Morgunblaðið - 02.12.2010, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
Virtasti stjórnmálamaður sósíal-ista á Spáni, Felipe Gonzalez,
fyrrum forsætisráðherra, er svart-
sýnn á ástand evrunnar.
Hann sagði í gærað myntin
myndi hrekjast úr
einni ógnarstöðunni
í aðra, uns hún
spryngi í loft upp
nema Seðlabankinn
sem ber ábyrgð á
henni gripi kröftuglega inn í og það
án tafar.
Vill hann að bankinn kaupi uppskuldabréf á veikluðustu evru-
ríkin í stórum stíl.
Vandinn hefur verið sá að bank-inn hefur þegar keypt upp svo
mikið af vondum skuldabréfum að
hann er í flimtingum ekki kallaður
ECB heldur EBB. (European Bad
Bank).
Þar að auki er fyrirstaða innanbankaráðsins og standa einkum
Þjóðverjar á bremsunni.
Þeir segja að slík kaup sendi útvond skilaboð (moral hazard).
Og hafa að auki efasemdir um aðsvo víðtæk inngrip standist
Lissabon-sáttmálann.
Gonzalez varð þó að nokkru aðósk sinni því Jean-Claude
Trichet bankastjóri ECB gaf til
kynna í gær að bankinn færi í aukin
uppkaup og varð hlutabréfamark-
aður strax kátari.
En eftir situr spurningin hvort íþví felist nokkuð annað en
gamla aðferðin við að verma upp
skóinn skjálfandi manns.
Felipe Gonzalez
Skammgóður
vermir?
STAKSTEINAR
Morgunblaðið birtir fram til jóla
upplýsingar um einhverja þeirra
viðburða sem eru á dagskrá vítt
og breitt um landið.
22 dagar til jóla
Jólakortasala Lionsklúbbsins Kald-
ár í Hafnarfirði er hafin. Ingibjörg
Eldon Logadóttir listakona hannaði
kortið í ár. Allur ágóði af sölunni
rennur til líknarmála.
Kortin verða seld 7 í pakka, ým-
ist með eða án texta og kostar 1.000
krónur pakkinn.
Kortin verða seld í Verslunarm.
Firði í Hafnarfirði um næstu helgi.
Jólakort Kaldár
Sveitamarkaður
Hlöðunnar í Vog-
um á Vatnsleysu-
strönd verður
laugardaginn 4.
desember frá kl.
12-17. Á boð-
stólum er ým-
islegt matarkyns
og einnig fatn-
aður og margskonar handverk.
Markaðurinn er haldinn í hlöðu við
bæinn Minni-Voga, Egilsgötu 8.
Sveitamarkaður
Hlöðunnar í Vogum
Sölu- og markaðsstemming verður í
Tryggvagarði í Árborg fram að jól-
um. Verður hægt að skoða og
kaupa íslenskt handverk sem og að
fá sér heitt kakó og með því. Garð-
urinn verður opinn fram að jólum
alla fimmtudaga frá 18-21 og um
helgar frá 13-18. Næg bílastæði eru
í kringum garðinn.
Markaðsstemning
í Árborg til jóla
Veður víða um heim 1.12., kl. 18.00
Reykjavík 4 skýjað
Bolungarvík 3 léttskýjað
Akureyri 5 skýjað
Egilsstaðir -3 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 5 léttskýjað
Nuuk 2 skýjað
Þórshöfn 2 léttskýjað
Ósló -16 heiðskírt
Kaupmannahöfn -2 léttskýjað
Stokkhólmur -10 þoka
Helsinki -7 skýjað
Lúxemborg -7 skýjað
Brussel -6 snjókoma
Dublin 1 skýjað
Glasgow -2 léttskýjað
London 0 alskýjað
París -2 snjókoma
Amsterdam -5 léttskýjað
Hamborg -7 heiðskírt
Berlín -8 skýjað
Vín -3 snjókoma
Moskva -20 léttskýjað
Algarve 13 léttskýjað
Madríd 5 skýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 13 léttskýjað
Aþena 20 skýjað
Winnipeg -16 léttskýjað
Montreal 10 skúrir
New York 15 alskýjað
Chicago -5 snjókoma
Orlando 16 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:49 15:47
ÍSAFJÖRÐUR 11:25 15:20
SIGLUFJÖRÐUR 11:09 15:02
DJÚPIVOGUR 10:26 15:09