Morgunblaðið - 06.09.2010, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 06.09.2010, Qupperneq 18
18 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2010 ✝ Oddur Benedikts-son prófessor fæddist í Reykjavík 5. júní 1937. Hann lést á líknardeild Landspít- alans 17. ágúst 2010. Foreldrar hans voru Stefán Már Benediktsson versl- unarmaður, f. 1906, d. 1945, og Sigríður Oddsdóttir læknarit- ari, f. 1907, d. 1988. Systkini hans eru Einar, f. 1931, Svala, f. 1934, Þóra, f. 1935, og Ragnheiður, f. 1939. Oddur kvæntist Hildi Há- konardóttur, f. 1938, árið 1955. Börn þeirra eru Kolbrún Þóra, f. 1956, og Hákon Már, f. 1958. Þau skildu. Oddur kvæntist Hólmfríði R. Árnadóttur, f. 1939, árið 1970. Börn hennar af fyrra hjónabandi eru Árni Geir Pálsson, f. 1963, og Kári Pálsson f. 1964. Saman eign- uðust Oddur og Hólmfríður Guð- rúnu, f. 1971, og Katrínu, f. 1977. Samtals eru barnabörn Odds og Hólmfríðar 13 auk eins barna- barnabarns. Oddur lauk stúdentsprófi frá MR árið 1956 og hélt til frekara náms við Rensselaer Polytechnic Insti- tute í New York. Hann lauk því fagi. Hann var skorarformaður í tölvunarfræði í mörg ár og áður formaður stærðfræðiskorar og auk þess varaforseti raunvísindadeild- ar HÍ frá 1995-97. Einnig gegndi Oddur nefndarstörfum fyrir Reiknistofnun HÍ í um tvo áratugi. Árið 2000 var Oddur formaður nefndar sem skipulagði námskrá í hugbúnaðarverkfræði. Rannsóknir Odds beindust m.a. að upplýs- ingakerfum og gæðastjórnun í hugbúnaðargerð. Oddur var frum- kvöðull á sínu sviði og hlaut fjöl- margar viðurkenningar fyrir störf sín. Hann hlaut verðlaun Ásu Wright árið 1996 og var sama ár valinn tölvumaður ársins hjá PC World Ísland. Árið 1990 var Oddur gerður heiðursfélagi Skýrslu- tæknifélags Íslands vegna braut- ryðjandastarfa fyrir félagið og upplýsingatækni. Félag tölv- unarfræðinga gerði Odd að fyrsta heiðursfélaga sínum árið 1997. Oddur hlaut IBM Fellowship 1960- 61 og Rickett’s Price við útskrift 1960. Auk þess fékk hann alþjóð- legan námsstyrk vegna frammi- stöðu í námi við RPI. Oddur var hugsjónamaður og lét víða til sín taka t.d. á sviði umhverfisverndar, persónuverndar og friðarmála. Oddur var mannvinur og mikill fjölskyldumaður. Hann var stofn- andi og formaður Krabbameins- félagsins Framfarar. Útför Odds fer fram frá Nes- kirkju, 6. september 2010, kl. 13. B.M.E.-gráðu í véla- verkfræði og stærð- fræði árið 1960, M.S. í stærðfræði 1961 og loks Ph.D. í hagnýtri stærðfræði 1965. Oddur starfaði við tæknideild Bell Te- lephone Laboratories í BNA frá 1961-62 en hélt þá heim og vann sem sérfræðingur við Reiknistofnun Há- skóla Íslands frá 1964-69. Hann var OECD-styrkþegi 1968-69. Oddur starfaði hjá IBM á Íslandi og sat í stjórn félagsins frá 1969-72. Hann var yfirmaður tæknideildar Skýrr frá 1972-73 og jafnframt stundakennari við HÍ. Árið 1973 hóf Oddur störf sem dósent við stærðfræðiskor HÍ, og kenndi við tölvunarfræðiskor þeg- ar hún var stofnuð, sem prófessor frá 1982-2007. Oddur var heið- ursgestaprófessor hjá Middlesex University og gestaprófessor hjá Glasgow Caledonian University. Hann gegndi starfi gæðastjóra EJS árið 1997. Oddur var einn af aðalskipu- leggjendum náms í tölvunar- fræðum og var m.a. formaður nefndar sem skrifaði námskrána í Elsku pabbi minn, nú er sá tími liðinn þegar við sátum með þér fyr- ir framan tölvuna þar sem þú ræddir við okkur um nýjustu