Morgunblaðið - 02.12.2010, Blaðsíða 2
Signý Jóhannesdóttir, varafor-
seti Alþýðusambands Íslands,
fundaði með ráðherrunum fyrir
hádegi, en forseti ASÍ, Gylfi
Arnbjörnsson, var þá í Brussel.
„Þær hugmyndir sem uppi eru
eru þannig að ef lífeyrissjóðirnir
geta komist í gegnum það án
þess að standa frammi fyrir því
að skerða réttindi sjóðfélaga þá
ættu þær að vera í lagi.“
Skerði ekki
réttindin
SETJA SKILYRÐI
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Áramóta-
Nánari upplýsingar
á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
159.700 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, frítt fyrir golfsettið í flug, akstur, íslensk fararstjórn,
ótakmarkað golf og gisting á Hotel Bonalba í 7 nætur með hálfu fæði.
29. des. – 5. jan.
Verð á mann, frá:
Fararstjóri: Björn Eysteinsson
golf á Spáni
Í gær var skýrt frá því hverjir eru tilnefndir til
íslensku bókmenntaverðlaunanna í ár.
Í flokki fagurbókmennta eru þessir höfundar
tilnefndir, titill er innan sviga: Bergsveinn Birg-
isson (Svar við bréfi Helgu), Gerður Kristný
(Blóðhófnir), Sigurður Guðmundsson (Dýrin í
Saigon), Þórunn Valdimarsdóttir (Mörg eru
ljónsins eyru) og Bragi Ólafsson (Handritið að
kvikmynd ...). Í flokki fræðirita voru tilnefnd
Einar Falur Ingólfsson (Sögustaðir, Í fótspor
W.G. Collingwood), Helgi Hallgrímsson (Sveppa-
bókin), Sigrún Pálsdóttir (Þóra biskups), Guðni
Th. Jóhannesson (Gunnar Thoroddsen) og Mar-
grét Guðmundsdóttir (Saga hjúkrunar á Íslandi
á 20. öldinni).
Til þýðingaverðlauna eru tilnefndir fimm þýð-
endur fyrir jafn mörg verk en þeir eru: Atli
Magnússon (Silas Marner), Erlingur E. Hall-
dórsson (Guðdómlegi gleðileikurinn), Njörður P.
Njarðvík (Vetrarbraut ), Óskar Árni Óskarsson
(Kaffihús tregans) og Þórarinn Eldjárn (Lér
konungur).
Forseti Íslands afhendir verðlaunin á Bessa-
stöðum um mánaðamót janúar og febrúar.
Bið bókaunnenda er á enda
Morgunblaðið/Eggert
Hulunni svipt af tilnefningum til bókmenntaverðlauna
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Við höfum alltaf litið svo á að aðal-
atriðið í þessari stöðu væri að við
mættum ekki gefa eftir kröfur sem
væru innheimtanlegar. Það er aðal-
atriðið í stöðunni. Kröfur sem eru
tapaðar kunna að hafa í för með sér
einhverja skerðingu réttinda en við
teljum að það verði í lágmarki,“ segir
Hrafn Magnússon, frkvst. Lands-
samtaka lífeyrissjóða (LL), um af-
stöðu sjóðanna til viðræðna við full-
trúa ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í
þágu skuldsettra heimila.
Hrafn og Arnar Sigurmundsson,
form. Landssambands lífeyrissjóða
og Þorbjörn Guðmundsson, stjórn-
armaður í LL, sátu tvo fundi með
fjórum ráðherrum ríkisstjórnarinn-
ar í stjórnarráðinu í gær um lausnir
á vanda skuldugra heimila.
Hrafn segir reiknimeistara ríkis-
ins hafa reiknað út að af um 175
milljarða króna íbúðalánum til sjóð-
félaga kunni á bilinu 4-5 milljarðar
króna að vera í vanskilum. Sjóðirnir
áætli að um 4% útlána séu í vanskil-
um, þar af um 1% í meira en 90 daga.
Afskriftir tengdar greiðslugetu
Lánin eru veitt sjóðfélögum með
fasteignaveði og segir Hrafn að til
skoðunar sé að afskrifa lán umfram
100-110% af virði eignar hjá þeim
sem verst standa en hann segir láns-
hlutfall sjóðanna hafa verið að með-
altali 65% af markaðsvirði eignar.
