Morgunblaðið - 02.12.2010, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
Ekkert er sjálfgefið í umferðinni og eins gott að
ökumenn hafi hugann við aksturinn ef ekki á illa
að fara. Sumir gleyma sér við að tala í símann án
handfrjáls búnaðar, aðrir eru uppteknir við
reykingar og hjá sumum á kaffibollinn eða gos-
flaskan óskipta athygli.
Þegar pollur verður allt í einu á vegi öku-
manns með þeim afleiðingum að það gusast yfir
bíl og annan getur verið hætta á ferðum. Til þess
að minnka áhættuna er því öllum fyrir bestu að
aka eftir aðstæðum hverju sinni og beina athygl-
inni að akstrinum og nánasta umhverfi.
Morgunblaðið/Kristinn
Gusugangur hættulegur í umferðinni
Ríkisstjórnin sæk-
ir heldur á sam-
kvæmt nýjum
Þjóðarpúlsi Gall-
ups og mælist nú
með 36% prósenta
fylgi í stað 30% í
síðustu könnun.
Aðeins 16% eru
ánægð með
stjórnarandstöð-
una og 60% eru
óánægð. Stjórnarandstaðan naut
meiri vinsælda í síðustu viðhorfs-
könnun, sem gerð var í mars. Þá
voru 22% ánægð með störf stjórn-
arandstöðunnar og rúmur helm-
ingur óánægður.Vinsældir sex ráð-
herra ríkisstjórnarinnar hafa
minnkað frá því í mars sl. Ríkissjón-
varpið greindi frá þessu í gær.
Ráðherrar minnka í áliti, þ. á m.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra. Tæplega 21% aðspurðra
sagðist ánægt með störf hennar en
63% óánægð.
Katrín Jakobsdóttir er vinsælust
ráðherranna en Árni Páll Árnason
óvinsælastur.
Hvorki ánægðir með
stjórnina né stjórn-
arandstöðuna
Ólga Ríkisstjórnin
siglir ólgusjó.
Áskriftarverð Morgunblaðsins
hækkaði 1. desember og kostar nú
mánaðaráskrift 3.990 kr. Helg-
aráskrift að Morgunblaðinu kostar
nú 2.500. Lausasala virka daga
helst óbreytt 350 kr. Lausasala um
helgar helst óbreytt 590 kr. Net-
áskrift kostar 2318 kr.
Breytt áskriftarverð
Morgunblaðsins
Sögulegur gripur var afhentur við
hátíðlega athöfn á Bessastöðum í
gær þegar afkomendur Ragnars
Ásgeirssonar afhentu skrifpúlt
Sveinbjarnar Egilssonar skálds og
eins helsta áhrifamanns um end-
urreisn íslenskrar tungu.
Ragnar Ásgeirsson keypti púltið
á sínum tíma af Einari Benedikts-
syni skáldi en síðustu ár hefur það
verið í eigu Ragnars Önund-
arsonar, systursonar hans. Ragnar
sá til þess að púltið yrði gert upp og
hafa forsetaembættið og Þjóð-
minjasafnið nú fallist á að varðveita
púltið og fara saman með eign-
arrétt að því. Er þar með tryggt að
skrifpúltið verði á þjóðminjaskrá.
Skrifpúlt Svein-
bjarnar afhent
Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon
Klárt Ragnar Önundarson og Ólafur Ragn-
ar Grímsson handsala málið.
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
„Ég fullyrði að þetta mun verða dýr-
ara fyrir ríkið, þó þetta sé kannski
sparnaður fyrir Sjúkratryggingar Ís-
lands, því ef börnin þurfa að leggjast
inn á spítala er það ekki ódýrari kost-
ur,“ segir Bára Sigurjónsdóttir, sem
rekur Heimahjúkrun barna.
Sjúkratryggingar hafa tilkynnt að
hætt verði að greiða fyrir þjónustuna
vegna sparnaðarkrafna. Heimahjúkr-
un barna er sjálfstætt rekin eining
þar sem vinna 12 hjúkrunarfræðing-
ar og sinna þeir um 30 til 40 börnum á
mánuði að jafnaði. Þjónustan hefur
verið til staðar í um 20 ár, foreldrum
að kostnaðarlausu.
Lífsgæði að geta verið heima
„Þetta eru öll alvarlegast veiku
börnin, þessi börn sem voru alltaf inni
á spítala hér áður fyrr ef þau þá lifðu.
Með þessu værum við að fara ein 20
ár aftur í tímann,“ segir Bára. Fleiri
einkarekin fyrirtæki í heilbrigðisgeir-
anum eru með sambærilegan samn-
ing við Sjúkratryggingar Íslands en
Bára segist ekki vita til þess að við-
skipti við þau verði skorin niður með
sama hætti. Hún segist spyrja sig
hvers vegna langveik börn séu tekin
fyrir. „Þetta snýst um lífsgæði barns-
ins og fjölskyldunnar og þau felast í
því að gera þeim kleift að vera heima.