tækniframfarir í tölvuheiminum eins og leitarforritið Google forð- um, en hún vísar í dag beint á heimasíðuna þína á vefnum. Heimasíðuna sem lýsir þér betur en nokkuð annað. Á henni má finna blaðagreinar sem þú skrifaðir í þeim tilgangi að veita samfélaginu aðhald í umhverfismálum og öðru sem var þér hugleikið. Þér var umhugað um að tæknin nýttist okkur, afkomendum þínum og nemendum, til góðs en reyndir jafnframt að benda á þá ókosti sem af henni kynnu að leiða. Tækni sem hefur gjörbylt aðstöðu okkar og margfaldað hraðann í upplýsinga- öflun og vinnslu gagna og gert okk- ur kleift að fylgjast með utanvega- akstri af gervihnattaloftmyndum – svo eitthvað sé nefnt. Þú vaktir at- hygli á því hve slæmar afleiðingar stóriðja myndi hafa á loftgæði og varaðir við að hún myndi auka á þá loftmengun sem við búum við á höfuðborgarsvæðinu. Þú varst góð fyrirmynd í baráttunni fyrir því að tæknin yrði ekki til að rýra lífsgæði eins og heilsu okkar. Með starfs- framlagi þínu vildir þú kenna okk- ur að nýta tölvutæknina, þannig að við kæmum meiru í verk en hefðum jafnframt meiri tíma aflögu fyrir fjölskyldu og tómstundir. Þú vildir standa vörð um frelsi einstaklingsins og neitaðir að gefa upp kennitöluna þína þegar þú leigðir vídeóspólur þegar það kerfi var tekið upp. Á síðari árum gerð- ist þú aðgerðarsinni og það var fjör að fylgjast með þér í baráttunni fyrir betri málstað og óskandi að fleiri nýttu menntun sína til að hafa áhrif á samfélagið og hefðu stærri sýn í stað þess að sinna afmörk- uðum viðfangsefnum. Þú vaktir at- hygli með greinaskrifum og varst með í stofnun fjölda félaga. Þú vissir, eins og afi þinn, að kraft- arnir nýtast betur ef margir taka höndum saman og hann orðaði þetta svona: „Maðurinn einn er ei nema hálfur, með öðrum er hann meira en hann sjálfur.“ Nærvera þín var okkur mikils virði og þín verður því sárt saknað. Kolbrún Þóra Oddsdóttir. Hann nafni var frábær, hann var alltaf góður við okkur og vissi alltaf hvenær mann langaði að vera í friði eða spjalla. Og hann var alltaf til í göngutúr, hann var einlega aldrei í vondu skapi. Þegar maður hitti hann heilsaði hann manni mjög vel. Hann var kallaður afi-ís, því hann gaf okkur alltaf ís og fannst gaman að horfa á Mr. Bean. Núna verður hann með afa Mar- íasi í himnaríki þar sem þeir geta skemmt sér hvern einasta dag. Oddur Mar Árnason. Afi minn var að mörgu leyti merkilegur og góður maður. Hann trúði á að berjast fyrir réttlæti, verja minnimáttar og virða fjölskyldu sína. Ég get ekki ímyndað mér betri fyrirmynd og vildu að allir mættu vera svo heppnir að þekkja ein- hvern eins og hann á lífsleiðinni. Afi var líka sérstakur og spenn- andi maður, hann var náttúrubarn sem söng til fuglanna, sérstaklega tilraunagjarn og óhræddur kokkur, hann hafði gaman af því að segja sögur en kunni líka svo vel að hlusta og var besti vinur sem hugs- ast getur. Það er sárt að missa svona góðan vin, en líka mikil mildi að hafa átt hann að, ég er honum ævinlega þakklát fyrir alla fallegu hlutina sem hann kenndi mér og vona að ég megi einhvern tíma vera ein- hverjum jafn góð og hann hefur verið mér. Sunna Ben Guðrúnardóttir. „Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið. Og sá sem í hásæt- inu sat, sagði: „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja.““ Opinb. Jóh. 21. Kæri bróðir! Það er skrítið að þú sért farinn. Það sem þú vissir best er svo mikils virði í dag og þrá þín eftir réttlæti og hve þú sást í einu vetfangi hvað gera ætti og þú sagð- ir það rólega í fáum orðum. Við áttum margar kærar leik- stundir saman systkinin uppi í Ár- dal í Andakílsárhreppi. Við hlupum í grasinu og mýbitið gerði aðsúg að okkur og þú sagðir fastmæltur: „Ætlið þið að hafa mig til matar í dag?“ Við veiddum randaflugu í glas og fylgdust með flugunni í glasinu og hleyptum henni út. Svo veiddum við brunnklukkur og sáum þær synda og settum þær aftur út í pollinn. Þú gerðir tilraunir með stækkunargleri til að sólargeisli brenndi gat á pappír. Mest gaman var í skipaleik á kyrrum læk við Árdalsá. Þar voru spýtur og kubb- ar sem við þóttumst sigla niður Ár- dalsá, út til Borgarness og til Akra- ness. Mamma vakti þig snemma til að sækja kýrnar og þú spurðir: „Af hverju sækja stelpurnar ekki kýrn- ar?“ Við gáðum hvort silungar væru netunum. Þú fannst Molda vagnklár úti í haga í mógryfju fullri af vatni og hljópst heim og Jón, kaupamaðurinn og þú komuð Molda upp úr gryfjunni. Við Hildur erum góðar vinkonur. Ég og Örn vorum að koma heim með Gullfossi frá Austurríki og þú og Hildur vor- uð niðri á höfn og Hildur hoppaði af kátínu þegar hún sá mig. Við bjuggum á Marargötu 3 og Hildur sá mig bródera hvíta flatsaumsstafi í sængurver og var svo hrifin af því að ég hafði teiknað þá á. Oddur tók fimmta og sjötta bekk í stærðfræðideild MR um vorið. Ég sá kennslubók í frönsku og mig langaði að læra frönsku og þá sagði Oddur: „Gerðu þetta líka.“ Ég fór til Jóns Gíslasonar, skólastjórans í Versló, og fékk leyfi til að taka fimmta og sjötta bekk í Versló næsta vor. Við giftumst öll ung, eignuðumst börn, flestir voru að læra eða vinna og við gleymdum aldrei kærum vin- um. Þú varst traustur stuðningur þegar ég vann úti og ég var líka að læra og skrifa bók. Okkur fannst öllum að við gætum gert það sama og þú. Því það fylgdi þér jákvæður og sterkur kraftur sem gaf öðrum löngun til að halda áfram. Hólm- fríður og ég erum góðar vinkonur og hún er frábær og gestrisin hús- móðir. Gaman var í heimboðunum hjá Oddi og Díu í Faxaskjóli 10 á jóladag og á gamlárskvöld og mat- urinn og kökurnar framúrskarandi. Ég gleymi ekki jóladeginum heima hjá Oddi og Díu á Tómasarhaga 37. Þá sátum við Día í eldhúsinu með dýrlegan jólakonfektkassa á milli okkar og töluðum saman og að- allega ég kláraði konfektkassann góða. Og þvílíkt draumahús sem þið fóruð í á Lambhaga 12 á Álfta- nesi! Þar nutu Oddur og Día lífsins saman eins og alltaf sín fjörutíu ára hjónabandsár. Elsku bróðir, hafðu það gott hjá mömmu okkar á himnum. Jesús blessi minninguna um þig og verndi alla glöðu og duglegu af- komendur ykkar, ættinga og vini, þín systir Þóra. Látinn er félagi okkar og skóla- bróðir úr Landakotsskóla Oddur Benediksson prófessor. Það var nánast fyrir tilviljun að við nokkrir bekkjarfélagar í 12 ára bekk 1949-1950 fórum að hittast mánaðarlega til að rifja upp gamla tíma, ræða heimsmálin og margt fleira fróðlegt og skemmtilegt. Það lífgaði mjög upp á umræðurnar að við í hópnum höfðum fengist við ólík mál á lífsleiðinni. En Oddur var ótrúlega vel að sér um flest sem rætt var. Okkur fannst jafnan tími okkar of dýr- mætur til að ræða pólitík í smáat- riðum, þótti hún ekki þess virði. Fráfall Odds kom okkur skólafélög- unum á óvart, en því er ekki að neita að aldurinn segir til sín og verður ekki að