Fréttablaðið - 16.12.2011, Síða 78
16. desember 2011 FÖSTUDAGUR58
sport@frettabladid.is
ALEXANDER PETERSSON OG ALFREÐ GÍSLASON eru báðir í úrvalsliði þýsku úrvalsdeildar-
innar í handbolta sem mætir þýska landsliðinu í Stjörnuleik deildarinnar í byrjun febrúar. Alfreð þjálfar Kiel en
Alexander leikur með Füchse Berlin. Alls var 21 leikmaður valinn í liðið og tveir þjálfarar til að stýra því.
Þegar maður er
veikur og þarf að
komast á salerni hvenær
sem er dagsins, fer maður
stundum ekki mikið út fyrir
hússins dyr.
EDDA SVAVARSDÓTTIR
FORMAÐUR ÍSLENSKU CCU-SAMTAKANNA
FÓTBOLTI Á hverjum degi berast
fregnir af meiðslum íþróttamanna
og að þeir þurfi vegna þeirra að
taka sér hvíld frá íþrótt sinni.
Langoftast er hægt að greina frá
eðli meiðslanna og hversu lengi
viðkomandi íþróttakappi verði frá
– sem reynist svo yfirleitt vera
rétt. En af og til berast fregnir af
því að íþróttamenn þurfi að taka
sér veikindafrí þar sem þeir eru
að glíma við sjúkdóm sem kemur
íþróttinni ekkert við. Í þeim til-
vikum getur óvissan verið mikil
og óvíst hvort og hvenær viðkom-
andi getur stundað íþrótt sína á ný.
Fyrr í vikunni var greint frá
því að skoski knattspyrnumað-
urinn Darren Fletcher hjá Man-
chester United myndi líklega ekki
spila meira með liðinu á leiktíðinni
þar sem hann væri veikur. Man-
chester United greindi frá því að
Fletcher væri með sjúkdóm sem
nefnist Colitis ulcerosa, eða sára-
ristilbólga á íslensku. Voru fjöl-
miðlar beðnir um að gefa honum
næði og svigrúm til að takast á við
veikindin.
Ólæknandi sjúkdómur
Sjúkdómurinn leggst á þarmana og
ristilinn og getur haft mikil áhrif
á daglegt líf. Helst lýsir hann sér í
langvinnum niðurgangi, stundum
blóðugum, þreytu, kviðverkjum
og í slæmum tilvikum hefur hann
einnig í för með sér þyngdartap
og hita.
Edda Svavarsdóttir er formað-
ur CCU-samtakanna á Íslandi, sem
eru hagsmunasamtök sjúklinga
með sáraristilbólgu og svæðis-
garnabólgu. Samtökin voru stofn-
uð árið 1995 til að auka samfélags-
vitund um sjúkdómana og veita
sjúklingum vettvang til að leita sér
stuðnings og kynnast öðrum sem
hafa gengið í gegnum það sama.
Talið er að um 0,5 prósent íslensku
þjóðarinnar séu með annan hvorn
sjúkdóminn, eða vel á annað þús-
und manns.
Algengt er að fólk greinist fyrst
með sjúkdóminn á aldrinum 15-25
ára en orsökin er enn ókunn.
„Fyrir það fyrsta er sjúkdómur-
inn ólæknandi,“ segir Edda. „Það
er hægt að halda honum niðri með
lyfjagjöf en það er ekki vitað af
hverju fólk fær þennan sjúkdóm.“
Vill verða feimnismál
Edda segir að það hafi lengi þótt
feimnismál að greinast með sjúk-
dóminn enda geti hann verið erf-
iður viðureignar í daglegu lífi.
„Þegar maður er veikur og þarf
að komast á salerni hvenær sem er
dagsins, fer maður stundum ekki
mikið út fyrir hússins dyr,“ segir
Edda. „Allt álag – stress og áreiti –
er vont fyrir sjúkdóminn. Það þarf
einnig að passa vel upp á mataræði
og svefn.“
Eins og með aðra sjúkdóma
leggst sáraristilbólga misþungt
á sjúklinga. „Sumir eru heppnir
og sleppa vel en það getur farið
á versta veg hjá öðrum og endað
með því að það þurfi að fjarlægja
ristilinn með uppskurði. Viðkom-
andi fengi því stómapoka – sumir
innvortis en það gengur ekki hjá
öllum og þeir þurfa því að vera
með útvortis stóma.“
Sjúkdómurinn er ekki banvænn
en getur þó leitt til ristilkrabba-
meins. Líkurnar á því aukast
umtalsvert eftir að hafa gengið
með sjúkdóminn í áratug.
