Morgunblaðið - 02.12.2010, Blaðsíða 14
Loka þurfti nokkrum af fjölförnustu flugvöllum Evr-
ópu vegna fannfergis og á vegum myndaðist víða ring-
ulreið vegna snjóþyngsla og hálku. Í Bretlandi hefur
ekki snjóað svo mikið svona snemma vetrar síðan 1993
og þurfti að loka tveimur stórum flugvöllum. Þessi bíl-
Reuters
stjóri í Epsom var einn fjölmargra, sem höfðu í nógu að
snúast við að hreinsa snjó af bílum sínum á Bretlandi.
Dagblaðið Bild sagði að gærdagurinn hefði verið sá
kaldasti 1. desember í 100 ár í Þýskalandi. Þar fór
frostið allt niður í 18 gráður á Celsius.
Evrópa skelfur í kuldakasti
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Þessi samskipti lækna og lyfjafyr-
irtækja eru mjög viðkvæm og læknar
þurfa stöðugt að vera á varðbergi
vegna hugsanlegra hagsmuna-
árekstra,“ segir Geir Gunnlaugsson,
landlæknir. Í fréttaskýringu í Morg-
unblaðinu í gær var m.a. fjallað um
markaðssetningu lyfja, rannsóknir,
gæði lyfja og verðlagningu. Steindór
Erlingsson, vísindasagnfræðingur,
hefur skrifað þingmönnum og kallað
eftir skýrum reglum um samskiptin.
Landlæknir segir að lyfjamál séu
stöðugt til umfjöllunar hjá embætt-
inu og mikilvægt sé að stjórnvöld al-
mennt séu vakandi fyrir þessum
málaflokki. Halda verði lyfjakostnaði
sem mest í skefjum, en um leið að
tryggja gæði. Mikið hafi áunnist á
síðustu árum við að beina sjúkra-
stofnunum og einstaklingum í notkun
ódýrari, en þó sambærilegra lyfja.
Löggjafinn hafi lagt sitt af mörkum
og Landlæknisembættið hafi tekið
þátt í að upplýsa lækna um mismun-
andi kostnað og kosti og galla.
Lyfjafyrirtækin berjast
um hlutdeild á markaðnum
„Almennt eru læknar meðvitaðir
um faglegar skyldur sínar og gagn-
vart samfélaginu,“ segir Geir.
„Læknafélagið hefur sett ákveðnar
reglur um samskipti lækna og lyfja-
fyrirtækja, en ég get ekki dæmt um
hvort það er fullnægjandi. Læknar
hafa farið í ferðir á kostnað lyfjafyr-
irtækja og mér finnst almennt að
læknar eigi að vera á varðbergi gagn-
vart slíku, en við getum ekki bannað
fólki að fara í slíkar ferðir. Oft eru
þær skipulagðar til að afla frekari
þekkingar á sérsviði viðkomandi
læknis og í öðrum tilvikum er um
hópa að ræða, sem eru taldir mik-
ilvægir fyrir viðkomandi flokk sjúk-
dóma.
Lyfin eru á frjálsum markaði og
lyfjafyrirtækin berjast um hlut-
deild á þessum markaði. Hinum meg-
in eru rúmlega þúsund manns á land-
inu sem hafa leyfi löggjafans til að
skrifa og ávísa þessum lyfjum sem
kosta samfélagið marga milljarða á
ári. Þetta eru því mjög viðkvæm sam-
skipti. Því má heldur ekki gleyma að
læknar þurfa að vera vel upplýstir
um þá valkosti sem eru í boði hverju
sinni hvað varðar val á lyfi,“ segir
Geir.
Lyfjastofnun nálarauga
Varðandi rannsóknir á lyfjum seg-
ir landlæknir að mjög sé treyst á er-
lendar systurstofnanir og fagtímarit.
Hérlendis sé Lyfjastofnun það nál-
arauga sem ný lyf þurfi að fara í
gegnum áður en þau eru skráð á
markað. Fleiri lyf séu skráð í ýmsum
öðrum löndum heldur en á Íslandi .
Læknar þurfa
stöðugt að vera
á varðbergi
Læknar hafa farið í ferðir á kostnað
lyfjafyrirtækjanna, segir landlæknir
„Við getum ekki
bannað fólki að
fara í slíkar
ferðir,“
Geir Gunnlaugsson
ERLENT
Sendiráðsgögnin, sem samtökin
Wikileaks komu í hendur valinna fjöl-
miðla, sýna djúpan ágreining milli
Bandaríkjanna og Pakistans vegna
öryggis kjarnorkuvopna. Í gær kom
fram að herinn í Pakistan hefði íhug-
að að koma forseta landsins, Asif Ali
Zardari, frá völdum eða taka hann af
lífi.
