Fréttablaðið - 16.12.2011, Síða 66
16. desember 2011 FÖSTUDAGUR
Lifandi
jólatré
í BYKO!
3.790 kr.
Norma
nnsþin
ur
Verð
frá:
Vnr. 41140110-16
Normannsþinur
100-125 cm 3.790 kr.
125-150 cm 5.690 kr.
150-175 cm 6 690. k r.
175-200 c m 7.990 k r.
200 250 cm 10 990 kr- . .
OPIÐ
til kl. 22.00
í jólatréssölu BYKO Breidd
alla daga til jóla
Hluti söluandvirðis af hverju jólatré fer til
Hjúkrunarheimilis Sunnuhlíðar í Kópavogi
BYKO býður eingöngu upp
á hágæða, sérvalin jólatré
Í BYKO velur þú draumajólatréð við
kjöraðstæður inni, þannig að þú getur
getur gefið þér góðan tíma og vandað
valið. BYKO býður upp á Normannþin,
sem hefur verið visælusta jólatré lands-
manna um áratugi. Einnig getur þú valið
um íslenska furu og blágreni.
Sérvalin jólatré sem fást í
Timbursölu Breidd, Selfossi
og Granda.
Frostrósar-tónleikaröðin
mun velta í kringum 150 til
170 milljónum þegar yfir
lýkur. Forsvarsmenn tón-
leikaraðarinnar ætla sér
stóra hluti á næsta ári.
„Við erum búnir að ganga frá
þessu og ætlum að gera þetta
á næsta ári. Þetta hefur staðið
til síðustu tvö ár en alltaf verið
frestað. Nú ætlum við hins vegar
að kýla á þetta,“ segir Samúel
Kristjánsson. Hann ætlar að
flytja út Frostrósar-þema sitt til
Noregs og Svíþjóðar og halda þar
tónleika í fjórtán borgum í lönd-
unum tveimur.
Samúel er nýkominn heim frá
Ósló þar sem hann var að ganga
frá samningum þess efnis en
jafnframt er verið að skoða tón-
leikastaði í Danmörku og Finn-
landi. Þegar yfir lýkur gætu
Frostrósar-borgirnar því orðið
tuttugu í Skandinavíu. Samúel
hefur þegar gengið frá leigu á
tveimur stærstu tónleikasöl-
um Svíþjóðar og Noregs; það er
Globen í Stokkhólmi og Spek-
trum í Ósló. Þessar hallir eiga
það báðar sameiginlegt að hafa
hýst Eurovision-keppni. Spurður
hvort íslenskir söngvarar muni
koma við sögu efast Samúel um
það, sýningarnar verði byggð-
ar upp með söngfuglum hvers
lands. Hann gerir sér jafnframt
vonir um að Sissel Kyrkjebø verði
þeim innan handar við tónleika-
haldið. „Hún var búin að lýsa því
yfir að hún ætlaði að taka sér frí
í tvö ár en gerði alveg sérstaka
undan tekningu fyrir Ísland,“
segir Samúel.
Frostrósir hafa slegið í gegn
hér á landi og árið í ár var engin
undantekning. Allt tal um kreppu
og samdrátt virðist því ekki eiga
við rök að styðjast þegar kemur
að þessum jólatónleikum. „Við
fengum 27 þúsund gesti í fyrra og
ég reikna með að við náum þeirri
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 16. desember
➜ Tónleikar
22.00 Jólaplögg Record Records 2011
er haldið á Nasa. Fram koma hljóm-
sveitirnar Of Monsters and Men,
Agent Fresco, Sykur, Orphic Oxtra og
Lockerbie. Miðaverð í forsölu á Miði.is
1.500 kr.
20.00 Tónlistarmaðurinn Mugison
heldur fría tónleika á Græna hattinum,
Akureyri. Seinni tónleikar verða klukkan
23.00.
21.00 Próflokafögnuður á Bar 11 þar
sem fram koma Úlfur Úlfur og Smutty
Smiff sem verður við plötuspilarana.
21.00 Þrítugasta og fjórða Grapevine
Grassroots kvöldið verður haldið á
Hemma & Valda, Laugavegi 21. Fram
koma hljómsveitirnar Cosmos, Sinner
Bean og Gang Related. Eins og venju-
lega er ókeypis inn.
22.00 Hljómsveitin Homo and the
Sapiens heldur tónleika á Ob-La-Dí-Ob-
La-Da, Frakkastíg 8. 1.000 kr. inn.