Þeir sem eru með stómapoka
geta lifað eðlilegu daglegu lífi en
óvíst er hvort knattspyrnumaður,
með þeim átökum sem fylgja á
knattspyrnuvellinum, geti stundað
íþróttina eins og áður. Það skal þó
tekið fram að það telst ekki fötlun
að vera með stómapoka enda hafa
einstaklingar með stómapoka
bæði klifið Everest-fjall og hlaup-
ið maraþon, svo eitthvað sé nefnt.
Uppskurður er lokaúrræði
Með því að fjarlægja ristilinn telst
sjúkdómurinn læknaður en með
varandi afleiðingum fyrir viðkom-
andi. Edda segir að fæstir grípi til
þessa úrræðis fyrr en í lengstu lög.
„Lyfjagjöf geta fylgt aukaverk-
anir og svo geta margir stjórnað
líðaninni með breyttu mataræði,“
segir Edda, sem sjálf hefur glímt
við sáraristilbólgu. „Það hefur
reynst mér vel að taka út allt rautt
kjöt, áfengi og steiktan mat. Bras-
að skyndibitafæði er ekki lengur
til staðar í mínu lífi.“
Átök og áreynsla varhugaverð
Hún segir að íþróttaiðkun gæti
reynst erfið fyrir sjúklinga. „Þeir
sem glíma við þetta þurfa að hafa
í huga að átök og áreynsla geta
haft afar hvimleiðar afleiðingar í
för með sér. Sjúkdómurinn hefur
verið að greinast í krökkum allt
niður í tólf ára aldur og þetta getur
verið afar mikið feimnismál fyrir
þá þegar fram í sækir – ekki bara
í íþróttum,“ segir Edda og nefnir
sem dæmi að prófkvíði geti verið
slæmur fylgikvilli fyrir sjúklinga.
„Próf geta oft verið ávísun á veik-
indi,“ segir hún.
Hvort Darren Fletcher spilar
aftur fótbolta verður tíminn einn
að fá að leiða í ljós en Edda segir
að þeir sem hafi greinst með sjúk-
dóminn geti lifað eðlilegu lífi.
„En það getur verið líf með
takmörkunum. Margir takast á
við sjúkdóminn með jákvæðni
að leiðarljósi og þá getur manni
liðið mjög vel,“ segir Edda. „Finni
maður hentuga lyfjagjöf er hægt
að halda sjúkdómnum niðri og þá
ætti knattspyrnukappinn að geta
byrjað að spila á ný.“
eirikur@frettabladid.is
Háalvarlegur og erfiður viðureignar
Darren Fletcher, leikmaður Manchester United, mun líklega ekki spila meira á leiktíðinni vegna veikinda
en hann hefur greinst með sáraristilbólgu. Sjúkdómurinn er ólæknandi en sífellt fleiri greinast með hann.
DARREN FLETCHER 27 ára gamall miðjumaður sem gekk til liðs við Manchester
United ellefu ára gamall. Á fjölda leikja að baki með bæði United og skoska lands-
liðinu en nú gæti ferill hans verið í hættu. NORDICPHOTOS/GETTY
Crohn‘s og Colitis samtökin á Íslandi eru hagsmunasamtök fólks með
svæðisgarna- og sáraristilbólgu. Edda Svavarsdóttir er formaður þeirra en
meðlimir eru um 185 talsins.
„Sjúkdómur eins og sáraristilbólga er oft feimnismál enda vilja fáir
tala opinskátt um klósettferðir,“ segir Edda, en samtökin hafa staðið fyrir
fræðslufundum og fyrirlestrum, meðal annars í samstarfi við Stómasam-
tökin og snemma á næsta ári verður fundur með Gigtarfélagi Íslands. Þá
hefur verið gefinn út skólabæklingur, meðal annars fyrir kennara nemenda
sem glíma við sjúkdómana. Ekki síst eru samtökin vettvangur fyrir þá sem
vilja leita sér stuðnings og hjálpar.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.ccu.is.
CCU-samtökin á Íslandi
HANDBOLTI Þórir Hergeirsson á
möguleika á því að koma norska
kvennalandsliðinu í úrslitaleik-
inn á HM þegar Noregur mætir
Spáni í undanúrslitum á HM
kvenna í Brasilíu í kvöld.