gert. Við vissum að hann gekk ekki heill til skógar en hann bar veikindi sín af æðruleysi og ræddi þau ógjarnan. Söknuður okkar er mikill. Oddur hafði nú nýverið sent okkur hóp- mynd af nemendum í Landakots- skóla og lagt miklu vinnu í að skýra hana og gera tölvutæka. Of seint er nú að þakka að fullu þetta framlag hans en við munum geyma þakk- lætið í minningunni. Við minnumst Odds sem góðs vinar og félaga, sem aldrei skipti skapi. Hann talaði aldrei um sína hagi sem afburða fræðimaður og frumkvöðull á sviði tölvuvísinda. Frama hans á þessu sviði verður áreiðanlega getið ann- ars staðar. Hólmfríði eiginkonu Odds, börn- um þeirra og aðstandendum öllum sendum við innilegar samúðar- kveðjur vegna fráfalls hans. Skóla- félagar úr Landakotsskóla, Finnur Jónsson, Grétar H. Ósk- arsson, Gunnlaugur H. Gíslason, Logi Guðbrandsson, Valdimar J. Magnússon, Valgeir Gestsson. Prófessor Oddur Benediktsson er látinn. Hann fór ungur til náms til Bandaríkjanna og lagði stund á stærðfræði og tölvunarfræði, en tölvukennsla varð síðan hans að- alstarf við Háskóla Íslands. Tölvur voru upphaflega fyrir- ferðarmiklar, fylltu heilu herbergin og nærðust á gataspjöldum. Með aukinni tækni hafa þær minnkað og eru nú örsmáar. Með þessu ferli fylgdist Oddur og leiðbeindi öðrum. Hann var vinsæll kennari og far- sæll. Hann jók þekkingu sína víða um lönd og var ýmist gestaprófess- or eða nemandi, m.a. í Los Angel- es, London, Dublin og víðar. Áhugamál Odds voru samt fleiri og hrifu hann hvert af öðru. Á námsárunum fékk hann áhuga á bandarískum þjóðlagasöng. Fá- tækur námsmaður hafði ekki efni á að kaupa dýr hljómflutningstæki, varð því að setja þau saman sjálfur. Ekki vafðist það fyrir Oddi. Næsta áhugamál var köfun í blautbúningi, sem hann stundaði meðal annars við Gróttu og uppi í Borgarfirði. Brátt bættist siglinga- áráttan við og nú þurfti að smíða seglbát sem reyndist hin ágætasta fleyta. Síðar á lífsleiðinni fór Oddur í framhaldsnám í siglingum til Tyrklands. Með skemmtilegum félögum var ferðast á sumrin innanlands og meðal annars leitað að verustöðum Eyvindar og Höllu, sem þurftu oft að breyta um aðsetur. Sama átti við um Odd, hann skipti oft um bústað. Á hverjum nýjum stað þurfti að mála og jafn- vel leggja parket. Brátt var kominn fram sérfræðingur í þeim efnum. Börnum sínum sinnti Oddur vel. Hann las með þeim og ræddi forn- sögur, þjóðsögur og annað, eins og t.d. Ronju ræningjadóttur, Góða dátann og loks Ísfólkið. Allt hafði þetta góð áhrif á samstöðu, mál- notkun og orðaforða barnanna sem nutu þess. Hann hafði gaman af að halda veislur og að elda góðan mat. Kín- versk matargerð var í hávegum höfð, enda talin heilsuvænni en sú vestræna. Um tíma tókst Oddi að tefja fyrir sjúkdómi sínum með austurlensku mataræði, en varð loks að láta í minni pokann eftir hetjulega bar- áttu. Vinir Odds þakka honum sam- fylgdina og vita að hann mun lifa í minningunni. Haukur F. Filippusson. Kynni okkar Odds Benediktsson hófust í Árdal í Andakílshreppi rétt eftir stríðið. Oddur dvaldi þá ásamt systkinum sínum og móður þeirra í sumarbústað fjölskyldunnar ofan við túnið. Faðir Odds, Már í Brynju, hafði byggt við gamla bæ- inn vegleg salarkynni. Mér fannst stafa ævintýraljóma af öllu þessu fólki. Már hafði átt kappreiðahest- inn Faxa, sem var svo allra hesta mestur að hann var heygður í Fax- ahaug. Þar hvíla nú með honum góði hundurinn