Morgunblaðið - 11.09.2010, Síða 21
Antalya
í Tyrklandi
Verð kr. 169.800
- Porto Bello *****
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli, allt innifalið. Sértilboð 26.
október í 9 nætur.
Sértilboð til
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillur.
Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 139.700
- Porto Bello *****
Netverð á mann, m.v. tvo fullorðna og 2 börn í fjölskylduherbergi, allt
innifalið. Sértilboð 26. október í 9 nætur.
Morgunflugmeð Icelandair
frá kr. 139.700
Heimsferðir bjóða frábæra haustferð til
Antalya í Tyrklandi þann 26. október í 9
nætur. Antalya er einn allra vinsælasti
ferðamannastaður Tyrklands og þar er
veðurlag mjög þægilegt í október og
nóvember. Glæsileg hótel og fjölbreytt
mannlíf og fyrsta flokks aðstæður í
hvívetna fyrir ferðamenn. Fjölbreytt
gisting í boði á ótrúlegum kjörum.
Ath. takmarkaður fjöldi herbergja í
boði - verð getur hækkað án fyrirvara
Fréttir 21ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2010
SVIÐSLJÓS
Sunna Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
Samtök kvenna í Mið-Austurlöndum
og Suðvestur-Asíu telja Sameinuðu
þjóðirnar vanmeta umfang sæmdar-
morða verulega en þau segja morðin
um 5.000 á ári. Líklegra sé að þau séu
yfir 20 þúsund. Konur eru afhöfðaðar,
brenndar, grýttar og stungnar til
bana, þeim er gefið raflost, þær eru
kyrktar og grafnar lifandi. Allt til að
viðhalda „sæmd“ fjölskyldunnar.
Flest eru fórnarlömbin ung, drepin
samkvæmt aldagömlum hefðum sem
nú hafa breiðst út víða um heim.
Breska dagblaðið The Independ-
ent, með blaðamanninn Robert Fisk
fremstan í flokki, hefur alla vikuna
fjallað um þessa földu glæpaöldu. Að
baki greinaflokknum liggur tíu mán-
aða rannsóknarvinna í Jórdaníu, Pak-
istan, Egyptalandi, á Gasa og Vest-
urbakkanum.
Grýtt til dauða eftir nauðgun
Sæmdarmorðin segir blaðamaður-
inn eina stærstu skömm mannkyns,
þau séu ekki bundin við samfélög
múslíma heldur stunda kristnir og
hindúar einnig slík voðaverk. Og
„glæpir“ þeir sem konurnar eru
myrtar fyrir eru misjafnir.
Maður í Jórdaníu nauðgaði dóttur
sinni og er hún varð ólétt drap hann
hana til að bjarga heiðri fjölskyldunn-
ar. Þá grófu afi og faðir sextán ára
tyrkneska stúlku lifandi fyrir að hafa
„vingast“ við stráka. Lík hennar
fannst 40 dögum síðar.
Þrettán ára sómölsk stúlka var árið
2008 grafin upp að hálsi og grýtt af 50
körlum fyrir „hórdóm“. Þrír menn
höfðu nauðgað stúlkunni. Þúsundir
fylgust með. Stúlkan var að nokkrum
mínútum liðnum grafin upp, en þá
kom í ljós að hún var enn með lífs-
marki. Hún var þá grafin aftur og
grýtt til dauða.
Fisk segir að þrátt fyrir að sæmd-
armorð varði refsingu verði þögult
samþykki samfélaganna þar sem þau
líðast til þess að morðingjarnir kom-
ast upp með þau.
Sæmdarmorð
eru stærsta
skömmin
Talið að árlega séu í það minnsta
20 þúsund konur myrtar í nafni „sæmdar“
Reuters
Mótmæli Berlínarbúar mótmæltu í
gær því að írönsk kona hafi verið
dæmd til að vera grýtt til dauða.
Sæmdin og sifjaspell
» Yfirvöld í Egyptalandi segja
engin sæmdarmorð framin þar
í landi. Hins vegar komi það
fyrir að ungar stúlkur fremji
sjálfsmorð, segir m.a. í grein
Roberts Fisk í Indepentent.
