Morgunblaðið - 02.12.2010, Síða 20
Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
Mannskepnan er
þannig af Guði gerð að
hún þráir að líkja eftir
skapara sínum eins og
sjá má í listsköpun og
vísindastörfum. Sköp-
unarþrá mannsins hef-
ur gert margar og stór-
ar vísindalegar
uppgötvaðir sem eru í
reynd ótrúleg afrek frá
mannlegu sjónarmiði.
Þegar N. Armstrong stóð á tunglinu
stóð heimsbyggðin á öndinni. Geim-
fararnir sneru aftur með grjóthnull-
ung og úrskurðuðu tunglið vera líf-
vana malarhaug. Vegna andlegs og
líkamlegs atgervis var N.A. valinn
fyrstur manna til að stíga á tunglið.
Á heimleiðinni blasti við N.A. jörðin í
allri sinni litadýrð og fegurð, N.A.
fullvissaðist um að lífið á jörðinni
væri sköpun Guðs, frelsaðist og gerð-
ist kristniboði. Í trúarfordómum sín-
um dæmdu þróunarsinnar N.A. geð-
veikan, tóku steininn sem hann kom
með og gerðu á honum lífg-
unartilraunir en það var sama hvað
þeir blésu og hnoðuðu steinninn
vaknaði ekki til lífsins. Nokkru
seinna fundu þeir sprelllifandi fisk í
vatnspolli sem þeir höfðu nýlega lýst
yfir að útdauður væri fyrir milljónum
ára. 16 milljón ára steingervingur af
broddgelti, kom í leitirnar, sem
reyndist nákvæmlega eins í laginu og
afkomendur hans í nútíð.
Þráhyggjan lætur ekki að sér
hæða og þrátt fyrir marga viðlíka
fundi neita þróunarsinnar öllu sam-
starfi við Guð – þeir skulu sko! Um
áratuga skeið hafði „biblíumyndin“
þeirra af guttanum sem gekk á fjór-
um en rétti sig úr kútnum smám
saman og missti rófuna fyrirvara- og
þróunarlaust í miðju upprisuferlinu,
verið dreift um heiminn í kennslu-
bókum og fræðiritum og rófulausir
„húmanistar“ röktu ættir sínar með
stolti til apanna. „Sköpunarsaga“
þróunarsinna er í einfaldaðri mynd
þannig að í fyrndinni hafi steinar
slegist saman með miklum hvelli og
við ærandi hávaðann hafi einhverjum
steinbrotum orðið svo bilt við að þau
vöknuðu til lífsins. Það
er svo sköpunarsinnum
hulin ráðgáta hvernig
„frumálfarnir“ fengu
þá trú í upphafi vega að
menn skyldu ekki
þróast í átt til apa sem
ætti þó að vera jafn
sjálfsagt og hitt í vit-
undarlausu þróun-
arferli steinanna.
En gamla „Alibaba“-
myndin tilheyrir nú
sögunni og hefur fyrir
löngu „sannað sig“ og
þróast í trúarbrögð sem eru samt
ekki trúarbrögð af því að áhangend-
urnir eru svo þróaðir að þeir hafna
trú. Þróunarkenning C. Darwins hef-
ur löngu afsannað sig. Þróunarkenn-
ing nýaldarinnar er hins vegar bast-
arður sem er löngu orðin að
trúarbrögðum sem enn ríghalda í
kenningarhugtakið sem er sauð-
argæran sem smeygt er yfir úlfinn
með góðum árangri. Undir kenning-
arhugtakinu eru heilu þáttaraðirnar
framleiddar sem eiga greiðan að-
gang inn í fjölmiðla og skóla. Þessir
þættir eru vinsælir náttúrulífsþættir
úr sköpunarverkinu en trúboðar þró-
unarátrúnaðarins eru þar kynnar og
predika skoðanir sínar eins og um
heilagan sannleik sé að ræða. Þrátt
fyrir óútreiknanlegan kostnað og
áratuga rannsóknir hefur ekki fund-
ist vottur af lífi á öðrum reikistjörn-
um en jörðinni. Allar tilraunir til að
kveikja líf af „stórahvelli“ hafa orðið
vísindunum til háðungar og sá óskap-
legi kostnaður sem varið er til þeirra
tilrauna m.a. úr trúboðssjóði ESB er
óráðsía. Maðurinn getur ekki vakið
sér afkomendur af grjóti, en hvað
getur Guð ekki? „… Ég segi yður, að
Guð getur vakið Abraham börn af
steinum þessum“ (Mt 3:9). Guð getur
líka gefið steinum mál. „Ég segi yð-
ur, ef þeir þegja, munu steinarnir
hrópa“ (Lk 19:40). Hér er það Jesús
sem talar en með 5 brauð og 2 fiska í
höndunum blessaði hann fæðuna og
skapaði sjálfur mat handa þúsundum
(sjá Jh 6: 11-13). Hann var reyndar
uppi fyrir sköpun heimsins. „Faðir,
gjör mig nú dýrðlegan hjá þér með
þeirri dýrð, sem ég hafði hjá þér, áð-
ur en heimur var til“ (Jh 17:5).