Jafnframt kom fram að Zardari
hefði sagt við Joe Biden, varaforseta
Bandaríkjanna, að óttaðist að pakist-
anska leyniþjónustan hygðist ráða
sig af dögum.
Breska blaðið Guardian vitnaði í
Anne Patterson, sendiherra Banda-
ríkjanna í Pakistan. „Okkar helsta
áhyggjuefni er ekki að herskár ísl-
amisti steli heilu vopni, heldur mögu-
leikinn á að einhver, sem starfi við að
reka kjarnorkuáætlun Pakistana
smygli smám saman nógu miklu efni
til að á endanum verði hægt að smíða
vopn,“ skrifaði Patterson 2009.
Einnig er vísað í áhyggjur Breta
og Rússa vegna þessara mála.
Yfirlýsing Pakistana
Pakistanar vísuðu í gær á bug að
nokkur hætta væri fyrir hendi. Í yf-
irlýsingu frá pakistanska utanríkis-
ráðuneytinu, þar sem í tvígang var
talað um „Vikilikes“, sagði að lekinn
væri „misvísandi“ og „meinfýsinn“.
Robert Gibbs, talsmaður Banda-
ríkjaforseta, sagði í gær að kröfur
um að Hillary Clinton, ut-
anríkisráðherra Banda-
ríkjanna, segði af sér
vegna þeirra upplýs-
inga, sem fram kæmu í
skjölunum, væru „fá-
ránlegar og út í hött“. Julian Ass-
ange, stofnandi Wikileaks, sagði í við-
tali við vikuritið Time að Clinton ætti
að segja af sér ef í ljós kæmi að hún
Pakistanar segja
áhyggjur ástæðulausar
Undir álagi Hillary Clinton, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, kom í
fyrradag á fund leiðtoga OECD-
ríkja í Astana í Kasakstan.
Bandaríkin óttast að hryðjuverkamenn nái í kjarnavopn
HIV-smituðum er nú tekið að fækka
í heiminum og tekist hefur að draga
úr fordómum og efla réttindi smit-
aðra. Þetta kom fram í ávarpi Ban
Ki-moon, framkvæmdastjóra Sam-
einuðu þjóðanna, í tilefni af al-
þjóðlega alnæmisdeginum í gær:
„Með ákveðni og samstöðu hefur
tekist að brjóta blað í baráttunni við
alnæmisfaraldurinn.“
Ekki eru þó aðeins jákvæð teikn á
lofti. Alnæmistilfellum hefur fjölgað
á ný í Bandaríkjunum og Evr-
ópuríkjum á borð við Bretland og
Þýskaland. Vöxturinn þar er rakinn
til sinnuleysis
ungs fólks, sér-
staklega karla,
sem ekki gæta
sín í kynlífi.
Í Mið-Asíu og
Austur-Evrópu
hefur tekist að
draga úr því að
smit berist úr
mæðrum í ný-
fædd börn, en
hins vegar eru miklar áhyggjur af
útbreiðslu sjúkdómsins meðal eitur-
lyfjaneytenda, sem sprauta sig.
Dregur úr útbreiðslu HIV á heimsvísu
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR
Góðar fréttir
Ban Ki-moon
Tyggigúmmi hefur frá upphafi ver-
ið bannað í kennslustofum um allan
heim. Nú hefur tyggjóið fengið
uppreisn í grunnskóla í Suður-
Þýskalandi.
Í Volkenscwhand-skólanum í
Bæjaralandi verður tyggigúmmi
hér eftir leyft. Skólastjórinn segir
að það hjálpi nemendum að ein-
beita sér og standast álag, sér-
staklega í prófum.
Einnig er jórturleðrið talið gott
fyrir tannheilsu nemendanna.
Armæðuvaldur
kennara hlýtur náð
SUÐUR-ÞÝSKALAND
Interpol lýsti í gær eftir Julian Ass-
ange, forsprakka Wikileaks, og fór
fram á að hann yrði handtek-
inn vegna ásakana um
nauðgun, sem settar hafa
verið fram í Svíþjóð. Mark
Stephens, lögmaður Ass-
ange, sagði að ástæðan fyr-
ir handtökuskipuninni væri
birting gagna úr sendi-
ráðum Bandaríkjanna
víða um heim.
