Morgunblaðið - 02.12.2010, Síða 21
Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
Það er skemmtilegt
að ferðast um landið
okkar og ímynda sér
hvernig allt var á tím-
um landnámsfólks. Ég
varð fyrir uppljómun í
sumar, þegar ég keypti
mér Víkingakort Guð-
rúnar G. Bergmann,
sem gefin voru út árið
1993 og naut þess að
lesa fróðleikinn um
horfna heima víkinga, landnema Ís-
lands. Frábær og fræðandi útgáfa
þar.
Íslendingar hafa kosið að kalla
alla landnámsmenn Íslands víkinga,
þótt þeir hefðu ekki allir verið mikið
fyrir hernað. Það er samt kannski
réttnefni, því það þurfti mikinn
dugnað og þor til að sigla í opnum
skipum yfir ólgandi haf á leið til Ís-
lands. Ég heillaðist af hug-
myndaheimi víkinga og hugsaði,
hvers vegna Íslendingar hömpuðu
ekki meira þessari menningar-
arfleifð? Þarna eru ræturnar og
mikilfengleg saga um horfna menn-
ingarheima. Ótrúlega mörg tækifæri
eru þarna ennþá óplægð á akri
ferðamennskunnar.
Spennandi tækifæri
í ferðamennsku
Það er þó að verða til vísir að
spennandi tækifæri í ferðamennsku
á Suðurnesjum en það hófst allt með
umdeildum kaupum Reykjanes-
bæjar á víkingaskipi Gunnars og fé-
laga, sem Víkingaheimar á Fitjum
hýsa nú. Fræðslugarður er nú risinn
í Reykjanesbæ gegnt Víkinga-
heimum, sem nefnist Heimur goð-
anna og er í eigu Guðbrands Gísla-
sonar. Þetta er enn eitt
fræðsluspjótið um horfna heima,
sem verið er að stinga niður á Suð-
urnesjum. Heimur goðanna er fag-
mannlega unnin sýning um norræna
goðafræði en í þessari sýningu er
verið að nýta fornar menningar-
hefðir til kynningar. Svona sýning
hefur mikið aðdráttarafl. Tenging
hennar við Víkingaheima og Land-
námssetrið er einnig sterk. Þarna
eru miklir markaðsmöguleikar og
einnig samlegðaráhrif. Að sýning-
unni kemur margt hæfileikafólk og
má þar nefna Hilmar
Örn Hilmarsson,sem
samdi tónlist og sá um
hljóðhönnun. Ingunn
Ásdísardóttir, þjóð-
fræðingur og leikstjóri
sá um listræna stjórn-
un, hugmyndir og
texta. Kristín Ragna
Gunnarsdóttir, kennari
við Listaháskóla Ís-
lands, sá um alla mynd-
ræna útsetningu sýn-
ingarinnar.
Ævintýraheimur
Íslendinga heillar
Erlendir gestir, sem séð hafa sýn-
inguna, hafa lýst yfir ánægju sinni.
Fræðimenn frá Norðurlöndum og
Evrópu, sem finna þennan sameig-
inlega þráð með okkur Íslendingum
í víkingafræðum, höfðu einnig unun
af sýningunni. Nemendur sem komu
frá Harvard, sögðu aðdáunarvert
hvað Íslendingar ættu mikil auðæfi í
menningarlegu tilliti. Þeim fannst
stórkostlegt að finna hvað hin nor-
ræna goðafræði lifir sterkt með
þjóðinni. Þessi arfleifð Íslendinga er
frábært markaðstækifæri.
Í erfiðleikum eigum við að kíkja í
okkar eigin rann, hvað varðar t.d.
ferðamennsku. Skoða allt sem við
eigum nú þegar í þjóðarsálinni, sem
er fallegt, satt og sammannlegt öðr-
um þjóðum.
Landvættir Íslands
Þegar ég las Víkingakortin, þá
fræddist ég um landvættirnar. Ég
lærði að vísu um þær áður fyrr í
skóla og man að ég heillaðist.
