Morgunblaðið - 02.12.2010, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
Vísbendingar eru um að heimabrugg
hafi færst í aukana að undanförnu,
þótt enn sem komið er liggi engar
tölur fyrir því til staðfestingar.
Þetta segir Sigurbjörn Víðir Egg-
ertsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á
höfuðborgarsvæðinu, spurður um
tilfinningu lögreglu fyrir bruggstarf-
semi. Eins og komið hefur fram var
maður á fertugsaldri handtekinn í
vesturbæ Kópavogs í gærmorgun
vegna umfangsmikillar landafram-
leiðslu, en á heimili hans fundust 850
lítrar af gambra og 400 lítrar af
landa. Hann játaði fyrir lögreglu að
hafa verið að framleiða og selja
framleiðslu sína í nokkra mánuði.
Aðspurður hvort bruggarinn sé
góðkunningi lögreglu svarar Sigur-
björn Víðir því til að viðkomandi hafi
aldrei áður komist í kast við lögin
vegna hegningarlagabrots.
Margfalt ódýrari en vodka
Hvað snerti verðmæti framleiðsl-
unnar segir Sigurbjörn Víðir erfitt
að áætla það eða hversu mikið mað-
urinn hefði getað bruggað á mánuði.
Hjá Aðalsteini Aðalsteinssyni, rann-
sóknarlögreglumanni á höfuðborg-
arsvæðinu, fengust þær upplýsingar
að landi seldist á 2.000-2.500 kr.
Má til samanburðar nefna að lítri
af Absolut vodka með 40% styrkleika
kostar 6.998 kr. í verslunum ÁTVR.
Samkvæmt því hefði verðmæti
landans, alls 400 lítrar, numið allt að
milljón króna á götunni. Má því ætla
að veltan af brugguninni hefði numið
tugum milljóna á ári. Manninum var
sleppt að loknum yfirheyrslum og er
málið talið upplýst.
Vísbendingar um aukið heimabrugg
Stórtækur bruggari hafði aldrei komist í kast við lög Brugg fyrir allt að milljón kr. á heimili hans
Morgunblaðið/Kristinn
Sviðsett mynd Ekki er vitað hvort
maðurinn hafi selt unglingum.
Með þeim stærstu
» Lögreglan segir verksmiðj-
una sem lokað var í Kópavogi
hafa verið eina þá stærstu sem
um getur hér á landi.
» Verksmiðjan var búin full-
komnum tækjum en ekki er vit-
að til þess að bruggarinn hafi
búið yfir sérþekkingu sem
gagnaðist við framleiðsluna.
Hæstiréttur hefur staðfest gæslu-
varðhaldsúrskurð Héraðsdóms
Reykjavíkur yfir Þorvarði Davíð
Ólafssyni sem játað hefur stórfellda
líkamsárás á föður sinn, Ólaf Þórð-
arson, 14. nóvember sl. Þorvarður
verður því í gæsluvarðhaldi til 27.
desember nk.
Við skýrslutöku hjá lögreglu hefur
Þorvarður viðurkennt að hafa farið
að heimili föður síns og borið þá til
hans mjög þungan hug. Hafi þeir átt
nokkur orðaskipti en í kjölfarið hafi
Þorvarður misst stjórn á sér með
þeim afleiðingum að hann hafi
sparkað í kvið föður síns og þá barið
hann í höfuðið með hnúajárni sem
hann hafi borið á sér. Eftir það hafi
hann sparkað í höfuð hans og hoppað
ítrekað á því.
Annað talið óforsvaranlegt
Að mati lögreglustjóra höfuðborg-
arsvæðisins er brotið talið þess eðlis
að nauðsynlegt sé að halda Þorvarði í
gæsluvarðhaldi þrátt fyrir játningu,
enda óforsvaranlegt að hann gangi
laus þegar sterkur grunur leiki á að
hann hafi framið svo alvarlegt brot
sem honum sé gefið að sök. Brotið
varðar 16 ára eða ævilöngu fangelsi.
Morgunblaðið/Sverrir
Hæstiréttur Ólafur Þórðarson er úr
lífshættu en líðan hans er óbreytt.
Árásin var
hrottaleg
Þorvarður Davíð
í haldi til 27. des.
Skemmtanahald
er að venju tak-
markað um jólin,
eins og lögreglan
minnti á með til-
kynningu sem
hún sendi frá sér
í gær. Þar kemur
fram að allt
skemmtanahald á
aðfangadag er bannað frá kl. 18.00.
Á jóladag er allt skemmtanahald
bannað til klukkan sex að morgni 26.
desember en þá er skemmtanahald
leyft samkvæmt skilyrðum leyfis að-
faranótt 27. desember en þó ekki
lengur en til þrjú, samkvæmt máls-
meðferðarreglum borgarráðs.
Jafnframt er minnt á að áfeng-
isveitingar eru háðar tímatakmörk-
unum sem koma fram í vínveit-
ingaleyfum viðkomandi
vínveitingastaðar.
Skemmtana-
hald taki til-
lit til jólanna
• Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu hitaveitu í heimi www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
52
52
8
12
/1
0
Opið hús hjá
Orkuveitu Reykjavíkur
laugardaginn 4. desember
Komdu í heimsókn. Í tilefni 80 ára afmælis hitaveitunnar bjóðum við hjá Orkuveitunni
alla velkomna til okkar á Bæjarhálsinn milli klukkan 13:00 og 16:00.
Skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna:
• Klukkan 13:15 verður tekin í notkun ný hitaveita frá
Hellisheiðarvirkjun, sem hingað til hefur aðeins framleitt rafmagn.
• Fræðsla um heita vatnið á staðnum.
• Skráðu þig í Orkuna mína og þú gætir dottið í lukkupottinn.
• Teiknisamkeppni fyrir börnin sem fá glaðning fyrir þátttökuna.
Fimm myndir úr teiknisamkeppni barnanna fá sérstök verðlaun.
• Jólasmákökur með kaffinu fyrir gesti og gangandi.
• Skipulagðar ferðir verða um húsið þar sem innviðir fyrirtækisins verða skoðaðir.
Hellisheiðarvirkjun verður opin á sama tíma og þar verður hægt að fræðast um allt varðandi virkjunina.
Einnig eru allir velkomnir í dælustöðina í Öskjuhlíðinni (fyrir ofan bensínstöð Skeljungs á Bústaðarvegi)
og í ventilhúsið í Öskjuhlíðinni (fyrsta beygja til hægri áður en þú kemur á bílastæðin við Perluna).
Nánari upplýsingar um opið hús er að finna á www.or.is.
Hlökkum til að sjá þig,
starfsfólk Orkuveitu Reykjavíkur