera sig aumlega
þessa dagana yfir að hafa ekki
fengið að kaupa hlut í Lands-
virkjun, Landsneti eða Lands-
bankanum. Sérfræðingarnir Ásgeir
Jónsson og Sigurður Jóhannesson
lögðu nýlega til að Landsvirkjun
og önnur orkufyrirtæki yrðu gerð
að almenningshlutafélögum og
hluti einkavæddur. Sambærilegt
ferli var viðhaft á sínum tíma
þegar bankarnir voru einka-
væddir.
Þessi umræða vekur upp til-
finningu af dejà vu frá 2007. Þá
skrifaði ég pistil undir fyrirsögn-
inni Hryllingssaga af raforkumark-
aðnum í tilefni þess að ýmsir voru
farnir að tala fyrir því að einka-
væða orkufyrirtækin og horfðu þá
til einkavæðingar bankanna sem
ákveðinnar fyrirmyndar.
Þar benti ég á mikilvægi þess að
læra af reynslu annarra.
Svíar hafa einkavætt hluta af
orkufyrirtækjunum á meðan hluti
er ennþá í eigu hins opinbera
(sveitarfélaganna). Skv. skýrslu
sem unnin var um málið bjóða
opinber raforkufyrirtæki að
jafnaði 24,% lægra verð en
einkarekin og 16% lægra en þrjú
stærstu einkafyrirtækin. Gildir það
hvort sem litið er til einstaklinga
eða fyrirtækja. Hagnaður hinna
opinberu er eitthvað lægri en
þeirra einkareknu en svo sem
ekkert til að fúlsa við (20-30%).
Ég hef mjög takmarkaðan áhuga
á að styðja við einkavæðingu
orkufyrirtækjanna ef árangurinn
fyrir almenning á að vera hærra
verð og lélegri þjónusta.
blog.eyjan.is
Eygló Harðardóttir