21.30 Hljómsveitin Hellvar heldur
tvenna tónleika á Dillon við Laugaveg.
Fyrri tónleikarnir verða órafmagnaðir.
Síðan verður gert stutt hlé, en talið aftur
í með rafmagnið á klukkan 22.30.
23.30 Contalgen Funeral leikur á Gull-
öldinni í Grafarvogi.
12.15 Sérlega jólalegir hádegistón-
leikar verða í Hátíðarsal Skúlatúns 2,
efstu hæð. Þar munu stíga á stokk
frændsystkinin Anna Jónsdóttir, óperu-
söngkona og Svavar Knútur söngvaskáld
og söngvari ásamt Sophie Schoonjans
hörpuleikara.
21.00 Hljómsveitin Nolo heldur tón-
leika í tilefni útgáfu plötu sinnar, Nology
á Bakkus. Um upphitun sjá hljóm-
sveitirnar Saytan og Prinspóló og Bobby
Breiðholt leikur tónlist af plötum
eftir tónleikana. Frítt inn.
➜ Leiklist
20.00 Nemendaleikhús
Listaháskóla Íslands sýnir
verkið Jarðskjálftar í London
eftir Mike Bartlett í leikstjórn
Halldórs E. Laxness. Sýningar
verða í Leikhúsi Listaháskóla
Íslands að Sölvhólsgötu 13.
Miðaverð er kr. 1.500.
➜ Opnanir
16.00 Sýning á verkum
Diddu Hjartardóttur Leaman
myndlistarmanns verður
opnuð í Artóteki á 1. hæð
Borgarbókasafns Reykja-
víkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Allir
eru velkomnir á opnunina. Á sýningunni
eru ljósmyndir teknar í búsáhaldabylt-
ingunni árið 2009. Sýningin stendur
til 29. janúar. Opið er mánudaga til
fimmtudaga kl. 10-19, föstudaga kl.
11-18 og um helgar kl. 13-17.
➜ Uppákomur
13.30 Félagsmiðstöðin Aflagranda 40
stendur fyrir jólabingói.
➜ Dansleikir
23.30 Land & synir ætla að rifja upp
gamla takta og bjóða upp á alvöru
sveitaball á mölinni í tilefni próf-
loka. Miðaverð 1.500 krónur,
20 ára aldurstakmark.
➜ Uppistand
21.00 Síðasta sýning á
Dagbók Önnu Knúts
fyrir jól í Gaflaraleikhús-
inu. Sérstakur gestur
er Elva Dögg Gunnars-
dóttir.
Upplýsingar um
viðburði sendist á
hvar@frettabladid.
is.
Tekur frá Eurovision-hallir
fyrir Frostrósar-tónleika
Í VÍKING TIL SKANDINAVÍU
Samúel Kristjánsson ætlar að flytja Frostrósar-
þemað til Noregs og Svíþjóðar og hefur
þegar bókað Eurovision-hallirnar Globen
og Spektrum í Stokkhólmi og Ósló. Ráðgert
er að halda Frostrósar-tónleika í fjórtán
borgum landanna tveggja auk þess
sem verið er að skoða möguleika
í Danmörku og Finnlandi. Sissel
Kyrkjebø verður tónleikahaldaranum
væntanlega innan handar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
tölu aftur.“ Viðskiptablaðið birti í
október frétt þess efnis að Frost-
rósar-tónleikarnir myndu velta
250 milljónum króna í miðasölu
en Samúel segir þá tölu aðeins
of háa, hún sé á bilinu 150 til 170
milljónir. „En kostnaðurinn er
líka gríðarlegur. Síðustu tvö ár
hafa hins vegar verið nokkuð góð
og við höfum komið út réttum
megin við núllið,“ segir Samúel.
Fjórir Frostrósar Klassík-tón-
leikar fóru fram í Hörpu um síð-
ustu helgi þar sem Kyrkjebø söng
með íslenskum söngvurum. Orð-
rómur var á kreiki um að brögð
hefðu verið í tafli með þriðju tón-
leikana sem voru um miðjan dag
á sunnudeginum en á vefsíðunni
midi.is var auglýst að uppselt væri
á þá. Samúel segir að þeir tón-
leikar hafi verið keyptir af fjór-
um fyrirtækjum, þeir voru styttri
eða aðeins fimmtíu mínútur. Hann
þvertekur því fyrir að einhverjum
blekkingum hafi verið beitt. „Við
veltum því fyrir okkur hvort við
ættum að setja þessa tónleika á
netið og ákváðum að gera það.“
freyrgigja@frettabladid.is