Morgunblaðið - 02.12.2010, Síða 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
✝ Anna S. Karls-dóttir fæddist á
Siglufirði 11. desem-
ber 1936. Hún lést á
líknardeild Landspít-
alans í Kópavogi 14.
nóvember 2010.
Anna var dóttir
hjónanna Karls Vil-
helms Stefánssonar,
f. 10. apríl 1910, d.
26. mars 1955, og
Heidvigar Huldu
Andersen, f. 9. maí
1914, d. 29. desember
1991. Bræður hennar
eru Hersteinn Þráinn Karlsson, f.
29. maí 1948, og Haukur Georg
Karlsson, f. 26. mars 1954.
Anna giftist hinn 4. mars 1956
Kristjáni Sigurvinssyni vélsmiði, f.
23. ágúst 1929, d. 27. apríl 1998.
Dóttir þeirra er Guðrún Helga
Kristjánsdóttir, f. 10. september
1955, gift Tryggva Erni Björns-
syni, f. 16. desember 1949. Börn
þeirra eru 1) Anna Kristín
Tryggvadóttir, f. 1. maí 1973, gift
Jóni Þórðarsyni, f. 13. maí 1966.
Börn þeirra eru Íris Heiða Jóns-
dóttir, f. 14. mars
1995, og Þórður Örn
Jónsson, f. 1. ágúst
2000. Fyrir átti Anna
Tinnu Rut Ein-
arsdóttur, f. 12. apríl
1990, með Einari
Hauki Eiríkssyni, f.
22. janúar 1973. 2)
Lóa Birna Tryggva-
dóttir, f. 17. desem-
ber 1974, synir henn-
ar og Hermanns A.
Kristjánssonar, f. 11.
ágúst 1966, eru
Kristján Helgi Her-
mannsson, f. 31. maí 1996, og
Tryggvi Elías Hermannsson, f. 11.
nóvember 2002. Sambýlismaður
Lóu er Jónþór Þórisson, f. 6. nóv-
ember 1968, dóttir þeirra er Sonja
Rut Jónþórsdóttir, f. 15. desember
2005. 3) Kristján Björn Tryggva-
son, f. 6. júní 1981, kvæntur Krist-
ínu Þórsdóttur, f. 5. júlí 1984.
Börn þeirra eru Ísak Þór Krist-
jánsson, f. 10. september 2003, og
Agla Björk Kristjánsdóttir, f. 22.
október 2008.
Útför Önnu fór fram í kyrrþey.
„Sá sem stöðugur stendur allt til enda
hann mun hólpin verða.“
(Matt 24:13)
Þessi orð eiga alltaf eftir að minna
mig á móður mína Önnu Karlsdóttur.
Mamma lést hinn 14. nóvember eftir
átta mánaða baráttu við þann sjúk-
dóm sem hafði þrisvar áður bankað
upp á hjá henni á lífsleiðinni, fyrst
þegar hún var 22 ára gömul og síðan
með reglulegu millibili. Engum datt í
hug að þar færi sjúk kona, ætíð vel til-
höfð og falleg. Uppvöxturinn mótar
okkur öll og svo var líka með mömmu.
Hún ólst upp á Siglufirði en í þá daga
var efnahagurinn oft bágborinn og
brauðstritið oft á tíðum erfitt og það
hafði sín áhrif á barnssálina og gerði
mömmu að því sem hún var. Hún varð
fagurkeri sem elskaði að búa sér og
sínum fallegt heimili. Allt sem hún
eignaðist á lífsleiðinni fór hún svo vel
með að það var ætíð sem nýtt, sama
hvort það voru föt eða annað.
Gestrisni mömmu var mjög mikil
og þó að veitingarnar væru bara kex,
ostur og sulta var það borið svo
smekklega á borð að það leit út sem
veisla. Kristín móðuramma mömmu
hafði í uppvextinum kennt henni að
bera mikla virðingu fyrir orði guðs
Biblíunni og var mamma ætíð mjög
andlega sinnuð og leitandi. Árið 1966
urðu mikil straumhvörf í lífi hennar
en þá fann hún sannleikann og hann
var einmitt í þeirri bók. Hún fór að
lesa hana daglega og láta hana hafa
áhrif á líf sitt og ekki bara sitt líf held-
ur einnig annarra, þar á meðal mitt
sem ég verð ævinlega þakklát fyrir.