Sköpunin er lífið sjálft. Gróður og
dýr hafa aðlögunarhæfni og geta
breytt um útlit við mismunandi ytri
aðstæður en eru þó áfram sömu teg-
undar. Ótal lífverur voru skapaðar í
upphafi hver eftir sinni tegund með
yfirnáttúrlegri nákvæmni og fram-
sýni hins persónulega lifandi Guðs
sem kom samkvæmt dagskrá til jarð-
arinnar í Jesú Kristi til að end-
urheimta sköpunarverkið úr klóm
glötunar og opinbera persónuleika
sinn og kærleika. Guð gaf manninum
sjálfstæði, frjálsan vilja sem hann
gat ekki höndlað og gaf sig syndinni
á vald en syndin er Guði andstyggð,
banvænn „smitsjúkdómur“ sem allir
jarðarbúar sýkjast af. Þegar synd-
ugir menn sem Jesús hefur ekki
„bólusett“ grufla í sköpunarverkinu
er jarðýtan farin að snyrta blóma-
beðin. Maður skyldi ætla að þeir sem
telja sig svo „sterka“ að þurfa ekki á
Jesú að halda gleddust yfir því að
þeir „veiku“ eigi skjól í Jesú Kristi.
Svo er ekki, þannig vinnur syndin og
biblíudólgar og þróunarsinnar vaða
fram á ritvöllinn með dauðann í
pennanum.
Frelsarinn og gyðingurinn Jesús
vitnaði jafnan í ritningarnar og
tengdi G-testamentið lífsstarfi sínu.
Biblían kennir góða hluti og er boð-
beri hjálpræðisverksins í Jesú sem
býður alla velkomna líka þá sem vilja
ræna Guð sköpuninni. „Því svo elsk-
aði Guð heiminn, að hann gaf son
sinn eingetinn, til þess að hver sem á
hann trúir glatist ekki, heldur hafi ei-
líft líf“ (Jh 3:16). Ég bið öllum sköp-
uðum Íslendingum Guðs friðar.
Í upphafi skapaði
Guð himin og jörð
Eftir Ársæl
Þórðarson » Allar tilraunir til að
kveikja líf af „stóra-
hvelli“ hafa orðið vísind-
unum til háðungar og sá
óskaplegi kostnaður
sem varið er til þeirra
tilrauna m.a. úr trú-
boðssjóði ESB er
óráðsía.
Ársæll Þórðarson
Höfundur er húsasmiður.
Markaðssetning er grunnur að
rekstri fyrirtækis, sem þarf að
byggjast á heiðarleika. Þar eiga
hlut að máli seljandi og kaupandi
vöru og þjónustu. Síðustu árin hefur
verið gert út á aukaþóknun til við-
skiptavina sem oftar en ekki bygg-
ist á punktakerfi
sem hægt er að
nota til kaupa á
farseðlum, eða
krónur á reikn-
ing. Þessir
punktar eru fyrst
reiknaðir inn í
verðið, þannig
greiðir við-
skiptavinur ávallt
fullt verð fyrir
þessa punkta. Á
endanum er vinningur lítill.
Þekktasta kerfið eru vild-
arpunktar flugfélags og þeirra
kortafyrirtækja, sem eru Vísa,
Amex og Eurocard og þeirra í
greiðslukortaviðskiptum. Sá sem
þetta ritar hefur reynt þetta kerfi
ítrekað. Í sumum tilfellum sýnast
tilboðin góð en þegar nánar er skoð-
að, eru þessir punktar einskis virði,
t.d. hef ég safnað miklu af punktum
vegna mikilla viðskipta. Þegar
dæmið er reiknað til enda er útkom-
an 0.
