Fréttablaðið - 16.12.2011, Side 34
16. desember 2011 FÖSTUDAGUR34
Okkar ástkæri unnusti, sonur
og bróðir,
Ingi Þór Hafbergsson
Frostafold 42, Reykjavík,
sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans þriðjudaginn
13. desember, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 21. desember kl. 13.00.
Anna Birna Þorvarðardóttir
Freydís Harðardóttir Hafberg Magnússon
Lára Ósk Hafbergsdóttir
Sóley Dögg Hafbergsdóttir Sigvaldi Þorsteinsson
Tristan Ýmir
Okkar ástkæri sonur, faðir, tengdafaðir,
unnusti, bróðir og mágur,
Ragnar Leifur
Þrúðmarsson
rafvirki,
Hoffelli, Hornafirði,
andaðist föstudaginn 9. desember. Útför hans verður
gerð frá Hoffellskirkju laugardaginn 17. desember
kl. 14.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á að leyfa Hoffellskirkju
njóta þess.
Hólmfríður Leifsdóttir Þrúðmar Sigurðsson
Snæbjörn Sölvi Ragnarsson
Þrúðmar Kári Ragnarsson Waraporn Chanse
Hildur Björg Ragnarsdóttir Heiðar Ingi Eggertsson
Gunnþóra Gunnarsdóttir
Þrúðmar Þrúðmarsson Ingibjörg Æ. Steinsdóttir
Jóhanna Lilja Þrúðmarsdóttir Sigurbjartur Pálsson
Rúnar Þrúðmarsson Erna Hlín Þórðardóttir
Okkar ástkæra
Lilja Margrét
Oddgeirsdóttir
(Lillý)
Hólmgarði 33,
sem lést á heimili sínu sunnudaginn 4. desember,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn
19. desember kl. 15.00.
Kristjana Gisela Herbertsdóttir
Sveinn Oddgeir Paulsson Mariann Koudal Oddgeirsen
Anna Þóra Paulsdóttir Páll Þór Pálsson
Paul Ragnar Kummer Ðao Thi Phuong
Helena Alma Ragnarsdóttir Jón Ingvar Ragnarsson
Sigurður Egill Ragnarsson Bryndís S. Halldórsdóttir
Sonja Valdemarsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þorlákur Sigurðsson
Garði, Grímsey,
verður jarðsunginn frá Miðgarðakirkju í Grímsey
mánudaginn 19. desember klukkan 14.00.
Hulda Reykjalín Víkingsdóttir
Sigurður Þorláksson Marna Wakely
Sigrún Þorláksdóttir Gylfi Þorgeir Gunnarsson
Inga Þorláksdóttir Jón Skúli Sigurgeirsson
Guðlaugur Óli Þorláksson Aðalbjörg Þórólfsdóttir
Kristjana Jóna Þorláksdóttir Rúnar Andrew Jónsson
Birna Dagbjört Þorláksdóttir Smári Kristinsson
Þorlákur Þorláksson Sæunn Helga Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
50 ára afmæli
Þorlákur Víkingur
Morthens
á 50 ára afmæli laugardaginn
17. desember.
Tek á móti ættingjum og vinum á
Hverfisgötu 125,
gengið inn baka til á efstu hæð.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför ástkærrar móður minnar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Guðrúnar Marteinsson
O’Leary
fyrrv. hjúkrunarforstjóra.
Sérstakar þakkir til starfsfólks í Foldabæ
og á Droplaugarstöðum.
Katrín Guðmundsdóttir Guðni Oddsson
Guðmundur Guðnason Alma María Rögnvaldsdóttir
Eva Hrönn Guðnadóttir Þór Vilhelm Jónatansson
Marteinn Guðmundsson
Katrín Guðmundsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Haukur Dan Þórhallsson
fyrrverandi skipstjóri,
Garðatorgi 7, Garðabæ,
verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju miðvikudaginn
21. desember kl. 15.00.
