Fréttablaðið - 16.12.2011, Blaðsíða 54
Fleiri myndir á Facebook
Opið til kl 22 til jóla
Helgarfjör í Flash
afsláttur af öllum vörum*
*Nema af sparikjólum
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Flott föt fyrir
flottar konur,
Jólatilboð
40-50%
afsláttur af völdum vörum
(Kjólar, tunicur, ermar og fl.)
Stærðir
40-60
Flott jólaföt
fyrir flottar konur
LOGYehf. Sími 661-2580. Sendum í póstkröfu.
M
ADE IN USA
NÝJASTA NÝTT
Þú flýgur með fiðring í maganum.
Margverðlaunaður sleði.
Fyrir 5 ára og upp úr.
Verð 11.900 kr.
Fæst einungis á 1. hæð
Kringlunar v/ jólatréð.
Sleðinn var valinn
leikfang USA
2009 og 2010
Jólabasar verður opnaður í Nýlistasafninu á laugardaginn klukk-
an 12. Þar verða verk eftir fjölmarga listamenn og verður margt
forvitnilegt í boði: Teikningar, málverk, abstrakt strengjabrúður og
saumaðar brúður, hljóðverk, þrívíð verk og bækur.
Fangarnir í trénu er sjálfstætt
framhald bókarinnar Galdra-
steinninn sem höfundur, Harpa Dís
Hákonardóttir, gaf út aðeins 16 ára
gömul. Ævintýrin sem söguhetja
bókanna lendir í eiga sér stað í
Álfheimum, þar sem skuggalegar
verur verða á vegi Erlu sem leggur
í hættuför úr mannheimum.
Kristín Helga Gunnarsdóttir hefur
þótt ná að fanga einhvern dular fullan
og í senn spennandi tón í mörgum
sínum bókum og tvinna saman sam-
tíma og fortíð. Í ár kemur út bókin
Ríólítreglan, en á skólaferðalagi í
Landmannalaugar hverfur kennari
og í framhaldinu gerast ótrúlegir
atburðir.
Önnur bók með dularfullum
undirtón er Náttúrugripa-
safnið eftir Sigrúnu Eldjárn.
Rúnar er beðinn um að ferja
dularfullan pakka frá New
York til Íslands og á meðan fá
vinir Rúnars aðra undarlega
sendingu úr fjarlægri heims-
álfu.
Upp á líf og dauða er óvenjuleg
spennusaga, fyndin og alvarleg í
senn, en í henni er tekið á efnum
sem alla varðar; þunglyndi
og sjálfsvígshættu unglinga.
Hrönn finnur bréf sem vekur
með henni óhug um að bréfrit-
ari ætli að fyrirfara sér og hefst
leitin að þeim sem skrifaði bréf-
ið. Jónína Leósdóttir er höfund-
ur hennar.
Meðal annarra spennandi bóka
fyrir yngri kynslóðina má nefna
bókina Agnar Smári – Tilþrif í
tónlistarskólanum, sem gerist
í óhefðbundnu söguumhverfi;
tónlistarskóla. Agnar Smári
er fyrsta bók Höllu Þórlaugar
Óskarsdóttur, en í henni upp-
lifir sjö ára strákur undarlegan
dag í tónlistarskólanum ásamt
vini sínum. Þeir vinir uppgötva
dularfulla hluti í krókum og
kimum skólans.
Þá er þriðja bókin um forseta
Íslands eftir Gerði Kristnýju
komin út; Forsetinn, prinsess-
an og höllin sem svaf, og er hún
sannkölluð ævintýrabók. For-
setinn skellir sér á krýningar-
hátíð foreldra prinsessunnar
vinkonu sinnar í Noregi og á
síðan sjálfur afmæli meðan á
ferðalaginu stendur.
Þrjár bækur þar sem dýr eru
aðalpersónur koma út fyrir
þessi jól. Söngur guðfuglsins
eftir Ísak Harðarson fjallar
um fjóra litla unga í Hljóm-
skálagarðinum sem leita meðal
annars svara við spurningunni
um til hvers fuglar séu. Þá er
fluga aðalhetja bókar
Bryn dísar Björgvins-
dóttur; Flugan sem
stöðvaði stríðið, en
bókin hlaut Íslensku
barnabóka verðlaunin
2011. Kötturinn Keli
lendir síðan í honum
kröppum í bókinni
Keli minn sem hvarf
eftir Ingibjörgu
Ferdinandsdóttur.
Eigandi Kela, Haf-
steinn 9 ára, er ekki síður
söguhetja bókarinnar.
juliam@frettabladid.is
Spennandi barnabókajól
Jólin þykja vera spennandi í meira lagi fyrir börn og unglinga en þó nokkrir íslenskir barnabókahöfundar
senda frá sér bækur þar sem söguhetjur lenda í ótrúlegri atburðarás. Fréttablaðið leit í nokkrar bækur.