Samband okkar mömmu var mjög
sérstakt enda ég eina barnið hennar.
Ekki bara að við hefðum sömu trú og
lífsgildi heldur höfðum við sama
smekk og er mér alltaf ofarlega í huga
er við fórum hvor í sínu lagi í bæinn að
kaupa okkur skó fyrir brúðkaup og
komum báðar heim með sömu skóna.
Tónlistarsmekkur okkar var líka sá
sami og nutum við þess að fara saman
á tónleika og njóta góðrar tónlistar.
Svona gæti ég lengi upp talið. Nú
verð ég að læra að lifa upp á nýtt án
mömmu, en ég má vera þakklát fyrir
að sjúkdómurinn tók hana ekki frá
mér þegar ég var fjögurra ára. Við
áttum saman 55 ár og fyrir þau vil ég
þakka.
Minningarnar streyma fram, allar
samverustundirnar með okkur
Tryggva, börnunum okkar og barna-
börnum sem hún elskaði svo mikið.
Öll fríin okkar saman út um allan
heim og ekki síst stundirnar á mánu-
dögum þegar við hittum sameiginleg-
ar vinkonur og trúsystur okkar og
lásum saman, nú verður hennar sárt
saknað.
Ég vil að lokum þakka öllum þeim
sem glöddu hana með heimsóknum
og símhringingum þegar hún var orð-
in rúmföst, hún fann svo sannarlega
styrk í þeim.
Að lokum vil ég kveðja elskulega
móður mína sem var svo stór partur
af mér sjálfri með orðunum í Opin-
berunarbókinni 21. kafla:
„Og dauðinn mun ekki framar til vera,
hvorki harmur né vein né kvöl er framar
til, hið fyrra er farið.“
Hafðu þakkir fyrir allt elsku
mamma mín, við sjáumst á ný í Para-
dís.
Þín dóttir,
Helga.
Elsku besta fallega amma mín er
dáin. Ég á engin orð til að lýsa þeim
gríðarlega missi og söknuði sem ég
ber í hjartanu mínu. Amma var ein-
stök kona, falleg að innan sem utan.
Ég var svo lánsöm að fá að alast upp
að stórum hluta á heimili hennar og
afa Kidda og í minningunni var ekk-
ert notalegra en að kúra í afaholu við
hlið ömmu þegar afi var farinn til
vinnu. Heimili ömmu var svo fallegt
og var manni kennt frá blautu barns-
beini hvernig umgangast átti hlutina
og þegar önnur börn komu í heim-
sókn tók maður sér ósjálfrátt það
hlutverk að vernda fallega puntið í
stofunni.
Ferðalögin með ömmu innanlands
sem erlendis og öll skemmtilegu mat-
arboðin þar sem hún var ávallt hrók-
ur alls fagnaðar jafnt hjá fullorðnum
sem börnum gleymast aldrei og munu
skemmtilegu tilsvörin og frasarnir
hennar eflaust poppa oft upp hjá fjöl-
skyldunni. Í seinni tíð varð amma
annað og meira en amma mín, hún
varð ein mín besta vinkona og alltaf
gat ég leitað til hennar með það sem
mér lá á hjarta, hluti sem ég treysti
mér ekki til að ræða við aðra. Hjá
ömmu gat ég grátið og hlegið og alltaf
munu óma orðin sem hún sagði alltaf
við mig „Svona, svona elskan mín,
þetta verður allt í lagi“.
Síðasta samtal okka ömmu var
tveimur dögum áður en hún fór á spít-
alann og á sinn einstaka hátt tókst
henni að veita mér sálarró og fullvissu
um að allt færi vel bæði hjá mér og
henni. Börnin mín hafa líka misst
mikið þar sem amma var amma
þeirra líka en aldrei langamma, í
henni fundu dætur mínar trúnaðar-
vinkonu sem tók þeim opnum örmum
og hlustaði af athygli hvort sem um
var að ræða alvarleg málefni eða bara
spjall um daginn og veginn og enduðu
þeir fundir iðulega með miklum hlátri
og léttari lund. Sonur minn gat setið
og sagt ömmu brandara tímunum
saman og alltaf hló hún innilega þó að
brandararnir væru alltaf þeir sömu
og hjá ömmu á Þrastó fékk hann allt-
af að heyra hvað hann væri nú góður
og fallegur drengur.