Krakkar hafa mjög gaman af nor-
rænni goðafræði. Þetta eru ævintýri
sem heilla svo marga, unga og aldna.
Landvættatrú víkinganna var mjög
sterk. Þeir trúðu því að fjöll og hólar
landsins væru full af landvættum og
að þessar landvættir treystu varnir
landsins gagnvart óvinum. Mér datt
t.d. í hug hvers vegna Íslendingar
væru ekki löngu búnir að planta nið-
ur risastórum landvættum. Það
myndi aldeilis draga að ferðamenn,
innlenda sem erlenda. Ég sá fyrir
mér að við gætum reist risastór
minnismerki um landvættirnar, búið
þær til úr einhverjum sterkum efni-
við, haft þær til dæmis 5 metra háar
og komið þeim fyrir á landsvæð-
unum, þar sem þær komu fram sem
verndarar. Landvættir og sagan á
bakvið þær myndu draga að mikinn
fjölda ferðamanna, það er ég viss
um.
Endurreisum Alþingi
á Þingvöllum
Ég fór á mikið hugmyndaflug eftir
lestur Víkingakortanna í sumar og
sá fyrir mér að við myndum reisa
nýtt Alþingishús á hinum forna
þingstað Íslendinga, á Þingvöllum.
Nú er þar nóg pláss, þar sem áður
stóð hótel Valhöll. Mikil gæfa gæti
fylgt þessari staðsetningu fyrir Ís-
land. Mun betri staðsetning en að
hafa þinghúsið okkar í malbiki borg-
arinnar. Löggjafarþing Íslendinga
var stofnað á Þingvöllum árið 930 og
er talið elsta lýðræðislega þing á
Vesturlöndum.Við værum að styrkja
rætur okkar og menningu enn frek-
ar. Ferðamennska myndi blómstra í
kring og sérkenni þingstaðar okkar
myndi vekja mikla athygli á al-
þjóðavísu. Óteljandi möguleikar. Ég
sá fyrir mér t.d. að alþingismenn
færu á Þingvelli tvær vikur í senn,
einbeittu sér í fallegri náttúrunni að
landsins gagni og nauðsynjum en
fengju svo frí í eina viku til að hitta
fjölskyldur sínar. Þeir myndu vinna
miklu betur og um leið tengjast bet-
ur landinu okkar, á þessum forna og
helga þingstað Íslendinga. Þeir
fengju náttúruna beint í æð. Ég er
viss um að það yrði íslenskri þjóð
mikil blessun að flytja starfsemi Al-
þingis á Þingvelli. Þingheimur gæti
starfað í friði og náttúran sæi um að
hjálpa þingmönnum að sjá skýrt.
Þeir væru einnig að tengjast fornum
hetjum, réttlætis og velmegunar, því
á þingstaðnum á Þingvöllum, var
hefð fyrir því að leysa ágreinings-
mál. Setjum Alþingi Íslendinga aft-
ur í helgan friðargarð okkar, end-
urreisum það á Þingvöllum.
Endurreisn Alþingis
á Þingvöllum
Eftir Mörtu
Eiríksdóttur » Landvættir og sagan
á bakvið þær myndu
draga að mikinn fjölda
ferðamanna ...
Marta Eiríksdóttir
Höfundur er ma.
grunnskólakennari að mennt.
Gullsmárinn
Önnur umferðin í Minningar-
mótinu um Guðmund Pálsson var
spiluð í Gullsmára mánudaginn 29.
nóvember. Spilað
var á 15 borðum. Úrslit í N/S:
Dóra Friðleifsd. - Jón Stefánsson 332
Ernst Backman - Hermann Guðmss. 312
Kristin Óskarsd. - Gróa Þorgeirsd. 301
Guðrún Gestsd. - Lilja Kristjánsd. 298
A/V
Ármann J. Láruss. - Sævar Magnúss. 329
Þorsteinn Laufdal - Páll Ólason 315
Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 313
Elís Helgason - Gunnar Alexanderss. 290
Og eftir tvær umferðir er staða
efstu para þessi:
Ármann J. Láruss. - Sævar Magnúss. 690
Dóra Friðleifsd. - Jón Stefánsson 639
Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 628
Ásgrímur Aðalstss - Birgir Ísleifss. 624
Eldri borgarar
á Akureyri
Spilaður var á 7 borðum tvímenn-
ingur hjá bridsklúbbi Félags eldri
borgara á Akureyri 25. nóvember.