Þetta er annað heimsmeistara-
mót norska liðsins undir stjórn
Þóris en liðið tapaði í undan-
úrslitum fyrir verðandi heims-
meisturum Rússa á HM í Kína
fyrir tveimur árum. Norska liðið
hefur unnið til verðlauna á tveim-
ur fyrstu stórmótunum undir
stjórn Þóris, vann brons á HM
2009 og gull á EM í fyrra. Norð-
menn hafa verið í fremstu röð í
kvennahandboltanum undanfarin
ár og hafa unnið fjögur Evrópu-
mót í röð en hafa ekki unnið HM í
tólf ár eða síðan norska liðið vann
á heimavelli undir stjórn Marit
Breivik árið 1999.
Noregur tapaði fyrsta leiknum
sínum á mótinu en hefur síðan
unnið sex leiki í röð. Spænska
liðið hefur unnið fimm leiki í
röð, þar á meðal heimastúlkur í
Brasilíu í átta liða úrslitum.
Í fyrri undanúrslitaleiknum
mætast Danmörk og Frakkland
en danska liðið hefur unnið alla
sjö leiki sína á mótinu. Frakkar
hafa aftur á móti slegið Svía og
heimsmeistara Rússa út í síðustu
leikjum sínum.
Báðir leikir verða sýndir beint
á Stöð 2 Sport í kvöld, Danmörk-
Frakkland klukkan 19.15 og Nor-
egur-Spánn klukkan 22. - óój
Undanúrslitin á HM kvenna:
Fer Þórir með
Noreg í úrslit?
ÞÓRIR HERGEIRSSON Norska liðið hefur
spilað betur með hverjum leik á HM í
Brasilíu. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRIR
FÓTBOLTI KR-ingar eru komnir langt með að
setja saman liðið sem mun reyna að verja
Íslands- og bikarmeistaratitlana á næsta sumri
en þeir héldu blaðamannafund í gær þar sem
tilkynnt var um undirskriftir fjórtán leik-
manna.
Þrír nýir leikmenn eru í þessum hópi en þeir
eru allir ungir landsbyggðarmenn sem hafa
verið í stórum hlutverkum hjá sínum félögum
þrátt fyrir ungan aldur. Þetta eru þeir Hauk-
ur Heiðar Hauksson, 20 ára fyrirliði KA, Þor-
steinn Már Ragnarsson, 21 árs fyrirliði Vík-
ings í Ólafsvík, og Atli Sigurjónsson, 20 ára
miðjumaður Þórs, sem vakti mikla athygli á
sínu fyrsta ári í Pepsi-deildinni síðasta sumar.
Stóra fréttin er þriggja ára samningur Atla
en áður var ljóst að Haukur og Þorsteinn ætl-
uðu að reyna sig í Vesturbænum.
„Þetta er búið að vera heillengi í loftinu
þannig að það er mjög fínt að vera búinn að
klára þetta. Ég hef bara gott af þessari sam-
keppni og þetta verður bara spennandi. Það er
ekki ætlunin að sitja á bekknum,“ sagði Atli en
hann viðurkennir að það sé erfitt að fara frá
Þór þar sem hann hefur spilað með alla tíð.
„Ég er búinn að vera jafnlengi hjá Palla og ég
er búinn að vera hjá foreldrum mínum þannig
að það er erfitt að fara frá þeim öllum.Ég komst
að lokum að þeirri niðurstöðu að ég þyrfti að
spila í Pepsi-deildinni,“ segir Atli og bætir við:
„Það gekk ekki upp núna að komast í atvinnu-
mennskuna en þá fer maður bara upp á enn þá
hærri stökkpall og stekkur þaðan. Það er klár-
lega eitthvað sem ég stefni að,“ sagði Atli.
Ellefu leikmenn framlengdu samninga sína
en þeir eru Baldur Sigurðsson, Björn Jónsson,
Dofri Snorrason, Grétar Sigfinnur Sigurðarson,
Gunnar Þór Gunnarsson, Hugi Jóhannesson,
Óskar Örn Hauksson, Kjartan Henry Finnboga-
son og Torfi Karl Ólafsson. Ásgeir Örn Ólafs-
son og Jordao Diogo hafa einnig framlengt
samning sinn en þeir eru á láni hjá erlendum
félögum. - óój
Atli Sigurjónsson var einn af fjórtán leikmönnum sem skrifuðu undir hjá Íslandsmeisturum KR í gær:
Það er ekki ætlunin að sitja á bekknum
VELKOMINN Í KR Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, með
Atla Sigurjónssyni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI