Morgunblaðið - 02.12.2010, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2. D E S E M B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 282. tölublað 98. árgangur
NAFLASKOÐUN
FYRIR AUSTAN
Í ÁTTATÍU ÁR
OFVIÐRI OG
MÁLEFNI
STYTTU
MARGRÉT MAACK
BYRJAR JÓLAMOKKIÐ
MEÐ FAÐMLAGI
VIÐSKIPTABLAÐIÐ
OG FINNUR.IS JÓLADAGATAL 34SKÓLI Á HALLORMSSTAÐ 10
Þrír íslenskir rithöfundar, þau Álfrún Gunnlaugs-
dóttir, Matthías Johannessen og Thor Vilhjálmsson,
voru á fullveldisdaginn í gær sæmdir heiðursdokt-
orsnafnbót við Háskóla Íslands. 24 ár eru síðan rithöf-
undur varð heiðursdoktor, sem er æðsti heiður sem
Háskólinn veitir. Vill skólinn með þessum gjörningi
senda skilaboð um mikilvægi listar og annarrar frjórr-
ar menningarstarfsemi í íslensku samfélagi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sköpunarstarf rithöfunda heiðrað
Lífeyrissjóðirnir eru að skoða að
afskrifa húsnæðislán til sjóðfélaga
umfram 100-110% af núvirði fast-
eigna. Horft er til greiðslugetu við-
komandi og er skilyrði afskriftanna
að eiginfé sé neikvætt.
Hrafn Magnússon, frkvstj.
Landssamtaka lífeyrissjóða, stað-
festir þetta en hann segir um 4%
sjóðfélaga vera í vanskilum. »2
Neikvætt eiginfé skilyrði
afskrifta lífeyrissjóðanna
–– Meira fyrir lesendur
fylgir
með
Morgu
nblaði
nu í da
g
ms.is
Girnilegar uppskriftir
á www.jolamjolk.is
dagar til jóla
22
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Skipti, móðurfélag Símans, eru talin
einskis virði í nauðasamningum Ex-
ista. Samkvæmt reikningum Skipta
er félagið með eiginfjárhlutfall upp á
ríflega 20 prósent, en tvær hugs-
anlegar ástæður eru fyrir þessu
svartsýnisverðmati. Önnur er
greiðsluáætlun á skuldum Skipta.
Fram kemur í ársreikningi fyrir árið
2009 að um 74 milljarðar króna falla
á gjalddaga á árunum 2012-2014.
Þegar haft er í huga að heildar-
skuldir Skipta voru í ársbyrjun um
95 milljarðar króna sést að þetta er
stór biti fyrir félag sem rekið var
með tapi í fyrra og á fyrstu sex mán-
uðum þessa árs.
Endurheimtur óraunhæfar
Hin hugsanlega ástæðan fyrir
verðmatinu er að óefnislegar eignir
Skipta voru í lok júní á þessu ári
62,8 milljarðar króna og þar af var
viðskiptavild 59,3 milljarðar. Þýðir
það að ríflega helmingur eigna
Móðurfélag Símans þarf að
greiða 74 milljarða fyrir 2014
Skipti sögð einskis virði í nauðasamningum Exista Viðskiptavild 59 milljarðar
Skipta er viðskiptavild. Áætlanir um
endurheimtur krafna á hendur Ex-
ista eru of bjartsýnislegar að mati
umsjónarmanns með nauðasamn-
ingum félagsins. Í athugun umsjón-
armannsins kemur fram að hann
telji áætlaðar endurheimtur upp á
7-53 prósent krafna of háar. Er það
meðal annars vegna óvissu um end-
anlega fjárhæð krafna, en einnig
vegna óvissu um virði eigna félags-
ins.
Kröfurnar
» Lýstar kröfur á hendur Ex-
ista nema alls 326 milljörðum
króna og koma frá 168 mis-
munandi aðilum. Lífeyrissjóðir
eru meðal kröfuhafa Exista.
» Exista hefur vefengt kröfur
að fjárhæð 192 milljarðar
króna.
MEndurheimtur Exista »Viðskipti
Lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu
framkvæmdi í
gær húsleit á níu
stöðum, sjö á Ak-
ureyri og ná-
grenni og tveim-
ur á höfuðborgar-
svæðinu, í þágu
rannsóknar á
stórfelldu ólög-
legu niðurhali, að því er segir í til-
kynningu frá lögreglu.
Tíu einstaklingar á aldrinum 15-
20 ára eru grunaðir um aðild að mál-
inu. Þeim var öllum sleppt að lokinni
skýrslutöku hjá lögreglu í gær-
kvöldi. Lagt hefur verið hald á tölu-
vert magn af tölvum og tölvubúnaði
auk þess sem marijúana, um 80
grömm, fannst í einu húsanna.
Upphaf málsins má rekja til kæru
sem Samtök myndrétthafa lögðu
fram og sneri að ólöglegu niðurhali
efnis af netinu og dreifingu þess.
Lögreglumenn frá embætti rík-
islögreglustjóra og lögreglunni á
Akureyri tóku þátt í aðgerðunum.
Rassía út
af ólöglegu
niðurhali
Yfirheyrðu tíu manns
á aldrinum 15-20 ára