Kátur og kostakýr- in Flóra. Allt nákomnir félagar okkar Odds í Árdal bernskunnar. Oddur mætti hvern morgun í vinnugalla niðurfrá og gekk til verka með okkur. Síðasta árið mitt unnum við Oddur með honum Reinhold, þýskum manni úr hópi verkafólks sem hingað kom 1949. Við töluðum saman á ensku því Oddur hafði verið í Landakotsskóla og ég hjá ömmu Sigríði. Svo vildi til að við Reinhold hittumst í Sund- laugunum líklega sama dag og Oddur lést og hann spurði mikið um hann. Reinhold sagði mér þarna mér til undrunar, að við hefðum verið góðir við sig og hann hefði lært mikið af okkur. Val- mennið Reinhold, með allt Rúss- landsstríðið að baki sér, skipti aldr- ei skapi við okkur pjakkana hversu ósvífnir við auðvitað vorum. Benediktsson-fólkið varð kunn- ingjar mínir og vinir. Sigríður móð- ir þeirra var mér undurgóð, Dúlla var með okkur í bústörfunum og Þóra. Einar kom frá Ameríku með kábojhatt. Það þótti mér toppurinn á elegansanum. Mest kynni hafði ég þó síðar af Svölu, elstu syst- urinni. Hún var gift ljúflingnum Fred Daly, herforingja í Stuttgart þar sem þau bjuggu um skeið. Heimili þeirra stóð mér og félögum opið og fórum við oft að finna þau. Þau kynni öll eru mér hjartfólgin. Þegar ég nú hugsa til baka, þá undrast ég eitt. Ég get ekki munað að okkur Oddi hafi nokkru sinni orðið sundurorða öll þessi ár. Varð ég þó snemma fljótfær, grunnhygg- inn og geðvondur fýlupoki. En líka talhlýðinn og áhrifagjarn. Það hljóta því að hafa verið vitsmunir Odds, sem gerðu það að verkum að félagsskapur okkar varð svona ágætur. Hann var líka mun lífs- reyndari en ég, hafði misst föður sinn, gengið í Landakotsskóla, ver- ið í Vatnaskógi, unnið sem sendill hjá Árna & Bjarna og haft peninga í kaup. Hann svo einstaklega ljúfur í allri framgöngu að mér datt ein- hvern veginn aldrei í hug að bekkj- ast við hann og við vorum mjög samrýndir þessi sumur í Borgar- firðinum hjá Jóni bónda og Hall- dóru. Við hittumst næst í Menntaskól- anum í Reykjavík. Sama ljúfa fasið einkenndi hann. En nú var meiri alvara yfir honum, hann hafði áhuga á stærðfræði og raungrein- um sem ég var slakur í. Svo var hann farinn að vera með stelpu, hann kláraði skólann á undan mér og var horfinn til Ameríku að læra hávísindi. Eftir það las ég meira um hann en hitti í hálfa öld. Ég frétti að hann hefði fengið krabba- mein og hann vakti þjóðarathygli fyrir samhjálp og baráttu við sjúk- dóminn. En enginn má sköpum renna. Ég flyt fjölskyldunni hjartans þakkir mínar fyrir trygga vináttu og kynni um leið og ég votta henni samúð mína. Það er heiðríkja yfir minningu minni um Odd Benediktsson. Halldór Jónsson, verkfræð- ingur. Hver var Oddur Benediktsson? Það yrði löng upptalning ætti allt að koma til skila. Hann var son- arsonur eins mesta skálds okkar, en það var ekki fyrir hans eigið ágæti! En hitt var hann af eigin rammleik: Frumkvöðull í tölvumál- um Íslendinga, sá er kom tölvunar- fræðikennslu á fót við Háskóla Ís- lands, baráttumaður á mörgum sviðum en einkum bar hann um- hverfismál fyrir brjósti, maður sem stjórnaðist af ríkri réttlætiskennd, öflugur liðsmaður í baráttu gegn krabbameinum bæði með tilraun- um á sjálfum sér en líka sem hvatamaður að rannsóknum. Mér yfirsést örugglega margt í þessari upptalningu. Fyrir allt þetta eigum við öll, öll þjóðin, Oddi Benedikts- Oddur Benediktsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.