Fréttablaðið - 16.12.2011, Side 48

Fréttablaðið - 16.12.2011, Side 48
12 föstudagur 16. desember SOHO/MARKET Á FACEBOOK Full búð af nýjum vörum Opið til 12–22 fram að jólum, Aðfangadagur 10–14 Þú færð jólagjöfina hjá okkur J ólaböll og jólaboð eru fram undan hjá mörgum og gaman getur verið að klæð- ast sínu fínasta pússi og setja svolítinn lit á kinnarnar. Björg Alfreðsdóttir hjá MAC sýnir fallega jólaförðun sem allir ættu að geta leikið eftir áður en haldið er á jólaball. „Ég byrja alltaf á því að undirbúa húðina vel til að jafna hana og minnka roða. Svo til að ná fram jafnari áferð notaði ég Clinique Repairwear Lazer Focus farða og svo True Bronze Sunkissed frá Clinique til þess að skyggja húðina svolítið og Snowglobe High- light úr jólalínu MAC,“ útskýrir Björg. Næst notaði hún Estée Lauder í Tender Petal fremst á kinnbeinin til að ná fram fersku og fallegu yfirbragði. Á augnlokin bar hún Paints Bare Canvas, Metal X augn- skugga með nafninu Cyber og rauðan lit úr Saultry augnskuggapallettunni frá MAC. „Á augnhvarmana notaði ég svartan blýant frá MAC sem heitir Graphblack og til að fá góða dýpt á augun toppaði ég þetta með Haute & Naughty Lash maskaranum frá MAC og setti svo augnhár númer 20 til að fá meira „kattar- útlit“.“ Á varirnar fóru Prep + Prime Lip og Pro Longwear blýantur með nafninu Staunchly Stylish, varaliturinn Secret Kiss frá Estée Lauder og loks Patience, Please glossinn til að stækka þær. Jólaförðun fyrir jólaboðin: GLÆSILEIKI & JÓLAGLEÐI Jólaförðun Björg Alfreðsdóttir hjá MAC sýnir lesendum fallega jólaförðun. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG Jólavörur Björg notaði meðal annars Clinique Repairwear Lazer Focus farða og Patience, Please gloss til að ná fram jólalegri förðun. Patience, Please gloss. True Bronze Sunkissed frá Clinique. Staunchly Stylish vara- blýantur. Haute & Naughty Lash maskari.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.