Elsku amma, nú ertu laus undan
þjáningum af völdum krabbameins-
ins sem þú fyrst barðist við aðeins 22
ára gömul. Ég er svo stolt af því að
hafa átt svo glæsilega, skemmtilega
og hlýja ömmu sem þú svo sannarlega
varst og þó ég komist ekki með tærn-
ar þar sem þú varst með hælana þeg-
ar kemur að manngæðum þá mun ég
reyna mitt besta. Við erum öll ófull-
komin og okkur verður öllum fóta-
skortur einhverntímann á lífsleiðinni
en þá er bara að standa upp og halda
áfram að gera betur.
Sofðu rótt, elsku amma mín, þú lifir
alltaf í hjartanu mínu.
Ástarkveðja, þín nafna,
Anna Kristín.
Elsku hjartans Anna frænka mín.
Það er frekar sárt að skrifa þessi orð
en því miður verð ég að kveðja þig í
hinsta sinn. Þú fórst svo snöggt og
með svo litlum fyrirvara að það er erf-
itt að skilja að þú sért farin í síðasta
ferðalagið og að þú komir ekki aftur
heim til okkar sem elskuðum þig.
Eina huggunin er sú að á þínum
áfangastað bíður hann Kiddi þinn
með bros á vör og með opna arma,
hann hefur örugglega verið einmana
án þín í 12 ár eins og þú án hans. Þú
giftist Kidda móðurbróður mínum
ung, 19 ára eignaðist þú hana elsku
Helgu mína, ég hef alltaf talið Helgu
meira sem systur en frænku, hún er
mér svo kær og mikilvæg. Heimilið
ykkar í Kópavoginum var mjög fal-
legt, þú elskaðir mikið fegurð, blóm,
listir og músík, ég á fjölmargar minn-
ingar um þig, alltaf að syngja, þú
varst mjög lagvís. Þú elskaðir sér-
staklega óperur og þekktir þær reip-
rennandi. Ég á margar fallegar minn-
ingar úr Holtagerðinu í Kópavogi hjá
ykkur, þér og Kidda frænda, heimilið
var glæsilegt og þegar við í fjölskyld-
unni vorum boðin í mat hjá ykkur fór
maður fús og með gleði vegna þess að
þú varst frábær kokkur og hafðir
mikið gaman af að elda, borðið alltaf
skreytt og frábær matur borinn fram,
allt eldað af þér. Hún elsku Helga
mín, einkadóttir ykkar, giftist korn-
ung og gerði þig að ömmu þegar þú
varst bara 36 ára, þá fæddist Anna
Kristín, kölluð eftir þér og Kidda
frænda, Svo fæddust Lóa og Kiddi
litli. Þú og Helga dóttir þín áttuð svo
einstaklega fallegt samband, þið elsk-
uðuð hvor aðra svo mikið, þið voruð
móðir og dóttir en líka systur. Svo
varstu svo heppin í þínu lífi að öll
barnabörnin þín gáfu þér samtals átta
barnabarnabörn. Þú komst í heim-
sókn til mín hér á Ítalíu með Önnu,
Jónda, Tinnu og Írisi, það var ynd-
islega gaman að hafa þig hér og að
spjalla saman og hlæja, oft langt fram
á nótt, man svo vel eftir okkar hlátri
og kátínu. Ég vil líka segja að þegar
ég var bara 9 ára var ég hjá þér og
Kidda frænda um tíma þegar mamma
lá milli heims og helju eftir mjög al-
varlegt bílslys, oft átti ég erfitt með
að sofna og grét, þá faðmaðir þú mig
og kysstir, hjálpaðir mér að líða betur
og að sofa, þessu mun ég aldrei
gleyma.