Anna Heiðdal
Sigurður Heiðdal Hauksson Anna Kristín Hreinsdóttir
Þórhallur Hauksson Fanney Helga Hannesdóttir
Jóhanna Hauksdóttir Sigurður Skúli Bárðarson
Knútur Grétar Hauksson Sigrún Bragadóttir
Anna Hauksdóttir Vignir Jakob Sveinsson
Jóhanna Kristín Hauksdóttir Örlygur Örn Oddgeirsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar kæra
Ágústa R. Júlíusdóttir
áður til heimilis að Fornhaga 17,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þriðjudaginn
6. desember, verður jarðsungin frá Neskirkju mánu-
daginn 19. desember kl. 15. Starfsfólki Sóltúns eru
færðar þakkir fyrir frábæra umönnun. Blóm og kransar
afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er
bent á hjúkrunarheimilið Sóltún.
Sigurður Júlíusson Hulda Sigurðardóttir
Hólmfríður Júlíusdóttir
Elín Pálmadóttir
Sólveig Pálmadóttir
Helga Pálmadóttir Helgi G. Samúelsson
frændsystkin og ömmubörn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
„Fyrir okkur er ómetanlegt að eiga
slíka velunnara,“ segir Jónas Þórir
Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar, en Jóhann G.
Jóhannsson tónlistarmaður afhenti
Jónasi heildarútgáfu lagsins Hjálp-
um þeim, við athöfn í Neskirkju á
miðvikudag.
Lagið, sem er eftir Jóhann G. og
Axel Einarsson, var fyrst gefið út árið
1985 og endurútgefið árið 2005 í flutn-
ingi nýrra listamanna. Nú hefur verið
útbúin heildarútgáfa sem inniheldur
nýja útgáfu lagsins á ensku, fyrri
útgáfurnar tvær auk myndbanda og
sögu lagsins. Þá fylgir einnig ósungin
útgáfa og undirleikur en við athöfnina
í Neskirkju söng Barnakór Öldutúns-
skóla lagið við undirleik af disknum.
„Við Axel hugsuðum ensku útgáf-
una sem hvatningu frá Íslandi til
umheimsins um að bregðast við hörm-
ungunum í Austur-Afríku,“ segir
Jóhann G.
„Þarna eru milljónir mannslífa í
húfi og ákveðið sinnuleysi af hálfu
alþjóðasamfélagsins í gangi. Það var
mjög fallegt að heyra barnakórinn
syngja lagið í Neskirkju en það hefur
verið draumur okkar Axels að heyra
það flutt af barnakór, þannig verður
lagið og boðskapur textans enn þá
sterkari,“ segir Jóhann.
Allur ágóði af sölu disksins rennur
til Hjálparstofnunar kirkjunnar og
segir Jónas Þórir stuðninginn ómet-
anlegan.
„Ég hef stundum sagt að sennilega
hefur engin ein stétt lagt góðum mál-
efnum jafn mikið lið og tónlistarmenn
gegnum tíðina, að öðrum ólöstuðum.
Þarna gefa fleiri hundruð manns
vinnu sína við vinnslu lagsins sem er
tileinkað okkur. Listamennirnir sjá
um alla vinnuna og við erum þiggj-
endur. Það er ekki alltaf svoleiðis en
yfirleitt þurfum við að hafa mikið
fyrir því að safna fé. Þeir vinna þetta
af mikilli fórnfýsi og kærleika,“ segir
Jónas Þórir.
„Með þessari heildarútgáfu höfum
við komið laginu endanlega á heima-
stöð,“ segir Jóhann en hann og Axel
hafa gengið svo um hnúta að allar höf-
undarréttargreiðslur af laginu renna
beint til Hjálparstofnunar kirkjunnar.
„Við vonumst einnig til að í fram-
tíðinni haldi áfram að koma út nýjar
og nýjar útgáfur af laginu og þannig
verði viðhaldið stuðningi við Hjálpar-
stofnun kirkjunnar,“ segir Jóhann.
heida@frettabladid.is
HEILDARÚTGÁFA HJÁLPUM ÞEIM: AFHENT HJÁLPARSTOFNUN KIRKJUNNAR
Ómetanlegur stuðningur
HJÁLPUM ÞEIM Á HEIMASTÖÐ Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar
kirkjunnar, tók við heildarútgáfu lagsins Hjálpum þeim úr höndum Jóhanns G. Jóhannssonar í
Neskirkju. Barnakór Öldutúnsskóla söng lagið við athöfnina. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
GEIR HALLGRÍMSSON forsætisráðherra og seðlabankastjóri (1925-1990) fæddist þennan dag.
„Vissulega metum við fegurð landsins og kosti
svo að við vildum hvergi annars staðar búa.“