Að ætla að
taka það af
þeim og senda
þau aftur inn á
spítala sýnir
bara að þetta
hefur ekki
verið reiknað
til enda.“
Skorið niður við langveik börn
Sjúkratryggingar Íslands hætta að greiða fyrir þjónustu
Heimahjúkrunar barna Skref tekið „20 ár aftur í tímann“
FRÉTTASKÝRING
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Desemberuppbótin er árviss
glaðningur sem flestum launþegum
berst í jólamánuðinum. Atvinnuleit-
endur sem eru tryggðir í atvinnu-
leysistryggingakerfinu fá einnig
desemberuppbót.
Samkvæmt almennum kjara-
samningum á að greiða desem-
beruppbótina fyrir 15. desember.
Hún er nokkuð breytileg eftir stétt-
arfélögum og viðsemjendum þeirra.
Samkvæmt lauslegri könnun Morg-
unblaðsins virðist algengt að upp-
bótin sé frá 44.100 kr til 72.399 kr.
Hún er t.d. 46.800 kr. í kjarasamn-
ingum á almennum vinnumarkaði.
„13. mánuðurinn“ að hverfa
Ýmist er talað um desemberupp-
bót eða persónuuppbót í samning-
unum. Desemberuppbótin er föst
tala sem innifelur orlof og tekur
ekki t.d. vísitölubreytingum. Ef
starfslok verða fyrir borgun desem-
beruppbótar skal greiða áunna des-
emberuppbót samhliða starfslokum.
Bankamenn, eða starfsmenn fjár-
málafyrirtækja, fá ekki sérstaka
desemberuppbót en fá þess í stað
„13. mánuðinn“ sem flestir láta
raunar deila niður á alla mánuði
ársins. Friðbert Traustason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka starfs-
manna fjármálafyrirtækja, segir að
í raun séu nýir starfsmenn ráðnir
upp á árslaun sem deilist á 12 mán-
uði. Um 30% starfsmanna fjármála-
fyrirtækja, eldri hópurinn, heldur
enn í gamla fyrirkomulagið og hef-
ur valið að dreifa laununum þannig
að hann fái tvöföld laun í desember.
Ríkisstjórnin samþykkti í fyrra-
dag að atvinnuleitendur, sem
tryggðir eru innan atvinnuleysis-
tryggingakerfisins, skuli fá ein-
greiðslu í desember. Full uppbót til
þeirra er 44.857 kr. og verður hún
greidd þeim sem hafa staðfest at-
vinnuleit á tímabilinu frá 20. nóv-
ember til 5. desember 2010. Þeir
sem hafa verið skráðir án vinnu í
samtals tíu mánuði á þessu ári og
eru að fullu tryggðir fá eingreiðsl-
una óskerta. Þeir sem ekki eru með
fulla atvinnuleysistryggingu fá ein-
greiðslu í samræmi við trygging-
arhlutfall sitt. Sama gildir um þá
sem hafa haft vinnu hluta úr árinu.
Eingreiðsla, miðað við óskert
tryggingarhlutfall, verður aldrei
lægri en 11.214 kr. Eingreiðslurnar
verða borgaðar út í síðasta lagi 31.
desember.
Ríkiskassinn fer heldur ekki var-
hluta af gleðinni sem fylgir desem-
beruppbótinni, hvort heldur hjá
launafólki eða atvinnuleitendum,
því uppbótin er skattlögð eins og
laun.
Desemberuppbótin vegur
ekki jafnþungt hjá öllum
Atvinnuleitendur fá nú desemberuppbót og er full uppbót 44.857 krónur
Desemberuppbót miðað við fulla vinnu
Efling SA almennur vinnumarkaður, ríki,
hjúkrunarheimili, sjálfseignarstofnanir 46.800 kr.
VR
Samtök atvinnulífsinsBHM 53.100 kr.
BHM Íslenska ríkið 44.100 kr.
BHM Reykjavíkurborg 50.000 kr.
HS Orka Starfsmf. Suðurnesja,Vestmannaeyja, Hafnarfj. 71.600 kr.
Samningsaðilar Upphæð
Efling Kópav., Seltjarnarn., Mosfellsb., Hverag. og Ölfus
BHM Launanefnd sveitarfélaga
Samfl.bstarfsm. Launanefnd sveitarfélaga
72.399 kr.
„Þetta er bara hræðilegt, því þessi
þjónusta er gjörsamlega ómiss-
andi. Ef að þetta verður raunin
þurfa foreldrar kannski að fara
upp á spítala allt að þrisv-
ar á sólarhring, eða
jafnvel leggjast þar
inn, í stað þess að geta
verið heima hjá sér,“
segir Áslaug H. Hálf-
danardóttir, tónlistar-
kennari og móðir lang-
veiks drengs. Áslaug á fjögur börn,
þar af einn son sem þjáist af óút-
skýrðum meltingarsjúkdómi, og
sér fram á verulega röskun á öllu
daglegu lífi fáist ekki lengur
heimaþjónusta fyrir drenginn. Hún
óttast einnig að boðleiðir muni
lengjast mjög geti foreldrar ekki
lengur hringt beint í hjúkr-
unarfræðing sem hafi persónulega
þekkingu á veikindum barnsins,
komi eitthvað upp.
Mikil röskun á daglegu lífi
HEIMAÞJÓNUSTA VIÐ LANGVEIK BÖRN ÓMISSANDI