„Þetta eru ofsóknir,
ekki lögsókn,“ sagði Stephens.
Ekki er vitað hvar Assange dvel-
ur. Í frétt frá AFP segir að hann sofi
sjaldan tvær nætur á sama stað.
Stjórn Ekvador bauð Assange hæli,
en Rafael Correa forseti dró boðið
til baka á þriðjudag.
Sarah Palin, fyrrverandi forseta-
frambjóðandi í Bandaríkjunum, hef-
ur krafist að bandarísk stjórnvöld
meðhöndli Wikileaks eins og
hryðjuverkasamtök og láti frysta
eignir starfsmanna þeirra.
Ofsóknir, ekki lögsókn
HANDTÖKUSKIPUN INTERPOL Á HENDUR JULIAN ASSANGE
Julian
Assange
Meirihlutanum í borgarstjórn og
sjálfstæðismönnum ber ekki saman
um það hversu mikil áhrif fyrirhug-
aðra hækkana álagningar í Reykjavík
verði á hag fjölskyldna í borginni.
Besti flokkurinn og Samfylkingin
birtu í gær útreikninga sína sem sýna
að mánaðarleg útgjöld hjá meðalfjöl-
skyldu muni aukast um allt að 4.100
krónur eða um 50 þúsund krónur á
ári. Inn í þá tölu reiknast útsvar, fast-
eignaskattur á íbúðir, lóðarleiga, leik-
skólagjöld, skólamatur og frístunda-
heimili. Sjálfstæðismönnum reiknast
hinsvegar til að hækkunin nemi 8-
12.000 krónum á mánuði, eða 100-150
þúsundum á ári, eins og sést í með-
fylgjandi töflu.
Sjálfstæðismenn telja að meirihlut-
inn noti of fáar breytur í sínum út-
reikningum og segi því aðeins hálfa
söguna. Til dæmis séu ekki teknar
með gjaldskrárhækkanir sem bitni á
fjölskyldum með fleiri en eitt barn í
leikskóla. Sjálfstæðismenn telja einn-
ig nauðsynlegt að taka með í reikn-
inginn breytur á borð við gjöld OR og
kostnað við tómstundir, t.d. gjald í
sund, Fjölskyldu- og húsdýragarð og
sumarnámskeið barna. una@mbl.is
Segja raunhækk-
un útgjalda meiri
Áhrif hækkana á fjölskyldu í Reykjavík
Samtals mánaðarlaun fyrir skatt: 700.000 kr. | 2 börn á leikskóla | 1 barn í grunnskóla
Fasteignamat íbúðar 2010: 24.000.000 | Lóðarverð (15%) 2010: 3.600.000
2011: 21.600.000 | 2011: 3.240.000
Kostn. 2010 Kostn. 2011
Leikskólagjöld - barn 1 227.205 239.360
Leikskólagjöld - barn 2 0 59.840
Skólamáltíð 52.500 57.750
Sorphirða 16.300 21.300
Fasteignaskattur 51.360 48.600
Lóðaskattur 2.880 5.346
Útsvar 1.050.739 1.064.448
OR gjöld 105.600 134.400
Frístund 87.833 105.399
Síðdegishressing Frístund 22.575 27.090
Samtals án tómstunda 1.616.992 1.763.534
Samtals með tómstundum 1.655.522 1.820.844
Mismunur:
146.542 kr.
165.322 kr.
Samkvæmt útreikningum sjálfstæðismanna í borgarstjórn
hefði fyrirskipað bandarískum sendi-
erindrekum að njósna um embættis-
menn hjá Sameinuðu þjóðunum
vegna þess að slíkt væri í trássi við al-
þjóðleg lög.
„Ég átta mig ekki alveg á hvers
vegna við ættum að láta okkur skoð-
un eins manns með vefsíðu einhverju
varða,“ sagði Gibbs
Á leiðtogafundi OECD-ríkja í gær
ræddi Clinton lekann á Wikileaks að
fyrra bragði við nokkra leiðtoganna,
sem koma fyrir í skjölunum, sumir
með niðrandi hætti, þar á meðal An-
gelu Merkel, kanslara Þýskalands,
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra
Ítalíu, Sergei Lavrov, utanríkisráð-
herra Rússlands, Nick Clegg, aðstoð-
arforsætisráðherra Bretlands, og
Mikheil Saakashvili, forseta Georgíu.