Efstu pör í N/S:
Karl Jörundss. – Rúnar Sigmundss. 117
Páll Jónsson – Gunnar Berg 116
Andri P. Sveinss. – Ólína Sigurjónsd. 113
Austur/vestur
Bragi Jóhannss. – Stefán Jónss. 133
Áslaug Kristjánsd. – Ófeigur Jóhanness. 113
Sigríður Þórðard. – Anna Þorsteinsd. 109
Meðalskor 105 stig.
Bridsdeild Félags
eldri borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl 4, mánudaginn 29.
nóvember. Spilað var á 14 borðum.
Meðalskor: 312 stig.
Árangur N-S:
Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 402
Júlíus Guðmundss.– Rafn Kristjánss. 360
Friðrik Jónsson – Tómas Sigurjónss. 357
Ólafur B. Theodórs – Björn E. Péturss. 353
Örn Ingólfsson – Örn Ísebarn 353
Árangur A-V:
Björn Svavarss. – Jóhannes Guðmannss.
364
Magnús Jónsson – Gunnar Jónsson 349
Helgi Hallgrímss. – Ægir Ferdinandss. 348
Herdís Sigurðard. – Elín Guðmannsd. 329
Bridsfélag
Hafnarfjarðar
Þá er þriggja kvölda Michel lokið
þar sem tvö bestu kvöldin töldu. Sig-
urvegarar urðu
Andrés Þórarinsson og Halldór
Þórólfsson með 60,35 % skor.
Næstu pör (% skor):
Skúli Skúlason – Rúnar Einarss. 59,64
Halld. Halldórss. – Hermann Friðrikss.
57,97
Gabríel Gíslas. – Gísli Steingrímss. 57,33
Ólafur Jóhannss. – Sigurþór Sigurðars.
55,89
Næsta mánudag hefst síðan að-
alsveitakeppni BH spilaðir verða 2
leikir á kvöldi.
Ef par vantar aðstoð til að mynda
sveit þá endilega hafið samband við
Sigurjón/898 0970.
Bridsfélag Siglufjarðar
Bridsfélag Siglufjarðar hefur
undanfarið spilað 4. kvölda tvímenn-
ing, Sigurðarmót. Lokastaða fjög-
urra efstu para varð þessi.
Bogi Sigurbjss. – Anton Sigurbjss. 746,4
Hreinn Magnúss. – Friðfinnur Haukss.717,4
Reynir Karlss. – Þorsteinn Jóhannsson711,1
Ingvar Jóhannss. – Hákon Sigmundss. 675,6
Næstu mánudagskvöld verður
spiluð 2ja kvölda hraðsveitakeppni
þar sem efstu og neðstu lið í Sigurð-
armótinu mynda sveit.
Spilað er í Shell-húsinu og hefst
spilamennskan kl. 19.30.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 30. nóvember var
spilað á 17 borðum. Sigurður og
Anton unnu A/V með risaskor
69,39% Önnur úrslit urðu þessi/N/S:
Bjarni Þórarinsson – Jón Lárusson 393
Bragi Björnsson – Bjarnar Ingimars 388
Ólafur Ingvarss. – Sigurberg Elentínuss.383
Sverrir Jónsson – Óli Gíslason 358
A/V
Sigurður Hallgrímss. – Anton Jónss. 433
Jón Svan Sigurðss. – Birgir Sigurðss. 392
Júlíus Guðmundss. – Óskar Karlss. 384
Bragi V. Björnss. – Guðrún Gestsd. 345
Staðan í stigakeppninni er þessi:
Katarínus Jónsson 254 stig
Pétur R. Antonsson 236
Ragnar Björnsson 236
Bragi Björnsson 227
Oddur Jónsson 224
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is