» Skýrslur Azza Suleiman-
miðstöðvarinnar og fleiri
óháðra hjálparsamtaka segja
aðra sögu.
» Suleiman hefur reynt að
opna neyðarskýli fyrir konur en
stjórnvöld hafa bannað það.
» Hún segir sæmdarmorð í
landinu mörg hver tengjast
sifjaspellum.
Reuters
Hermenn Yfirvöld bandaríska hersins
þurfa að bregðast við dómnum.
Sú stefna bandaríska hersins, sem
kölluð hefur verið „ekki spyrja –
ekki segja frá“ er ólögleg sam-
kvæmt niðurstöðu dómara við al-
ríkisdómstól í Kaliforníu. Stefnan
var sett í lög árið 1993 sem mála-
miðlun til að heimila samkyn-
hneigðum að ganga herinn. Sam-
kvæmt henni mega yfirvöld ekki
spyrja um kynhneigð en að sama
skapi mega hermenn ekki opinbera
samkynhneigð sína. Þetta þótti
sækjendum málsins m.a. ekki
standast tjáningarfrelsið, réttindi
sem eru bundin í stjórnarskrá.
„Ekki spyrja – ekki
segja frá“ ólögleg
BANDARÍKIN
Írönsk stjórnvöld ætla í dag að sleppa bandarísku
fjallgöngukonunni Söruh Shourd sem var hand-
tekin í landinu í júlí sl. ásamt tveimur félögum
sínum. Voru þremenningarnir sakaðir um njósnir
fyrir bandarísk yfirvöld og að hafa komist ólög-
lega til landsins. Engin ástæða hefur verið gefin
fyrir því að Shourd verði sleppt frekar en þeim
Shane Bauer og Josh Fattal.
Fjölskyldur göngufólksins hafa sagt að þau
hafi verið á göngu í Kúrdahéröðum í norðurhluta
Íraks og óvart farið yfir landamærin til Írans.
Einum fjallgöngumanni verður sleppt
ÍRAN
Sarah Shourd
Líkt og laufin falla af trjánum á hverju hausti er það fastur liður að sjá bændur Bæjaralands í Þýskalandi fylgja
kúahjörðum sínum ofan úr Ölpunum og niður á grösuga haga láglendisins til vetrarbeitar. Bændurnir klæðast
sumir hverjir af þessu tilefni að hefðbundnum Bæjarasið, karlarnir stuttbuxum með skrautlegum axlarböndum og
viðeigandi höfuðfati og konurnar síðum pilsum. sunna@mbl.is
Reuters
Bæjarar reka kýrnar til byggða
Mótmæla hótunum um bókabrennu
Hótanir litla, kristna safnaðarins í
Flórída, um að brenna Kóraninn í
dag, 11. september, níu árum eftir
hryðjuverkaárásirnar á tvíburaturn-
anna, hafa haft áhrif víða um heim.
Mótmælendur komu meðal annars
saman við bækistöðvar NATO í Ja-
lalabad í Afganistan sem endaði með
því að lögreglan greip til vopna. Að
minnsta kosti einn maður féll. Mót-
mæli fóru fram víðar í Afganistan í
gær en samkvæmt fréttum BBC
voru mótmælendur á bilinu 150-
1.500 talsins á hverjum stað. Ein-
hverjir brenndu bandaríska fánann
af þessu tilefni. Forseti landsins,
Hamid Karzai, segir hótanir um að
brenna Kóraninn móðgun við íslam
og forseti Indónesíu sagði hót-
anirnar ógna heimsfriði. Terry Jon-
es, prestur safnaðarins, sagðist í
gærmorgun hættur við að brenna
Kóraninn en engu að síður gaus
mótmælaaldan upp í kjölfar messu
sem táknar formleg lok ramadan,
föstumánaðar múslíma.
Skotið á mótmælendur í Afganistan Brenndu bandaríska fánann
Reuters
Bókin helga Mótmælandi í Pakistan
heldur Kóraninum á lofti.