Elsku Anna frænka mín, núna ertu
lögð af stað í síðasta ferðalagið þitt, ég
kveð þig með brosi og gullfallegum
minningum, ég er viss um að ef ég
horfi á stjörnurnar í þögn og hlusta
vel mun ég heyra þig og Kidda tala
saman, heyra þig syngja Maríu Callas
og líka heyra þinn smitandi, skemmti-
lega hlátur. Þú elskaðir sólina, núna
ertu þar sem sólin skín alltaf, góða
ferð, elsku frænka, einn góðan veð-
urdag hittumst við öll á ný, þá verður
kátt í himnaríki. Kysstu Kidda, Öss-
ur, ömmu, afa og pabba frá mér, þú
munt alltaf lifa í hjarta mínu og líka í
hjarta þinnar stóru, fallegu fjöl-
skyldu. Alltaf þín,
Sigrún.
Óraunveruleiki. Það er eitt sem
kemur upp í hugann þegar ég hugsa
til þess að amma sé dáin. Þó svo að ég
hafi verið undir þetta búin að vissu
leyti, er maður aldrei tilbúinn að
kveðja þá sem maður elskar, svona
fljótt og endanlega eins og við þurfum
nú að gera. Við amma á Kópó vorum
góðar vinkonur og eyddum miklum
tíma saman og núna er ég svo óend-
anlega þakklát fyrir það að hafa feng-
ið að eyða þessum góðu stundum með
henni. Í sumar var oft svo gaman hjá
okkur og þrátt fyrir veikindin var allt-
af stutt í brosið, hláturinn og grínið þó
svo að ömmu liði ekki vel. Anna amma
mín var, er og mun alltaf verða í mín-
um huga ein fallegasta og tignarleg-
asta kona sem ég hef þekkt og hún
kenndi mér margt sem mun fylgja
mér í gegnum lífið. Hún sagði mér oft
hvað henni þótti vænt um mig og
hvatti áfram í öllu sem ég tókst á við.
Hún var alltaf hlý og vildi öllum vel.
Núna þegar hún er farin er það næsta
markmið að læra að lifa án hennar,
við töluðum oft saman löngum stund-
um um allt og ekkert og bara það að
horfa á skemmtilegan sjónvarpsþátt
með henni var svo gaman, minning-
arnar eru óteljandi og ég gæti örugg-
lega skrifað þykka bók um allar góðu
og skemmtilegu minningarnar sem
ég á um þessa yndislegu konu sem ég
sakna nú sárt og erfitt er að geta ekki
tekið upp símann og heyrt í ömmu en
ég mun alltaf eiga miningarnar sem
hún gaf mér til að gleðja mig. Við töl-
uðum um þessa stund sem myndi
koma fyrr en seinna og amma hug-
hreysti mig og faðmaði og sagði mér
að vera ekki leið og þó ég viti að henni
líður betur núna, og hún sé hætt að
finna til, þá er söknuðurinn svo mikill
og það að geta ekki tekið upp símann
og heyrt í ömmu svo sárt að það mun
taka tíma að finna leið til að sætta sig
við það. En amma vissi líka að sá dag-
ur kæmi þegar við myndum hittast á
ný án þess að hafa áhyggjur og ég hef
vonina um að einhverntíma munum
við sjást á ný og halda áfram að búa til
góðar minningar og hlæja saman en
þangað til sá dagur kemur, þá er
komið að leiðarlokum og þú átt alltaf
stóran stað í hjarta mínu sem verður
ekki fylltur nema þá með minningun-
um um þig sem eru svo margar.
Elsku fallega og góða amma mín,
hvíldu í friði og minning þín mun lifa
um ókomin ár í hjörtum okkar allra
sem þekktum þig best og elskuðum
þig svo mikið. Bless, elsku amma,
þangað til við hittumst aftur.
Þín
Tinna Rut.
Anna S. Karlsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Það fyrsta sem kemur upp í
hugann þegar ég hugsa um
ömmu mína er hvað hún var
alltaf góð og skemmtileg. Ég á
svo margar minningar með
þessari yndislegu konu að ég
gæti örugglega skrifað heila
bók. Ég man sérstaklega eftir
því þegar við sátum og spjöll-
uðum, grettum okkur og hlóg-
um. Hún mun alltaf eiga stað í
hjartanu mínum og ég sakna
hennar meira en orð geta lýst.
Hvíldu í friði, elsku amma
mín.
Þín
Íris Heiða.
Elsku afi minn hef-
ur kvatt okkur.