Dæmi: 76 þús. punkta þarf til
ferðar, á hvern farseðil, þessir
punktar eru 76 þúsund sem krónu-
punktar. Skattar og önnur gjöld
fyrir báða farseðla eru um 65 þús-
und kr, +/- Takmörk notkunartíma
eru mikil. Ég nýtti punkta til Evr-
ópu og Ameríku, u.þ.b. 38 þús
punkta per farþega. Skattar og
gjöld voru 64 þúsund, og að nota
þessa punkta var ekki átakalaust, er
starfsfólk kortafyrirtækis varð að
koma að málinu til þess að þetta
væri mögulegt.
Á sama tíma var auglýst tilboð til
Evrópu með sköttum. Án takmark-
ana 15.900 kr. aðra leið á mann.
Þetta var neikvætt dæmi þegar allt
er reiknað .
Ég og margir hafa fallið fyrir
þessari blekkingu. Ég vil þó með
fullri sanngirni hæla starfsfólki
kortafyrirtækjanna fyrir að standa
heilshugar að málum, gegn flug-
félagi þessu. Punktarnir eru stór
blekking. Opinberir starfsmenn fá
greidda ferðapunkta fyrir ferð sem
opinberar stofnanir greiða. Þar er
spurning um siðgæði. Ég vil þó
segja að einn frábær starfsmaður
hjá flugfélaginu (Vildarklúbbi þess)
stóð sig vel enda sá aðili alvanur í
ferðabransa. Sú kona á allt hrós
skilið, og er fyrirtækinu til sóma,
var alveg frábær. Ekki virðist öllum
starfsmönnum vera ljósar reglur
um notkun og notagildi vild-
arpunkta, né vera ljóst að fyrirtæki
verður aldrei stærra en þeir sem við
það skipta. Við sem freistuðumst til
að nota það komum ekki auga á alla
þá annmarka sem eru í þessu kerfi.
Þegar upp er staðið þá hefur flug-
félag þetta engu til kostað, korta-
fyrirtækin afar litlu ef þá einhverju,
seljendur vörunnar bera kostnað af
öllu saman, sem kaupendur svo
greiða á endanum. Korthafar eru
ekki að hagnast um krónu.
Ég og fleiri höfðum ekki reiknað
dæmið rétt. Ég vil því segja öllum
þeim sem freistast til að skrifa und-
ir samninga að kanna nákvæmlega
hvaða skilmálar eru til grundvallar.
Kortafyrirtækin hafa gert lélega
samninga við flugfélagið, meðvitað
eða ómeðvitað. Þegar á reynir eru
þetta lélegir samningar. Það er því
betra að reikna í upphafi hvert er
árgjald greiðslukortsins, hvaða skil-
yrði eru fyrir notkun vildarpunkta.
Skattar á vildarferðum virðast
miklu hærri en á venjulegum far-
seðlum. Næstum vikulega koma
sértilboð á ferðum frá flugfélög-
unum, innfaldir skattar, notk-
unartími rúmur og svo eignast þú
vildarpunkta í þeim tilfellum, sem
geta verið viðskiptapunktar sem þú
getur breytt í krónur, svo einfalt er
það. Það er því betra að fá krónu-
punkta en vildarpunkta
GUÐJÓN JÓNSSON,
fyrrverandi skipstjórnarmaður.
Vildarpunktar flugfélaga
Frá Guðjóni Jónssyni
Guðjón
Jónsson
Bréf til blaðsins
Þann 4. janúar 2011 kemur út
glæsilegt sérblað um skóla og
námskeið semmun fylgja
Morgunblaðinu þann dag.
Í blaðinu verður fjallað ummenntun og
þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir
þá sem vilja auðga líf sitt og möguleika
með því að afla sér nýrrar þekkingar
og stefa því á nám og námskeiða.
MEÐAL EFNIS:
Háskólanám..
Verklegt nám og
iðnnám.
Endurmenntun.
Símenntun.
Listanám.
Sérhæft nám.
Námsráðgjöf og góð
ráð við námið.
Kennsluefni.
Tómstundanám-
skeið og almenn
námskeið.
Nám erlendis.
Lánamöguleikar til
náms.
Ásamt fullt af öðru
spennandi efni
Skó
lar o
g ná
msk
eið
Skólar og
námskeið
–– Meira fyrir lesendur
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, miðvikudaginn 22. desember