Morgunblaðið - 06.09.2010, Page 31

Morgunblaðið - 06.09.2010, Page 31
Menning 31FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2010 Íslenskir ostar – hreinasta afbragð H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 0 -1 3 0 1 Á fimmtudaginn heldur Hörður Torfason 34. árlegu tónleika sína í stóra sal Borgarleikhússins. Að þessu sinni verður hann með fjóra tónlist- armenn sér til aðstoðar: Kristjönu Stefánsdóttur, söngkonu, Matthías Stefánsson á gítar, fiðlu og mandólín, Hjört Howser á hljómborð og Ró- bert Þórhallsson á bassa. Í ár eru 40 ár liðin síðan Hörður hljóðritaði sína fyrstu plötu, Hörður Torfason syngur eigin lög, sem SG hljómplötur gáfu út. Platan verður flutt í heilu lagi fyrrihluta tónleikanna. Eftir hlé verða svo fluttir nýir og eldri söngvar sem flestir eiga það sameiginlegt að njóta sín best í flutningi hljómsveitar. Að sögn Harðar verður því ekki um að ræða hefðbundna trúbadorstón- leika heldur söngvaskáldstónleika. Fyrsta platan mun líka koma út enn eina ferðina á geisladisk og verður til sölu á tónleikunum auk annarra platna með lögum Harðar. Miðasal er hafin á Midi.is og í Borgarleikhúsinu. Hörður Torfa með árlega tónleika Hörður Árlegir tónleikar verða haldnir í Borgarleikhúsinu á fimmtudag. Bandaríski lagahöfundurinn Kara DioGuardi hefur sagt sig úr dóm- nefnd bandarísku sjónvarpsþátt- anna American Idol. DioGuardi hefur m.a. samið lög fyrir áströlsku poppstjörnuna Kylie Minogue. DioGuardi segir það hafa verið stórkostlegt að fá að sitja í dóm- nefndinni en sá sem heiðurinn á af þáttunum, Simon Cowell, sagði sig úr dómnefnd í maí sl. þar sem hann ætlaði að helga sig bresku hæfi- leikaþáttunum X Factor. Þá hætti bandaríska gamanleikkonan Ellen DeGeneres í dómnefnd American Idol í júlí sl. Plötuútgefandinn Randy Jackson er því einn eftir af hinni upprunalegu dómnefnd þátt- arins. Reuters Bless Kara DioGuardi. DioGuardi hætt í American Idol Bandaríski leikarinn Taylor Laut- ner fékk nýverið 40.000 dollara í skaðabætur frá hjólhýsaleigu, McMahon’s RV, sem stóð ekki við það samkomulag sitt við leikarann að koma með hjólhýsi á tökustað kvikmyndarinnar Abduction, þann 21. júní sl. Upphæðin nemur tæpum 4,5 milljónum íslenskra króna. Lautner er 18 ára og þekktastur fyrir leik sinn í Twilight-kvikmynd- unum. Hann mun ætla að gefa féð til góðgerðarsamtakanna The Lolli- pop Theater Network sem helgar sig kvikmyndasýningum fyrir lang- veik börn. Lautner kærði samningsbrot hjólhýsaleigunnar 23. ágúst sl. og bauð eigandi leigunnar honum að gera málið upp með armbeygju- keppni. Á endanum var fallist á skaðabætur. Reuters Harður Leikarinn Taylor Lautner. 40.000 dollarar vegna hjólhýsis Leikarinn og leikstjórinn Eli Roth segir gagn- rýnendur hryll- ingsmynda sinna ekki skilja mynd- irnar. Kvikmynd Roth, Hostel frá árinu 2005, fékk æði misjafnar viðtökur gagn- rýnenda og var m.a. sögð „pynt- ingaklám“. Roth segir hina nei- kvæðu gagnrýnendur ekki hafa áhuga á hryllingsmyndum. Stimpl- ar á borð við „pyntingaklám“ segi meira um gagnrýnendur en kvik- myndina sjálfa. Þá skorti algjör- lega skilning og áhuga á slíkum kvikmyndum. Þess má geta að Íslendingurinn Eyþór Guðjónsson lék í Hostel og að hún fékk að meðaltali 55 stig af 100 mögulegum á vefsíðunni Me- tacritic,. Roth úthúðar gagnrýnendum Eli Roth

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.