Afi var einstakur
maður. Hann var sér-
staklega jákvæður og lífsglaður. Það
var svo gott að koma til hans á Greni-
teiginn að spjalla við hann eða vera
bara hjá honum. Hann hafði ótrúlega
fallega sýn á lífið og gat alltaf séð það
jákvæða í öllu þó að manni hafi sjálf-
um fundist það vonlaust. Þegar ég
kom frá honum var ég full af orku,
gleði og jákvæðni og var tilbúin að
takast á við það sem beið mín.
Afi var svo ánægður og nægju-
✝ Víglundur Guð-mundsson fæddist
á Grímsstöðum í
Landeyjum 16. febr-
úar 1922. Hann lést á
heimili sínu 18. nóv-
ember 2010.
Útför Víglundar
fór fram í Keflavík-
urkirkju 26. nóv-
ember 2010.
samur maður, verald-
leg gæði voru ekki að
trufla hann. Það að lifa
lífinu fannst honum
ómetanlegt. Afi var
mikill fjölskyldumað-
ur og átti níu yndisleg
börn. Fjölskyldan
skipti hann miklu máli
og var hann óendan-
lega stoltur af sínum
70 afkomendum.
Það er ofarlega í
minningunni hvað afi
var mikil barnagæla.
Hann eyddi mörgum
stundum með barnabörnunum og
barnabarnabörnum sínum. Hann gat
setið með lítinn hvítvoðung í fanginu
tímunum saman og raulað og barnið
var eins og engill.
Já, hann afi var sérstakur maður
og þið sem þekktuð hann vitið hvað
ég á við.
Elsku afi minn, svo ég noti nú orð-
in þín; „mikið lifandi skelfing“ á ég
eftir að sakna þín.
Ég ætla mér, út að halda
örlögin valda því.
Mörgum á ég, greiða að gjalda
það er gömul saga og ný.
Guð einn veit, hvert leið mín liggur
lífið svo flókið er.
Oft ég er, í hjarta hryggur
en ég harka samt af mér.
Eitt lítið knús, elsku mamma
áður en ég fer.
Nú er ég kominn til að kveðja
Ég kem aldrei framar hér.
Er mánaljósið, fegrar fjöllin
ég feta veginn minn.
Dyrnar opnar draumahöllin
og dregur mig þar inn.
Ég þakkir sendi, sendi öllum
þetta er kveðja mín.
Ég mun ganga á þessum vegi
uns lífsins dagur dvín.
(Einar Georg Einarsson.)
Kveðja,
Ólöf Magnea Sverrisdóttir
og fjölskylda.
Víglundur Guðmundsson
Eyjólfur Karlsson
er látinn langt um ald-
ur fram. Ég vænti
þess að aðrir skrifi um
lífshlaup hans, en mig langar í fáum
orðum að kveðja þennan gamla vin
og samstarfsmann. Eyfi var maður
hægur og ljúfur á alla lund. Hann fór
sér að engu óðslega, en var þó sæk-
inn, tók eftir mörgu, var fullur af
hugmyndum og afar lunkinn.
Greindur var hann vel og það sem
Eyjólfur Karlsson
✝ Eyjólfur Karlssonfæddist á Ak-
ureyri 3. nóvember
1952. Hann lést á
krabbameinsdeild
Landspítalans 14.
nóvember 2010.
Útför Eyjólfs fór
fram frá Hafnarfjarð-
arkirkju 25. nóv-
ember 2010.
mér fannst alla tíð
einna sterkast í hans
fari var húmorinn.
Hann var ekki að
reyta af sér háværa
brandara, en hann gat
gjarnan séð kímna hlið
á hlutunum og sagði
þá skemmtilega frá á
sinn hljóðláta hátt.
Ég sakna þess mjög
að geta ekki lengur átt
með honum stundir,
en man margt. Það er
Guðs gjöf að skilja eft-
ir sig góðar minningar
eins og Eyfi gerir. Far þú í friði kæri
vinur og haf þú þakkir fyrir allt.
Við Gyða vottum Kristjönu, dótt-
ur þeirra Huldu Lind, foreldrum
hans Kalla og Guðnýju, bræðrum,
systur og fjölskyldu allri hugheila
samúð.
Kjartan Örn Kjartansson.