„Ef fasteignaskuldirnar eru meiri
en 10% yfir verð-
mæti eignarinnar
er rætt um að það
sem sé umfram
það skuli afskrif-
ast. Við höfum
viljað tengja af-
skriftirnar
greiðslugetu við-
komandi aðila.
Það er hugmynd-
in,“ segir Hrafn og tekur fram að
viðkomandi þurfi að hafa neikvætt
eiginfé. Horft sé til annarra eigna.
Þá minnir hann á að sjóðirnir séu
andvígir almennri niðurfærslu.
Lítill tími sé til stefnu. Niðurstaða
verði að fást fyrir helgi.
Hannes G. Sigurðsson, aðstoð-
arfrkvstj. Samtaka atvinnulífsins,
sat fund fulltrúa atvinnurekenda
með ráðherrunum fyrir hönd frkvstj.
SA, ásamt varaforseta ASÍ.
Komist hjá málaferlum
„Viðfangsefnið er að búa þannig
um hnútana að stjórnir sjóðanna geti
verið nokkuð tryggar með að það sé
ekki verið að afskrifa kröfur sem séu
innheimtanlegar. Tryggja verður að
stjórnir sjóðanna geti tekið ákvarð-
anir um að vera með í samkomulagi
án þess að eiga yfir höfði sér mála-
ferli og bótakröfur,“ segir Hannes
og á við mögulegar kröfur frá öðrum
sjóðfélögum sem kunni að telja af-
skriftir ólöglegar.
Stefnt er að fundi ráðherranna
með fulltrúum sjóðanna og bank-
anna í dag.
Þeim verst stöddu verði hjálpað
Lífeyrissjóðir íhuga afskriftir hjá sjóðfélögum með þyngsta skuldabaggann Afskrifað yrði niður að
100-110% af verðmæti eignar 4% útlána sjóðfélaga í vanskilum Neikvætt eiginfé er skilyrði
Hrafn Magnússon
Ekið var á gangandi vegfaranda við
gatnamót Miklubrautar og Kringlu-
mýrarbrautar á áttunda tímanum í
gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu barst maðurinn sem ek-
ið var á með bílnum yfir gatnamótin.
Lögregla lokaði gatnamótunum á
meðan hlúð var að hinum slasaða og
hann fluttur á brott. Urðu af þeim
sökum töluverðar umferðartafir
enda um einkar fjölfarin gatnamót
að ræða.
Eftir því sem næst varð komist í
gærkvöldi mun maðurinn ekki hafa
verið eins mikið slasaður og óttast
var í fyrstu. runarp@mbl.is
Gangandi vegfarandi barst
með bílnum yfir gatnamót
Talið að betur hafi
farið en á horfðist
Morgunblaðið/Eggert
Slys Maðurinn barst með bílnum yfir gatnamótin. Tildrög slyssins eru óljós.
„Ef jafnvægi í
heiminum bygg-
ist á blekkingum
og lygum gæti
þurft að hrista
upp í því,“ sagði
Kristinn Hrafns-
son blaðamaður
og einn tals-
manna Wiki-
Leaks, í samtali
við Reuters-fréttastofuna í gær.
Fregnir bárust þá af því að
bandaríska vefverslunin Amazon
hefði hætt að nota netþjóna sína til
að hýsa vef WikiLeaks.
Kristinn segir „heim án leynd-
armála betri heim“ en hann lýsti
einnig yfir þeirri skoðun sinni að
leki WikiLeaks væri ekki ólöglegur.
»14
Segir WikiLeaks
ekki hafa brotið lög
með lekanum
Kristinn Hrafnsson
Bíll valt á Grindavíkurvegi gær-
kvöldi, en að sögn lögreglunnar á
Suðurnesjum var töluverð hálka á
veginum og ástæða til að vara sig.
Farþegar í bílnum meiddust óveru-
lega.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinni eru hálkublettir á
vegum víða um land.
Spáð er kólnandi veðri næstu
daga og í ljósi þess að töluvert hef-
ur rignt undanfarið má búast við að
áfram verði hætta á hálku.
Bíll valt á hálum
Grindavíkurvegi